Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Föstudagurinn 11. september 1998
Greindarvísitalaní
Ystakletti hækkar!
Gísli Víkingsson, helsti háhyni-
ingasérfræðingur Hafrannsóknar-
stofnunnar, var spurður að þvf í
viðtali í sjónvarpinu í vikunni hvort
háhyrningar væru skynsamar
skepnur. Ekki vildi Gísli gera mikið
úr gáfnafari þeirra en sagði að ef
meta ætti greind þeima væri hægt
að segja að greindarfar þeirra lægi
einhversstaðar á milli hunda og
apa.
Einhverjir gáurngar, trúlega úr
Bjargveiðimannafélaginu, voru
tljótir að grípa þetta á lofti og sögðu
að nú væri ljóst að greindarvísitala
Ysataklettsinga myndi hækka all
verulega eftir að Keikó yrði orðinn
íbúi í Klettsvíkinni.
Veröur fleiri
háhyrníngiim komiö
fyrir I Klettsvík
Á blaðamannafundi Free Willy
samtakanna síðdegis í gær kom
fram að alveg væri hugsanlegt að
fleiri háhyrningar yrðu fluttir til
Eyja og komið fyrir hjá Keikó í
Klettsvíkinni þannig að hann fengi
félagsskap.
Þá kom einnig fram á fundinum
að Free Willy menn horfðu til þess
að næsta skref í þá átt að veita
Keikó frelsi og sleppa honutn út í
náttúruna gæti orðið að stækka kví
hans þannig að öll Klettsvíkin yrði
kvíin. Net yrði á strengt milli
Ystakletts og Heimakletts til að
loktt Klettsvíkina af og þá væri kví
hans orðin nokkuð stór og skrefið
að fullu frelsi yrði styttra.
Keikó fékk heimsókn
ígær
Þegar blaðamannafundur Free
Willy samtakanna stóð sem hæst
síðdegis í gær fékk Robert Ratliffe
einn forsvarsmanna sanrtakanna
símhringingu og í framhaldi af því
tilkynnti hann að þjálfarar Keikós
úti á kvínni hefðu verið að hringja
og láta vita af því að Keikó væri
kominn í samband við aðra hvali.
Hnísa hefði sést við búrið og þau
hefðu verið að senda hljóðmerki sín
á milli.
Flugvirkjar
væntanlegirídag
C-17 flugvélin senr kotn með
Keikó í gær er enn föst á flug-
brautinni vegna þeimt bilana sem
urðu á henni. Flugvirkjar frá
bandaríska hernum sem komu til
landsins í morgun eru væntanlegir
til Eyja í dag til að skoða skemmdir
og meta framhaldið. Þar til þeirri
skoðun lýkur verður vélin ekki
hreyfð en að henni lokinni verður
ákveðið hvott gert verður við vélina
þar sem hún stendur eða hvort hægt
verður að færa hana til og opna
þannig flugvöllinn sem er lokaður
allri umferð.
Koma Keikós var vel
skipulagt sjónarspil
Fjölmiðlamenn urðu að sæna sig við langa bið á fluguelli í norðan
trekknum.
Mikill fjöldi fylgdist með á Básaskersbryggju bar sem búrinu var skípað
útáprammann.
Eftirvæntingin vegna komu há-
hyrningsins Keikós til Vestmanna-
eyja náði hámarki þegar
flutningavélin sem flutti hvalinn frá
Portland kom inn til lendingar. Allt
í kringum flugvöllinn voru hópar
fólks, bæjarbúar, gestir og síðast en
ekki síst fjölmiðlafólk frá öllum
heimshornum. sem var mest
áberandi. Beindi það myndavélum
og sjónvarpsmyndavélum að flug-
vélinni sem lenti rétt fyrir klukkan
tíu á fimmtudagsmorguninn. Það
fór því ekki á milli mála að
Vestmannaeyjar voru í sviðsljósi
heimspressunar, þar sem þrjú
stærstu nöfnin voru Clinton
Bandaríkjaforseti og Jeltsin forseti
Rússlands með sín vændræði og svo
Keikó sem kominn var til Islands
eftir tæplega 20 ára dvöl í Ameríku.
Þama mátti sjá fréttamenn frá Arg-
entínu, Bandaríkjunum, Norðurlönd-
um, Englandi auk íslenskra sem
gengdu mikilvægu hlutverki í að
konia sjónvarpsmyndum til allrar
heimsbyggðarinnar. Fyrir Vestmanna-
eyinga var þetta ný reynsla og þarna
sáu þeir fyrst hvað Keikó er stórt nafn
á heimsvísu og hvað flutningur hans
til Eyja hefur vakið mikla athygli.
Vegna bilunar á flugvélinni komst
hún ekki á tilætlaðan stað til af-
ferntingar og m.a. þess vegna tók
lengri tíma að losa farminn en ætlað
var. Fólk lét það ekki á sig fá og beið í
köldum norðan næðingi eftir því að
Keikó liti dagsins ljós í nýjum
heimkynnum. Þegar Keikó loks komst
út úr gvélinni var lítið annað að sjá en
búrið sem sett var á flutningavagn.
Miklar öryggisráðstafanir voru
gerðar á flugvellinum og var öllurn
haldið í ákveðinni fjarlægð frá Keikó
og giltu þær reyndar allt þar til Keikó
var kominn á sinn stað í kvínni í
Klettsvík. Eftir tafimar á flugvellinu
gekk flutningurinn að öllu leyti
snurðulaust. Bílalestin ók niður að
höfn og var fagnað af fjölda bama sem
biðu meðfram leiðinni sem farin var.
