Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.1998, Blaðsíða 4
4
miM VÍMMfl CO flflfl
Fimmtudaaur 4. iúní 1998
Háttvísi í golfi
Þegar komið er út á golfvöll er að mörgu að hyggja. Nokkuð
strangar reglur eru um hvernig golfleikurum ber að haga sér á
vellinum og er mikið lagt upp úr því að ekki sé vikið frá þeim.
í fyrstu skal nefnd umgengni um völlinn sjálfan. Mikilvægt er
að þeir sem leika golf lagi þær skemmdir sem þeir kunna að
valda á vellinum. Er þar fyrst og fremst um að ræða kylfuför eftir
högg og holuför á flötum eftir bolta. Kylfuför eru þannig að þegar
bolti er sleginn, er oft ristur upp torfusnepill um leið og er ákaflega
mikilvægt að koma honum fyrir á sínum stað aftur, bæði vegna
útlits vallar sem og að mjög vont er að lenda með boltann sinn í
fari eftir einhvern annan leikmann sem ekki hefur lagað eftir sig.
Slíkur bolti getur verið ósláanlegur. Boltaför á flötum myndast af
háum boltum sem koma inn á flöt. Myndast þá í flestum tilvikum
lítil dæld í flötina þar sem boltinn lenti. Sérstakir flatargafflar eru til
þess gerðir að laga þessar dældir og eiga allir golfleikarar að eiga
slíkt tæki. Þessi ofangreindu atriði eru mjög mikilvæg og allir þeir
sem leika golf eiga að hafa í huga að skilja við eins og þeir vilja
koma að því aftur. Þriðja atriðið er að fleygja aldrei rusli inni á
golfvelli, frekar en annars staðar í náttúrunni. Það er mikilvægt
öllum sem leika golf að völlurinn sé vel hirtur og snyrtilegur því að
það er hluti af ánægjunni við golfleik.
í golfleiknum sjálfum eru ákveðnar siðareglur sem of langt mál
væri að telja allar upp. Þó skal hér getið nokkurra þeirra mikil-
vægustu.
Aldrei skal vera með neinn hávaða eða óhljóð á golfvelli.
Mikillar einbeitingar er þörf við að leika golf og mikilvægt að engin
hvell og óvænt hljóð heyrist.
í golfi er leikið í hópum, 2, 3 eða 4 saman. Óheimilt er að leika
saman fleiri en fjórir í hóp og leikmaður, sem leikur einn, hefur
engan rétt gagnvart öðrum golfleikurum og ber ætíð að víkja þótt
það sé látið óátalið þegar fáir eru að leik á vellinum.
Eftir að slegið hefur verið af teig skal sá næstur slá sem lengst
er frá holu. Engum leikmanni í sama hópi er heimilt að fara fram
fyrir þann stað sem bolti hans liggur fyrr en hann hefur leikið
honum. Er það bæði gert til að koma í veg fyrir slys og til þess
að skemma ekki einbeitingu þess sem á að leika.
Leika skal hratt yfir völlinn, án óþarfa tafa. Þeir sem leika hægt
skulu hleypa þeim sem á eftir koma og leika hraðar fram úr.
Ef bolti finnst ekki hefur leikmaður fimm mínútur til að finna
hann. Ef hann finnst ekki á þeim tíma ber honum að leika höggið
aftur frá þeim stað er síðast var slegið.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um hvernig ber að haga
sér á golfvelli. Við fyrstu sýn kann þetta að virðast flókið en
raunin er sú að með því að framfylgja reglum gerir leikmaður
leikinn skemmtilegri og með tillitssemi verður hann skemmtilegri
öllum þeim er leika völlinn á sama tíma
Góða skemmtun í golfi.
Stjórn GV og formenn nefnda
Formaður: Gunnar Gunnarsson
Varaformaður: ..Sigurður Þór Sveinsson
Gjaldkeri: .Aðalsteinn Sigurjónsson
Ritari: Sigurgeir Jónsson
Meðstjórnandi: Atli Elíasson
Varamaður: Leifur Gunnarsson
Varamaður: ..Sigurður Guðmundsson
Vallarstjóri: Aðalsteinn Ingvarsson
Framkvæmdastjóri: Ævar Þórisson
Sími í golfskála 481 -2363 -Fax 481-2362
Form. kappleikjanefndar: Elsa Valgeirsdóttir
Form. vallarnefndar: Gísli H. Jónasson
Form. húsnefndar: ....Jónas Þ. Þorsteinsson
Form. aganefndar: Erlingur Einarsson
Form. unglinganefndar: . Haraldur Óskarsson
Form. afmælisnefndar: ... Bergur Sigmundsson
í golfverslun GV
fæst allt það sem kylfingar
þurfa. Golfsett, stakar kylfur og
járn, boltar, hanskar, pokar,
kerrur, skór og
fatnaður.
