Fréttir - Eyjafréttir - 06.08.1998, Síða 4
A
Fréttir
Miðvikudagur 6. ágúst 1998
Sælkeri síðustu
viku skoraði á
Höllu Einarsdóttur,
Ijósmyndara, að
taka við. Halla
kemur hér með
tvær uppskriftir
sem eiga vel við
eftir þjóðhátíð þó svo að líklega séu
flestir búnir að jafna sig eftir helgina.
Kjötsúpa:
Súpukjöt
(magnið fer eftir fjölda gesta)
2 rófur, litlar
'A haus hvítkál
1 bolli hrfsgrjón
1 bolli haframjöl
3 súputeningar (mega vera fleiri)
1 poki gulrætur
salt eftir smekk
Þetta er allt soðið saman í 1 til 1 Vi
klst. Einfaldara getur það varla verið
og er einstaklega gott eftir þjóðhátíð.
O r Ö
- Síðastliðið fimmtudagskvöld fóru
fram tvær vígslur í Dalnum. Vígsla
vitans og myllunnar. Myllan var vígð á
undan, en á milli þeirra sem að þessum
mannvirkjum standa hefur lengi verið
nokkur rígur. Þeir sem að vitanum
standa komu reykvél fyrir í myllunni
þannig að þegar hún var sett í gang við
hátíðlega athöfn fylltist allt af reyk.
Aðstandendur myllunnar fölnuðu en
vitamönnum leiddist ekkert. Heyrst
hefur að myllumenn séu alveg að fara
að jafna sig á áfallinu.
- Þegar svo vitamenn, sem reyndar
ganga undir nafninu „hálfvitarnir"
tendruðu á sínum fína vita, þá sló allt
rafmagn í Dalnum út. „Hálfvitarnir“
fölnuðu og myllumenn glöddust en þá
kom í Ijós að Arngrímur rafvirkji hafði
beðið tilbúinn og sló öllu út þegar
kveikt var á vitanum. Nú er næstu
Þjóðhátíðar beðið til að sjá framhaldið
á þessum væringum.
I J
Þægilegur brauðréttur:
1 brauð (skorpan klippt af)
2 ds. CampeH’s súpur
1 ds. aspas
2 dl. mjólk
Season All krydd
skinka
rifinn ostur
Raðið brauðseniðunum í eldfast
mót á tvær hæðir. Setjið súpuna í potl
og hellið leginum af aspasinum með,
ásamt mjólk og Season All kryddi.
Hitið þetta og hellið yfir brauðið.
Raðið aspasinum yftr, blandið skinku
í bitum yfír og rífið ost ofan á. Bakið
þetta í ol'ni í u.þ.b. 20 mínútur.
Eg ætla að skora á vinkonu mína í
Hressó, Jóhönnu Jóhannsdóttur, að
koma með góðar hollustuppskriftir í
næstaþætti.
»P O ^__________________________
- Athygli vekur að sífellt fleiri eru farnir
að teppaleggja göturnar fyrir framan
hústjöldin. Núna var til dæmis hálf
Ástarbrautin teppalögð en á álags-
stöðum eins og framan við göturnar
var orðið sökkvandi drulla á sunnu-
dagskvöld. En allt horfir þetta til bóta
og verður bara betra næst.
- Heldur fleiri tjöld heimamanna voru í
Dalnum núna en við síðustu Þjóðhátíð.
Á miðvikudagskvöld rétt fyrir leik ÍBV
og Obelic var starfsmönnum leyft að
merkja sér tjaldstæði í Dalnum og
gerðu þeir það svikalaust. Svo margir
virðast hafa unnið í Dalnum þetta árið
að Dalurinn var eins og snærishönk yfir
að líta eftir leikinn.
-Sífellt fleiri þjónustuaðilar eru með
opið meðan á Þjóðhátíð og eru
skoðanir skiptar um það. Það er þó
sjálfsagt að þeir sem ákveða að fara
ekki í Dalinn geti sótt sér helstu
nauðsynjar.
