Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.1998, Qupperneq 9
Fimmtudagur 10. september 1998
Fréttir
9
Séra Kristján Björnsson og séra Bára Friðriksdóttir nýju prestarnir í Vestmannaeyjum héldu sína fyrstu guðsþjónustu í Landakirkju á
sunnudaginn var. Prófastur Kjalarnespréfastsdæmis, dr. Gunnar Kristjánsson setti bau inn í embætti. MmsigurgeirJónasson.
Séra Kristján Bjömsson og séra
Bára Friðriksdóttir nýju
prestamir í Vestmannaeyjum
héldu sína fyrstu guðsþjónustu
í Landakirkju á sunnudaginn
var. Jafnframt setti prófastur
Kjalarnesprófastsdæmis, dr.
Gunnar Kristjánsson þau inn í
embætti. í spjalli við Fréttir
sögðust þau vera ánægð með
athöfnina og hversu
söfnuðurinn hefði verið
áhugasamur í messunni.
Yndæl stund og hátíðleg
„Þetta var mjög indæl stund og
hátíðleg," segir Kristján og Bára tekur
undir með honum.
„Eg var Ifka mjög ánægður, svona í
septemberbyrjun að fá á annað hundr-
að manns til kirkju. Það er mjög gott
fyrir okkur að byrja með þennan
fjölda og geta aukið hann. En þetta
var góð stund, almenn altarisganga og
góð þátttaka í messunni. Söfnuðurinn
svaraði líka mjög vel. Þetta er lifandi
kirkja. Ég fann það mest í predik-
uninni hversu fólk var með vakandi
athygli í messunni."
Kristján lagði útaf dæmisögunni um
miskunsama samverjann í predikun
sinni og einnig kom hann inn á
fótbolta í ræðu sinni. „Það var nú
kannski nokkuð veik tenging, en
snerist um það að okkur hættir til að
dæma. Við erurn lesendur eða áheyr-
endur að þessu guðsspjalli og manni
hættir til að dæma þann sem gengur
framhjá dauðvona manninum í veg-
kanntinum. Alveg eins og við dæm-
um leikmann út af vellinum án þess að
þora sjálf að setja okkur í þau spor. Ef
við værum sjálf á vellinum væri þetta
flóknari staða að vinna úr, heldur en
að vera upp á bekk og hrópa. Þetta er
líklega í annað sinn sem ég nota
fótbolta að einhvetju marki í predikun.
Hins vegar var forveri minn í
Breiðabólstaðarprestakalli, séra
Róbert Jack mikill fótboltaáhuga-
maður og meðal annars þjálfari hjá
Val. Það var sagt um hans prestskap,
að hann hafi aldrei flutt svo ræðu að
ekki væri nefndur fótbolti þar. annað
hvort í líkingamáli eða sögu. Hann
stóð til dæmis fyrir fótboltamessu, þar
sem hann auglýsti messu og bað fólk
um að taka með sér bolta, því það yrði
farið í fótbolta á eftir. Það er aldrei að
vita nema ég auglýsi fótboltamessu
einhvem daginn. Sjálfur kann ég hins
vegar ekkert í fótbolta."
Kristján hefur víða
komið við
Séra Kristján Bjömsson þjónaði síðast
í Breiðabólstaðarprestakalli, þar sem
hann þjónaði fjómm sóknarkirkjum
og ágætum söfnuði. „Ég og fjöl-
skyldan vorum búin að vera fyrir
norðan í níu ár. Ég vígðist að því
prestakalli í Hóladómkirkju 1989. Á
þessum tíma var ég við kennslu
jafnframt prestsstarfinu og kenndi
eðlisfræði og stærðfræði. Ég tók Iíka
fljótlega að mér að ritstýra Kirkju-
ritinu, sem gefið er út af Prestafélagi
íslands. Mér fannst líka betra að vera
í aukastörfum sem tengdust þá meira
kirkjunni, eða vom innan kirkjunnar á
öðmm sviðum. Ég var líka í full-
trúaráði Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Ég tók þátt í Prestafélagi Hólastiftis,
sem er mjög merkilegur félagsskapur
og var formaður þar núna síðast. Ég
var líka í skátunum og hjálparsveitum
skáta og eitt áhugamál sem ég hef
alltaf reynt að stunda, en það er
hestamennska.“
Séra Kristján segist einnig hafa
verið blaðamaður á Tímanum í tvö ár
áður en hann tók víxlu. þegar Indriði
G. Þorsteinsson var ritstjóri. „Það var
mjög skemmtilegur tími. Með
náminu var ég í lögreglunni í Reykja-
vfk, sendibílstjóri og í bygginga-
vinnu.“
Þig liefur ekki lcmgað til að halda
áfram blaðamennskunni?