Viðurkennd merki.
Verslið hjá þeim sem
reynsluna hafa.
Viltu læra
golf?
Nú er tækifærið
Nýliðanámskeið fyrir alla, unga sem aldna.
Upplagt fyrir hvers kyns klúbba, gönguhópa
o.s.frv.
Sérstakt afmælistilboð í tilefni af 60
ára afmæli GV.
Kr. 10 þúsund fyrir 17 ára og eldri.
Kr. 5 þúsund fyrir yngri en 17 ára.
Innifalið í þessu er kennsla hjá Gary BrocScs,
á tímanum 17.00 - 18.00 virka daga og
klúbbgjald í GV.
Klúbburinn leggur til bolta og kylfur ef óskað
er.
Þetta tilboð gildir frá 4. júní til 4. júlf.
Golfkennsla
hjá Gary
Brooks
Nú geta félagsmenn skráð sig í kennslu hjá
Gary Brooks.
í sjoppunni liggur frammi dagbók þar sem
félagsmenn geta skráð sig.
Félagsmenn eru hvattirtil að nýta sér þetta
tækifæri meðan við höfum Gary hjá okkur.
Einkatímar:
Verð + pakkaverð:
Hver tími kostar kr. 800.
Fimm tímar kosta kr. 3.000.
Tíu tímar kosta kr. 6.000.
Afsláttarmiðar eru seldir í sjoppunni
og þarf að staðgreiða þá.
Hvaá kostar
að vera í
GV?
Árgjald fyrir 18 ára og
eldri er 30 þúsund kr.
Hjónagjald er
2 x 25 þúsund kr.
Nýliðagjald er
kr. 15 þúsund.
Nemendagjald 14 ára
og eldri er
15 þúsund kr.
Árgjald unglinga að 13
ára aldri er 6 þúsund kr.
Skápaleiga á ári er
kr. 5 þúsund.
Vallargjald er
kr. 1500 á dag.
Mót hjá GV í sumar:
06. júní ..........Net hf. og Hampiðjan, punktak. 7/8 forgj.
12. júní..............Kvennaparadís, Hatta og kjólakeppni.
13. júní ........................Heimsókn í Nesklúbbinn.
13. júní........................Kvennaparadís, Opið mót.
14. júní........................Kvennaparadís, Opið mót.
15. -19. júní...........Golfævintýri í Eyjum, fyrir unglinga.
19. júní...................Sveinsstaðaættarmót, lokað mót
20. júní...................Sveinsstaðaættarmót, lokað mót
20. júní .....................Jónsmessumót, snærisleikur
27. júní ............Kiwanis/Oddfellow/Akóges, lokað mót.
04. júlí .........Goslokamót, 18 holur með og án forgjafar.
10. júlí ...............Volcano Open, 3 holur með forgjöf.
11-12. júlí.........Volcano open, forgj. 0-12,13-24, 25-36.
15.-18. júlí ................Meistaramót GV, allir flokkar.
25. júlí.................Sjómanna og útvegsmannamótið
08. ágúst ........Stöðvamótið, 18 holur með og án forgjafar
15. ágúst ....Coca Cola mótið 18 holur með og án forgjafar.
22. ágúst ......................Suðurlandsmótið, hópferð.
22.-23. ágúst .......................Sveitakeppni öldunga
29. ágúst ....Hjóna og parakeppni, pútt eða annað hvert högg.
5.-6. sept. íslenska mótaröðin, 54 holur m. og án, holukeppni.
12. sept.....Glenfiddich mótið, 18 holur með og án forgjafar.
19. sept......Sparisjóðsmótið, 18 holur með og án forgjafar.
26. sept.................60 ára afmælismót og afmælishóf.
03. okt..................Bændaglíma, 18 holur, reglugerð.