Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.1998, Blaðsíða 1
A 25. árgangur • Vestmannaeyjum 11. september 1998 • 37. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Anægður Inrersu
veltóksttil
-segir Bjarki Brynjarsson hjá þróunarfélaginu sem hafði yfirumsjón með
undirbúningi að komu Keikós í Eyjum
Bjarki Brynjarsson hjá
Þróunarfélaginu, sem er einn
þeirra mörgu sem borið hefur
hitann og þungann vegna
heimkomu Keikós. Hann
sagðist mjög ánægður með
hversu vel dagurinn hefði
heppnast í gær og flutningin á
Keikó. „Það komu ekki upp
nein óvænt atvik utan þess að
hjólabúnaður C-17
flugvélarinnar laskaðist í
Börnílfestmanna
eyjumlétuekkikuldanná
sigfáöegarKeikókom.
lendingunni.“
Bjarki sagði að fjölmiðlafójk
sem hann hefði talað við í dag
væri almennt mjög ánægt með
þá þjónustu og fyrirgreiðslu
sem þeir fengu í Vest-
mannaeyjum. „Það eru enn þá
nokkrir fréttamenn hér í
Eyjum og vegna þess var
ákveðið að hafa fréttamiðstöðin
í Básum opna í dag. Einnig er í
undirbúningi blaða-
mannafundur þar sem
starfsmenn kvíarinnar og
þjálfarar Keikós munu sitja
fyrir svörum og segja frá
hvernig hvalnum hefur reitt af í
kvínni.“
i
í
Bjami Sighvatsson, tl var einn fjölmargra gæslumanna sem sá um að
örvggiKeikósværitryggL
Engin gæsluvandamál
vegna komu Keikós
Samkvæmt upplýsingum lögreglu fór flutningur Keikós vel fram
og fólk til fyrirmyndar í einu og öllu vegna tímabundinnar lokunar
á götum í bænum. Tryggvi Kr. Olafsson lögreglumaður segir að
engin gæsluvandamál hefðu komið upp.
„Það gekk allt samkvæmt áætlun og tímaáætlanir stóðust eftir að
hvalurinn var kominn á vagninn sem flutti hann. Það þurfti ekki að hafa
afskipti af neinum og fólk var á þeim stöðum sem því var fyrirlagt að
vera á.“
Það voru félagar úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja sem sáu um
löggæslu og öryggsimál ásamt lögreglunni í Vestmannaeyju. Einnig
komu til Eyja sérþjálfaðir lögreglumenn til að fylgjast með og sjá um að
allt færi vel fram.
Flugvelin verður í fyrsta
lagi hreyfð á morgun
Flugvélin sem flutti Keikó til
Vestmannaeyja stendur ennþá
föst á flugvellinum en eins og
kunnugt er laskaðist hjóla-
búnaður liennar í lendingunni.
Nokkrar flugvélar lokuðust inni af
þessum sökum en flestar komust í
burtu í dag. Meðal þeirra var
Dornier vél frá Islandsflugi en
ennþá hefur ekki tekist að koma
einkaþotu Craig O. McCaw
stjórnarformanns Keikósjóðsins í
loftið. Samkvæmt síðustu fréttum
er ljóst að stóra þotan verður ekki
færð í dag og er óvíst hvenær af því
getur orðið. Á meðan er flug-
völlurinn lokaður að sögn starfs-
manna á flugvellinum.
Þetta ástand hefur í för með sér að
flestir sem hér voru vegna komu
Keikós fóru með Hetjólfi í morgun
en hann verður trúlega eina sam-
göngutækið meðan ekki rætist úr.
Erfitt hefur verið að henda reiður
á hvað í raun og veru gerðist en
vélin lenti á hægri hjólunum en
hún hafði mnnið um 50 metra eftir
flugbrautinni þegar hár smellur
heyrðist. Flugliði sem Fréttirræddi
við sagði að lendingin hefði á
engan hátt verið óeðlileg og alls
ekki harkarleg. Sagði hann að
trúlega hefði orðið bilun í búnað-
inum og var hann þakklátastur íyrir
að ekki skyldi kvikna í vélinni í
lendingu.
Vélin hafði runnið nokkra tugi metra eftir flugbrautinni begar skyndílega
hvað við hvellur og rjúka tók úr henni.
i
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481323
lY'J?') Vetraráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Mán - Lau Kl. 08:15 Kl. 12:00
Sunnudaga Kl, 14.00 Kl. 18.00
aukaferöir föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
Tleriólfur finíar /irZrd Sími4812800 Fax 4812991