Á Básaskersbryggju beið pramminn
sem flutti Keikó síðasta hluta
leiðarinnar. Á prammanum, sent
lóðsbátarnir fóru með út í Klettsvík,
var krani sem hífði búrið um borð og
svo Keikó í kvínna. Gekk þetta
samkvæmt áætlun og um tvö leytið
var Keikó kominn á sinn stað í Kvínni
eftir langt og strangt ferðalag frá
Vesturströnd Bandaríkjanna sem
samtals hafði tekið um 16 klukkutíma.
Sjálfur virtist Keikó feginn að vera
loksins kominn „heim“ og tók strax
sundtökin og þáði undireins
matarbita.
Mikil eftirvænting ríkti þegar Keikó
var slakað niður í kvína. Á meðan
Keikó hékk í hengirúminu rótaðist
hann ekki en strax og hann fann fyrir
sjónunr tók hann við sér og mátti sjá
að mönnum létti. Ekki síst þjálfurum
hans sem fylgdu honum frá Portland.
Var greinilegt að þeirn var létt enda
vom þeir að sjá árangur margra
mánaða undirbúnings sem á allan hátt
gekk upp og var öllu sem að verkinu
komu til mikils sóma.
IngvaríSkogumá
blaðamanna-
fundinum
Það veltu rnargir því fyrir sér fyrir
hvaða fjölmiðil Ingvar Sigurjóns-
son. frá Skógum, væri að vinna er
hann mætti á blaðamannafund Free
Willy samtakanna í Kiwanishúsinu
síðdegis í gær. Ingvíæ fylgdist mjög
áhugasamur með öllu og ef hann sá
tvo ntenn eða fleiri á tali var hann
fljótur að stinga hausnum á milli til
að hlera, eins og góðra fréttamana
er siður.
Blaðamannafundurinn fór fram á
ensku, eins og gefur að skilja, enda
öll heimspressan á staðnum og sent
út frá fundinum unt víða veröld.
Fulltrúar bandaríska hersins, Free
Willy samtakanna og fleiri sátu
fyrir svörum og pressan spurði þá
grimmt unt hin ýrnsu atriði.
Undir lok fundarins kont fyrir-
spum um hvort gerðar hefðu verið
einhverjar ráðstafanir með ferðir til
lands þar sem flugvöllurinn væri
lokaður og því ekki hægt að komast
flugeiðis frá Eyjum. Guðlaugur
Sigurgeirsson, blaðafulltrúi Keiks
sem ekki var meðal þeirra sem sátu
fyrir svörum, var þá kallaður á pall
til að svara þeirri spurningu sem
hann gerði samviskusamlega.
Þegar Guðlaugur hafði lokið
svarinu rétti Ingvar upp hönd og
hóf upp raust sína á íslensku.
Sagðist hann vera með eina
spurningu til Guðlaugs. Hann vildi
vita hvað þessi flugvél yrði staðsett
lengi á krossinum á „flugvellinum
okkar" og hann vildi fá svar við
þessari spurningu og það á
íslensku.
Guðlaugur hrökk aðeins við, og
sjá mátti að það seig aðeins í hann.
Hann leit á Ingvar stórum augurn
en gekk svo fram í sal án þess að
segja orð. Nærstaddir heyrðu hann
hins vegar „úlkynna" Ingvari, þegar
hann gekk fram hjá honurn. að
þetta væri blaðamannafundur og
einungis þeir sem hefðu sérstakan
blaðamannapassa ættu að vera
þarna inni. Áðrir ættu að halda sig
utan dyra.
Robert Rattliffe, sem stjómaði
fundinum, brást hins vegar ótrúlega
fljótt við spurningu Ingvars.
Einhver snéri henni greinilega á
ensku fyrir hann, því hann vísaði
spumingunni umsvifalaust til
bandaríska hersins. Einn úr áhöfn
vélarinnar fór því í pontu og reyndi
að svara spumingu Ingvars, en
reyndar á ensku, svo ekki fékk
Ingvar svar á íslensku eins og hann
hafði krafist.
Sumarhappdrætti
Þroskahjálpar
Dregið var í suiruirhappdrætti
Þroskahjálpar og íþróttafélagsins
Ægis hjá sýslumannsembættinu í
Vestmannaeyjum 20. júní s.l. og
eftirtalin númer hlutu vinning: 173,
800, 378. 12, 965. 692, 20f, 335,
305.276,277,758,862.631 738,
og 681.
Vinninga skal vitja á Búhamri 72.
Frekari upplýsingar í síma 894
1344.
Þroskahjálp og íþróttafélagið Ægir.
Lundinn
í gagnið
Lundinn hefur nú opnað aftur
með nýjunt eigendunt. Stofnað
hefur verið hlutafélag um
reksturinn sem heitir Jos hf. Það
er Jón Ingi Guðjónsson sem mun
sjá um reksturinn. Jón Ingi segir
að stefnt sé að því að hafa opið að
deginum til og bjóða upp á létta
rétti. En um sinn mun þó
staðurinn verða opinn á
hefðbundnum tíma um helgar. Á
myndinni má sjá starfsfólk
staðarins ásamt Jóni Inga sem er
þriðji frá vinstri á myndinni.
FRETTIR
s
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugyallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar i 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.