Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Blaðsíða 12
Blaðamannafundur í gærkvöldi: Áhyggjur sjónvarps- manna og morðhót- anir voru efst á baugi Blaðamannafundur var haldinn í Kivvanishúsinu kl 18:00 í kvöld, þar sem fulltrúar og aðstand- endur Keikós og flutnings hans til Vestmannaeyja sátu fyrir svörum. Ofarlega í huga fjölmiðlamanna sem sátu fundinn voru áhyggjur af skipulagi morgundagsins og hvort menn hefðu nægan tíma til að koma sér á rnilli staða. Sérstaklega höfðu sjónvarpsgengin áhyggjur af þessu þurfandi að draga með sér miidð af tækjum og búnaði. Einnig var mikið spurt um hvoit beinar lifandi myndir yrðu sendar frá flugvélinni sem flytur Keikó til íslands. Svar fulltúa bandaríska hersins á fundinum var á þá leið að svo yrði ekki, heldur yrði ferðin tekin upp á myndband, sem fjölmiðlafólk fengi svo til ráðstöf- unar á morgun. Mestur áhyggju- skjálfti fjölmiðlamanna var því róaður. Maður í yfirheyrslu vegna Keikó hótana Samkvæmt því sem út var látið ganga fyrir blaðantannafundinn í kvöld var að um stutta kynningu yrði að ræða á skipulagi og framkvæmd flutningsins á Keikó. Breyttist það þó fljótt og fjöLmiðlfólk spurði mikið um morðhótanir þær sem Keikó hefur fengið. Breytti því fundurinn nokkuð um stefnu og lengdist að sama skapi. Keikó hefur fengið fjórar morðhótanir og þá síðustu 7. september síðastliðinn og var rnaður handtekinn og yfirheyrður á Eskifirði í framhaldi af þeirri hótun. Honum var þó sleppt nokkru síðar. Hallur Hallsson sagði á fundinum að þessar morðhótanir væru að sjálfsögðu leiðinlegar og þeim sem að stæðu lítt til sóma, en hann ítrekaði hins vegar á fundinum að þetta væri ekki háttur íslendinga og Keikó yrði vel gætt, jafnt í fluttningnum sem og í framtíðinni. Hann upplýsti og að líklega væru þetta sömu aðilar sem stæðu að öllum hótununum. Vel fylgst með fæðunni Blaðamenn á fundinum sem boð- aður var í kvöld höfðu og miklar áhyggju af því hvemig Keikó gengi að aðagast breyttu mataræði í Klettsvíkinn. Spurt var og um það hvort að ekki væri örugglega vel fylgst með því sem ofan í hann færi, sérstaklega í Ijósi drápshótananna. Því vai' til svarað að færustu sér- fræðingar í næringarfræðum og heilsufræði fæðunnar myndu sjá um að tryggja heilbrigða fæðu í hvalinn og tryggt í bak og fyrir livað ofan í hann færi. Allt bendir til að Keikó kom klukkan 10 í fyrramálið. Böm munu fylgja honurn á leiðinni með fána og klædd Keikóbolum. Frí verður í skólum í fyrramálið og eitthvað verður um frí frá vinnu. Fólk í ísfélaginu getur tekið sér frí ef það vill en rnælst er til að fólk í Vinnslustöðinni mæti. Þessir unglingar voru á bak viðlás og slá í Framhaldsskólanu á föstudaginn var, enda var verið að busa þá og betra að enginn slyppi frá þeirri manndómsvígslu.1 Fjórir krakkar f rá Vestmannaeyjum og Eskifirði á slóðum Keikós í Portland Rannsóknarsetur Háskólans í Vestmannaeyjum lætur ekki deigan síga varðandi komu Keikós til Eyja. Það er ljóst að þeir vilja fylgjast með ferð Keikós alla leið frá Oregon. í því skini fór forstöðumaður Rannsóknarsetursins Páll Marvin Jónsson til Oregon til þess að sjá hvemig flutningurinn færi fram og hvemig hvalnum reiddi af í háloftunum, en hann mun koma með Keikóvélinni til Vestmannaeyja. Páll Marbvin sagði að ferðin hafi gengið vel, þegar samband náðist við hann í úlpuverslun í Oregon. „Nei það er ekki kalt héma,“ sagði Páll Marvin. „Það er fínasta veður, hins vegar er betra að vera vel klæddur um borð í flugvélinni sem flytja mun Keikó til Vestmannaeyja og mér láðist að taka með mér góða úlpu.“ Auk þess fóm fjórir krakkar með Páli Marvin í boði Rannsóknar-setursins. Tveir þeirra eru frá Vestmanna- eyjurn, Rtkharður Öm Atlason úr Bamaskóla Vestmannaeyja og Guð- björg Erla Ríkharðsdóttir úr Hamars- skóla. Einnig var tveimur krökkum frá Eskifirði boðið í ferðina, þeim Önnu S Kristjánsdóttur og Hálfdáni Helga Helgasyni. Með krökkunum er og Bryndís Bogadóttir kennari við Bamaskóla Vestmanna-eyja. Ferð krakkana til Oregon er liður í því að viðhalda og koma á tengslum milli Oregon og Vestmannaeyja og Eskifjarðar og viðhalda ræktarsemi sem nýtast mætti krökkum í námi, jafnt á íslandi sem og í Oregon. Með það í huga mun Intemetið verða notað og krakkar sem sjá nú háhymingin góða halda til Vestmannaeyja munu því fá reglulegar fréttir af honum. Islensku krakkamir heimsóttu skóla í Oregon og kynntu Island og öfluðu sér heimilda um líf og aðstæður Keikós í Oregon og munu svo miðla til krakkana fregnum af Kekó í Klettsvíkinni í framtíðinn. Krakk- amir munu svo koma til Islands á mánudaginn. Ferðin er greidd af Rannsóknarsetrinu, en helmingur hótelkostnaðar er greiddur úr sjóðurn Free Willy Keikó samtakanna. frá laugardaga sunnudaga 8.00 tilkl. 19.00 9.00-19.00 10.00-19.00 Open saturdays sundays1 8.00 9.00 10.00 19.00 19.00 19.00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.