Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.1998, Qupperneq 1
GOIUUW
vniifl
ara
GV 6
Opinn da
almenningTijá GV
gur fyrir
i niá GV
I þessu blaði langar okkur til að kynna fyrir ykkur, lesendur
góðir, eitt virkasta íþróttafélagið í Vestmannaeyjum, Golfklúbb
Vestmannaeyja.
Kannski ert þú, sem þetta lest, einn af þeim sem alltaf hefur
verið á leiðinni f golftð. Sagt við sjálfan þig áhverju ári: „Nú
læt ég verða af því, nú helli ég mér í golfið í sumar." Svo hefur
þurft að mála húsið og slá blettinn og fara í sumarfrí og áður en
þú veist er sumarið liðið og þú hugsar með þér: ,Jæja, ég fresta
þessu þá bara um eitt ár."
Þeir eru líka margir sem hugsa með sér: „Golf, er það ekki
einhver heldri rnanna íþrótt (eitthvað svona eins og laxveiðar)
sem bara bankastjórar, forstjórar og útgerðarmenn stunda? Er
það nokkuð fyrir svona meðaljóna eins og mig?"
Það kann að vera að fyrir svo sem fjórum fimm
áratugum haft eitthvað verið til í þessu. En ekki í dag.
Golf er stundað af öllum stéttum þjóðfélagsins.
Bankastjórinn og þingmaðurinn taka hring með sjó-
manninum, verkamanninum og rakaranum og þar er
enginn öðrum fremri (nema náttúrlega sá sem vinnur
hringinn.) Kynslóðabil þekkist heldur ekki í golftnu, þar
eru oftsinnis þrjár kynslóðir saman í holli. Og ekki er
heldur gert upp á milli kynja, karlar og konur stunda
íþróttina saman. Mikið er t.d. um að hjón eigi þetta að
sameiginlegu áhugamáli.
„En er þetta ekki alveg fokdýrt?" kannt þú að spyrja.
Það kostar sitt að stunda íþróttir, sama hvaða nafni þær
nefnast. Golfsett kostar náttúrlega sitt og svo kúlumar
líka. Og svo geturðu séð það aftar í blaðinu hvað
árgjaldið er í klúbbnum. En við getum líka ábyrgst að
hver sú króna sent þú eyðir í golfið, mun skila sér til þín
aftur í þeirri ánægju sem í því er fólgin að spila golf.
Á sunnudaginn kemur, þann 7. júní, verður opinn
dagur hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. það þýðir að allir þeir
sem áhuga hafa á að kynnast íþróttinni, geta komið inn í
golfskála, fengið allar upplýsingar og fengið að prófa að slá og
æfa sig. Útlærður golfkennari verður á staðnum og íyrir þá sem
ekki treysta sér strax í slíkt, verða gamalreyndir kylfingar til
staðar, reiðubúnir að rölta með áhugasömum og segja þeim til.
Þetta er kynning á starfsemi klúbbsins og þarf ekki að greiða
ftmmeyring fyrir.
Við munum byrja kl. 13.00 og verða að til kl. 16.00 og allt í
lagi að koma hvenær sem er á því tímabili. Við tökum vel á
móti öllum.
Ef þú átt golfsett, þá er nú ekki verra að dusta af því rykið og
koma með það inn eftir. En þeir sem ekki eiga slíkt, geta engu
að síður mætt og við reddum kylfum við hæfi hvers og eins.
„En er þetta ekki sjómannadagurinn"
Jú, mikið rétt, þetta er sjómannadagurinn. Og það er með
vilja gert hjá okkur að hafa þessa kynningu á sjómannadaginn.
Margir sjómenn stunda golf og líklega enn fleiri sem hafa hug
á að byija á því. Þennan dag eru sjómenn í landi og eiga fií. Þvf
viljum við gefa þeim sem áhuga hafa, kost á því að mæta og
kynnast þessari frábæru íþrótt. Ekki væri heldur lakara að taka
betri helminginn með sér. Og þið hin, sem ekki stundið sjó,
karlar og konur, sjö ára til sjötugs og jafnvel þar yfir, þið eruð
virkilega velkomin. Stjórn GV.
Golfklúbbur Vestmannaeyja verður 60 ára á þessu ári. Hann er
þriðji elsti golfklúbbur á landinu, aðeins klúbbamir í Reykjavík og
á Akureyri eru eldri.
