Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Page 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 9. .sepíímbcr 19978 •• '• ó.toiutovtö •• Vai5 'fcr. 140,- * Simiii:: 4$1 3310 • Fax: 481 1293
Nær til allrar heimsbyggðarinnar
Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, segir erfitt að gera sér
grein fyrir hvað koma Keikós til
Vestmannaeyja sé stór í augum
alþjóða fjölmiðla. Það sé þó Ijóst að
allir sem hafa aðgang að sjónvarpi
hvar sem er í heiminum geta fylgst
með ferðalagi Keikós til nýrra
heimkynna.
Páll segir erfitt að bera flutning
Keikós til Vestmannaeyja saman við
t.d. leiðtogafund Gorbachov og
Reagan. Megin áherslan sé lögð á að
Hallur Hallsson, fulltrúi FWKS, sér
nú loks fyrir endann á miklum erli
meðkomuKeikótilEyja.
Keikó sé að kveðja Bandaríkin en
minna gert úr því að hann sé að fara til
íslands," segir Páll. „CNN og NBC
verða með 30 manna lið í Portland en
láta sér nægja að taka við myndum
frá okkur. Ef við eigum að bera þetta
saman við leiðtogafundinn þá hefðu
stöðvamar sent lið hingað. Þess ber þó
að geta að áherslurnar eru aðrar og
áhorfendahópurinn breiðari. Efnið er
myndrænna og höfðar frekar til bama
og er ekki síður skemmti- en
fréttaefni. En allir vilja vera með og
öll heimsbyggðin sem hefur aðgang
að sjónvarpi getur fylgst með.“
Einn milljarður fylgist með
Vestmannaeyjum á morgun
Ljóst er að um 250 blaða- og
fréttanienn koma til Vestmanna-
eyja vegna komu háhyrningsins
Keikós. Er það umtalsvert minni
fjöldi en gert var ráð fyrir í upphafi
en þá var áætlað að allt 700
fjölmiðlamenn kæmu til. Þar fyrir
utan er vitað að um 100 manns,
gestir og starfsfólk, verði hér við
komu Keikós. Vestmannaeyingar
þurfa þó ekki að kvíða því að
kastljós fjölmiðla beinist ekki að
Eyjum því gert er ráð fyrir að einn
milljarður fylgist með útsendingum
héðan.
„Ráðgjafafyrirtæki sem vann fyrir
áætlun Free Willie Keikósjóðinn um
fjölda fréttamanna gerði ráð fyrir að
750 fjölmiðlamenn myndu kom að
flutningnum á Keikó frá Newport til
Vestmannaeyja," segir Hallur Hall-
sson. „Þessi áætlun hefur gengið eftir
en dærnið hefur snúist við hvað varðar
fjöldann á hvorum stað. í fyrstu var
Skólastarf hófst í síðustu viku en um 1000 nemendur í Vestmannaeyjum sitia á skólabekk í
vetur í grunnskólunum tveimur og Framhaldsskólanum.
haldið að meirihluti þeirra, um 400
ntanns, yrði í Vestmannaeyjum en nú
er Ijóst að fjölmiðlar setja fjar-
lægðimar fyrir sig. Niðurstaðan er því
sú að hingað koma 240 fréttamenn en
í Newport verða þeir um liðlega 400.
Þar verður megináhersla lögð á
kveðjustund Keikós sem er að yfirgefa
Bandaríkin og fer til nýrra heimkynna
áíslandi."
Hallur segir að þessi fjöldi hafi sótt
um blaðamannaskírteini en hann geti
átt eftir að fjölga. En það kom fleiri en
fjölmiðlamenn í tengslum við komu
Keikós. „Frá Free Willie Keikó-
sjóðnum og bandaríska flughernum
koma einhverjir tugir og með
starfsfólki UPS sem flytur Keikó frá
flugvellinum verða það um 100
manns.“
Hallur segir að þrátt fyrir þetta þurfi
Islendingar og sér í lagi Eyjmenn ekki
að óttast að vera eldd í sviðsljósinu á
fimmtudaginn. „Ahugi heimspress-
unar er gífurlegur og umfjöllunin
verður rosalega mikil um allan heim.
Stórblöð út um allan heim hafa sett sig
í samband við okkur og vilja fá allar
mögulega og ómögulega upplýsingar
um stöðuna hér. Eðlilega var áhuginn
mestur vestan hafs í upphafi en nú eru
Norðurlönd og Evrópa að koma
sterkari inn. Þá er líka ntikill áhugi í
Japan og víðar í Asíu þannig að það
verður einn milljarður jarðarbúa sem
kemur til með að fylgjast með
flutningum á Keikó frá Newport til
Vestmannaeyja með einum eða
öðrum hætti,“ sagði Hallur að end-
ingu.
Báturinnsem
veiddi Keikó í
höin á morgunn
Vitað er hvaða bátur veiddi
Keikó á sínum tíma og er hann
gerður út frá Vestmannaeyjum.
Guðrún VE 122, sem áður var
gerð út frá Hafnarfirði, stundaði
veiðar á háhyrningum í kringum
1980. Vitað er með vissu að
Guðrún veiddi háhyminjt sem
kallaður var Siggi en fékk nafnið
Keikó eftir að hann var fluttur til
Ameríku.
Guðrún VE er væntanleg til
Vestmannaeyja í kvöld og verður
hún í höfn á morgun. Er ekki að efa
að margir erlendu frétta-mannanna
munu hafa áhuga á að kíkja um
borð.
Kristján og
Báravígðtil
landakirkiu
Séra Kristján Björnsson og séra
Bára Friðriksdóttir voru vígð til
embættis í Landakirkju síðas-
tliðinn sunnudag af Dr.Gunnari
Kristjánssyni prófasti Kjalar-
nessprófastsdæmis.
Sóknarböm fjölmenntu til
vígslunnar og hlýddu um leið á
fyrstu predikun séra Kristjáns í
Landakirkju. I predikun sinni lagði
sér Kristján út af dæmi-sögunni um
miskunsama sam-verjan og minnti
á að nauðsynlegt væri að taka tillit
til með-bræðranna, jafnvel þó að
menn væm ekki sammála í hinunt
mörgu og ólíku máluni sem upp
kæmu í samskiptum manna á
meðal. Séra Kristján og séra Bára
sögðust ánægð með mætingu og
hversu vel virkir og áhugasamir
kirkjugestir voru við messuna.
Mikil guðsdýrðarinnar blfða var
þennan sunnudag og spillti ekki
fyrir þeirri lofgjörð sem flutt var
hinu ágæta almætti.
Dagurhafsinsá
laugardaginn
Ákveðið hefur verið að Dagur
hafsins verði haldinn nk. laugar-
dag 12. september.
Sjávarúútvegsráðuneytið hefur
mælst til þess að tvö veiðiskip verði
til sýnis á Degi hafsins. Hefur verið
ákveðið að loðnuveiðiskipið
ísleifur VE 63 og Guðrún VE verði
opinn almenningi á laugardaginn.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 ■ sími 481
Vetraráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Mán - Lau Kl. 08:15 Kl. 12:00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00
aukaferðír föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
*1/ • ' 1 p. /pníar ói/id
Sími 4812800 Fax 4812991