Fréttir - Eyjafréttir - 06.08.1998, Page 12
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
Dofhfwr hiéfr Avvrt é lond jmh
Vöruafgreiðsla
■Idldlngovegl 4 Sfmi 481 3440
Vöruafgreiðsla í Reykjavík
JUaHlufnlngar Héðinsgöfu 3
Siml 581 3030
Öll móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópal
' »3
ODVKASTI l\()SH RIW I lö.U M
Tíu hæstu í skattinum:
Skipstjórar og útgerð-
armenn á toppnum
Nú hefur skattstjóri Vestmanna-
eyinga birt skjólstæðingum sínum
álögð gjöld vegna álagningu
opinberra gjalda 1998. Það vekur
ætíð mislæga forvitni hverjir þeir
einstaklingar eru sem eru hvað
atkvæðamestir í því að gjalda
„keisaranum það sem keisarans er“
svo vitnað sé andagiftarfulla bók.
Ef listi yfír tíu hæstu gjaldendur
Vestmannaeyja þetta árið er skoðaður
skipa þar skipstjórar veglegan sess.
Allir tengjast þeir topp-10 menn þó
útgerð með einum eða öðrum hætti
(miðað við starfsheiti) utan Hanna
Mana Siggeirsdóttir lyfsali sem verm-
ir fjórða sæti listans með rúmlega 5.0
milljónir í álögð gjöld. Efstur á list-
anum er Kristbjöm Ámason skipstjóri
sem greiðir rúmlega 6.8 milljónir. í
öðru sæti er Jóhann Halldórsson
útgerðarmaður með tæplega 6.0
milljónir, Matthías Óskarsson útgerð-
armaður í þriðja sæti með 5.3
milljónir. í fimmta til níunda sæti eru
valinkunnir skipstjórar; Ólafur Ágúst
Einarsson með 5.1 milljón, Gunnar
Jónsson litlu lægri með 5.1 milljón
(rnunar rúmlega hundrað þúsundum),
Grímur Jón Grímsson með 4.7
milljónir, Guðmundur Sveinbjöms-
son með 4.5 milljónir og Eyjólfur
Guðjónsson með 4.3 milljónir. Að
síðustu er svo Haraldur Gíslason
framkvæmdastjóri með 3.9 milljónir.
Fullkominn fjartunda-
búnaður í Athaf naverinu
Verið er að koma upp fjar-
fundabúnaði í Athafanverinu sem
býður upp á að hér verði haldnir
fundir með aðilum annars staðar á
landinu í gegnum sjónvarp.
Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður
Athafnaversins, segir að búnaðurinn
samanstandi af 33 tommu sjónvarpi
og tveimur myndavélum. Annarri sem
tekur myndir í salnum og önnur sem
myndar skjöl sem hvort tveggja er svo
hægt að senda í sjónvarp á hinum
enda línunnar. „Aðdráttarlinsa er á
myndavélunum þannig að hægt er að
taka myndir af einstaka fólki í salnum.
Einnig er minni á vélunum þannig að
hægt er með einni skipun að segja
henni hvað hún eigi að sýna, t.d. mann
sem er að taka til máls á fundi,“ segir
Páll.
Búnaðurinn er tengdur með þremur
ISDN línum sem Páll segir að tryggja
eigi mikil myndgæði. „Þetta býður
upp á ýmsa möguleika og auðveld-
lega er hægt að halda tíu til 15 manna
fundi hér í stað þess að borga fargjald
fyrir fólk upp á land. í Reykjavík er
t.d. hægt að fá inni í Landssímahúsinu
fyrir sjónvarpsfundi sem tengst gætu
til Eyja.“
Það er Byggðastofnun sem afhendir
Þróunarfélagi Vestmannaeyja búnað-
inn sem líka verður hægt að nýta til
fjarkennslu. ,Það eru miklar framfarir
á þessu sviði og í haust fáum við
nýjan og endurbættan búnað sem gerir
okkur kleift að halda fundi í gegnum
Intemetið," sagði Páll að iokurn.
Þessar þrjár myndir gefa smá-
sýnishorn af þjóðhátíðinni. Á þeirri
stóru er Bjarni þjálfari Jóhannsson
með sínu fólki. F.v. Steinar Guðgeirs,
Bjarni og Kristinn R. Jónsson með
fjölskyldum sínum. Á myndinni fyrir
ofan eru gestir að bíða eftir flugi á
mánudaginn og á myndinni til hliðar
eru golfholurnar í fullum skrúða.
Opiða alla virka daga
8- 19
laugardaga
9- 19
sunnudaga
10- 19
tföb U014ÍM í
atfflnœleá)
Opið alla virka daga
8- 19
laugardaga
9- 19
sunnudaga
10- 19