Það er gaman að rifja upp að fyrsta golfsettið mun halá komið
til Eyja árið 1937. Það var Magnús Magnússon, skipstjóri frá
Boston, sem kom með settið hingað og kveikti svo rækilega í
mönnum að ári síðar, þann 4. desember 1938, var stofnaður
golfklúbbur hér og stofnendur 36 talsins.
Fyrsta svæði klúbbsins var inni í Hetjólfsdal og var þar komið
upp sex holu velli. Strax árið eftir var lokið við byggingu á litlum
skála austai'lega í Dalnum, undir Mikitakstó og sá skáli var síðan
stækkaður 1945. Árið 1962 var svo völlurinn stækkaður í níu
holur.
Þjóðhátíðarhald í Heijólfsdal varð m.a til þess að félagar námu
nýtt land suður af Dalnum og aflögðu þær brautir sem voru í
sjálfum Herjólfsdal. í framhaldi af því var ráðist í byggingu á
nýjum skála, miklu sunnar. Gamli
skálinn hýsir nú aðstöðu fyrir
ferðalanga í Herjólfsdal.
Eldgosið 1973 setti strik í
reikninginn, bæði við byggingu
skálans og svo golfiðkun þar sem
vikurlag þakti völlinn. þá var tekinn
í notkun, til bráðabirgða, sex holu
völlur sunnan við flugvöllinn og var
hann í notkun fram til 1977 þegar
hreinsun var lokið á gamla
vellinum.
Árið 1987 var svo byggður nýr
og glæsilegur golfskáli sem viðbót
við þann gamla og hýsir hann í dag
starfsemi klúbbsins.
Löngu fyrir gos voru uppi raddir
um að stækka völlinn í 18 holur. Sá
draumur varð að veruleika árið
1994. Gamli völlurinn var látinn
halda sér því sem næst óbreyttur en
bætt við níu holum á svæði sem
liggur að miklu leyti meðfram Ofanleitishamri og inn undir
Kaplagjótu.
Hönnunin á vellinum þykir einkar vel heppnuð, miðað við hve
lítið landsvæðið er. Landslagið nýtur sín vel og völlurinn fellur
vel inn í umhverfið. Umhverfissinnar og náttúruvemdarmenn
hafa mjög lofað það framtak að hreinsa til heldur óhrjálegt svæði
sem áður var við Torfmýri en er núna fjölsótt gönguleið og falleg.
Fuglalíf setur sterkan svip á völlinn, bæði sjófúgl í björgum og svo
blessaður mófuglinn sem ár eftir ár velur sér sömu hreiðurstæðin
á vellinum. Sums staðar er útsýnið slíkt á teigum að menn hrein-
lega gleyma því að þeir em í golfi, setjast niður, slaka á og njóta
óspilltrar náttúm.
Útlendingar em í æ ríkari mæli famir að koma hingað til að
spila golf og sumir koma hér ár eftir ár. Eitt þekktasta golftímarit
veraldar, Golf Digest, valdi í fyrra golfvöllinn í Vestmannaeyjum
einn af 200 bestu golfvöllum í Evrópu og segir það kannski allt
sem segja þarf um völlinn. Völlurinn er erfiður og krefjandi,
sérstaklega þó seinni níu holumar. Þeir sem einu sinni hafa spilað
á vellinum í Eyjum, segjast munu koma aftur og gera það flestir.
Þeir sem halda um taumana í ferðamálum í Eyjum, telja að þessi
frábæri völlur eigi í framtíðinni eftir að hafa mikið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn sem hingað munu leita.
Allar brautirnar á vellinum hafa sérstök nöfn, sum gömul og
gróin eins og Kaplagjóta og Fjósaklettur. Önnur em nýrri af
nálinni, nöfn á borð við Olnboga og Ægisdyr.
Golf er stundað allan ársins hring í Vestmannaeyjum. Því
veldur hið milda loftslag sem hér er ríkjandi. Völlurinn tekur og
miklu fyrr við sér en flestir aðrir vellir á landinu og unnt er að
byrja að spila sumargolf í maímánuði ár hvert sem er meira en
hægt er að segja um marga aðra staði á landinu.
Ragnar Guðmundsson, formaður GV á 50 ára afmæli klúbbsins, ásamt fimrn dyggum
klúbbfélögum sem voru heiðraðir á afmælinu. Þeir finmi eru nú allir látnir.