Halla Einarsdóttir
er sælkeri vikunnar
Veggfánarm/íslenska
fánanum
hvarsemer
rr
HUSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Rxyktur. lundi ■ Namm namm
Þórhildur Ögn Jónsdóttir tók þátt i Jasonlundaverkefninu
á vegum EXPO í fyrra. Hún var í sumar valin sem annar
tveggja þátttakenda frá íslandi til að taka þátt í
sameiginlegu umhvertisverkefni nemenda sem unnið
verður í Lissabon í Portúgal. Þórhildur Ögn er að auki
mikil áhugamanneskja um þjóðhátíð og varákveðin íað
skemmta sér hið besta. Hún er Eyjamaður vikunnar að
þessusinni.
Fullt nafn? Þórhildur Ögn Jónsdóttir.
Fæðingardagur og ár? 21. Desember 1981.
______Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Ég bý til skiptis heima hjá pabba og
mömmu, og hjá kærastanum, Ríkharði Bjarka.
Menntun og starf? Ég er í námi í Menntaskólanum í Hamrahlíð
í svonefndu IB námi. Það skilar alþjóðlegu stúdentsprófi enda
er nær allt námsefnið á ensku. I sumar vinn ég í Tvistinum.
Laun? Mjög góð.
Helsti galli? Alltaf
utan við mig.
Helsti
kostur? Hef
ekki
hugmynd um
það, það er
helst að spyrja
mömmu.
Uppáhaldsmatur? Reyktur lundi, hvað annað?
Versti matur? Hræringur.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldstónlist? Allt mögulegt nema sinfóníur og dauðarokk.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera með
kærastanum og vinum mínum, og ferðast.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að taka til.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Ég
myndi fara til útlanda og gera svo eitthvað skynsamlegt við
afganginn.
Uppáhaldsstjórnmaálaður? Ég pæli ekkert í stjórnmálum.
Uppáhaldsíþróttamaður? Rikki.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? ÍBV.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Góðar spennumyndir.
Uppáhaldsbók? Alla vega ekki skólabækurnar.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Baktal og
þegar fólk er að plata mig í einhverja hluti sem er svo ekki
flugufóturfyrir.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Vestmannaeyjar í
góðu veðri.
Ertu mikil þjóðhátíðarmanneskja? Alveg í botn.
Hvar vildirðu vera ef þú gætir ekki verið á þjóðhátíð? Á
sólarströnd.
Hvað ætlarðu að fara að gera úti í Lissabon? Þetta er
ákveðið umhverfisverkefni sem við komum nokkur að. Ég tók
þátt í lundaverkefninu hér í Eyjum á síðasta ári og var svo
heppin að vera valin til að fara út sem annar fulltrúa íslands.
Menntamálaráðuneytið kostar þessa ferð og ég hlakka
virkilega til.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð?
-Þjóðhátíð? Geðveik skemmtun.
Vestmannaeyjar? Hér á ég heima þó svo að ég
sé aðflytjatil Reykjavíkur.
-Keikó? Vonandi lifir hann þetta af.
Eitthvað að lokum? Nei, nei.
Þann 18. júlí eignuðust Hrafnhildur Helgadóttir og Jóhann Þorvaldsson dóttur.
Hún vó 15 merkur og var 52 sm að lengd. Með henni á myndinni er Lovísa
stóra systir. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
Þann 21. júní eignuðust Ingibjörg Valsdóttir og Þorsteinn Hallgrímsson dóttur.
Hún vó 19 merkur og var 54 1/2 sm að lengd. Hún hefur verið skírð Kristín
María og það er langamma hennar Þóra Haraldsdóttir sem heldur á henni.
Kristín María fæddist á frfingardeild Landsspítalans í Reykjavík.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Þórunn A. Sigjónsdóttir
Eyjahauni 11, Vestmannaeyjum
lést á heimili sínu 25. júlí
verður jarðsungin frá Landakirkju Vestmannaeyjum,
8. ágúst kl. 11 f.h.
Edda Svavarsdóttir
Dóra Svavarsdóttir
Friðrikka Svavarsdóttir
Aslaug Svavarsdóttir
Svava Svavarsdóttir
Sif Svavarsdóttir
Garðar Gíslason
Halldór Pálsson
Hrafn Oddsson
Ingvar Vigfússon
Egill Asgrímsson
Sævar Guðjónsson
Barnabörn, barnabarnabörn