,Jú mig blóðlangaði til þess og það
er meðal annars ástæðan fyrir því að
ég tók að mér ritsjóm Kirkjuritsins.
Þannig fæ ég svolitla útrás í útgáfu-
málum og skrifum."
Þú ert kannski góður og gegn fram-
sóknarmaður hafandi verið á
Tímanum?
„Ég er ekki í neinurn stjóm-
málafloki, vegna þess að ég held ég
hafi allt of sjálfstæðar skoðanir til þess
að rekast vel í flokki. Það er líka mjög
hagnýtt að geta myndað sér skoðanir í
hverju máli án þess að vera bundinn af
pólitík eða flokkahagsmunum. Ég vil
frekar geta tekið upp einhver ákveðin
mál óháð flokkum.“
Góð aðstaða
Hvernig fiiinst ykkur sú aðstaða sem
ykkur stendur hér til boða í
safnaðarstarfimi ?
, J>etta er mjög góð aðstaða sem þarf
reyndar að bæta við. Ég sé það fyrir
mér í fljótu bragði að það vanti
fræðslustofu og aðra skrifstofu. Við
ætlum að kappkosta að nýta þennan
húsakost vel og skipulega. Kirkjan
sjálf er mjög góð og og falleg, og
hæfir vel þessum stóra söfnuði."
Hafið þið staifað eitthvað saman
áður?
„Mjög lítið,“ segir Bára. „Við
höfum hist á æskulýðsmótum og
prestastefnum, en ekki þar fyrir utan.“
Kristján segir þetta kannski ekki
einfalt mál vegna þess að þau séu að
byggja upp samstarf og ákveðið
starfsmunstur í sama prestakalli. „Það
hefur ekki gefist annað eins tækifæri
til þess eins og núna. Kosturinn er sá
að við komum bæði á sama tíma. Við
höfum bæði ákveðna reynslu og
leggjum hana á borðið. Það eru líka
miklir kostir fólgnir í því að við erunt
tveir prestar sem þurfum ekki að fara í
sumarfrí á sama tíma.“
„Já það koma tvær fjölskyldur í
staðin fyrir eina," segir Bára. „Og
lífgar vonandi enn frekar upp á
mannlífið. Það fjölgar þá líka á-
skrifendum af Fréttum. Það eru líka
tvö prestsetur. sem er breyting sem er
að koma aftur síðan 1973. Þaðerhins
vegar mikil og sterk hefð hér í Eyjum
fyrir tveimur prestum."
En hvemig hyggistþið liaga samstarfi
ykkar?
„Við ætlum nú ekki að reyna að
finna upp hjólið,“ segir Kristján. ,J>að
er heilmikil saga og hefðir sem við
göngum inn í hér Eyjum.“
„Svo má ekki gleyma öðru
starfsfólki hér," segir Bára. „Við
göngum til samstarfs við það fólk og
erum þakklát fyrir að hér er fólk til
staðar sem hægt er að leita til.“
Bára þekkir návígið við
sjóinn
Bára er fædd og uppalinn í Hafnar-
firðinum og hefur búið þar það sem af
er. „Þannig erég úr útgerðarbæ og hef
verið í návígi við höfnina. Ég vann í
frystihúsi og hef verið á trillu. Ég hef
verið læknaritari og á elliheimili. Frá
1983 hef ég unnið í kristilegu starfi.
Meðal annars var ég í fimm ár hjá
Samhjálp. Frá 1989 byrjaði ég í starfi
innan kirkjunnar f bama- og
unglingastarfi og hef unnið við ýmsar
nýjungar í safnaðarstaifi sem verið
hafa að ryðja sér til rúms undanfarin
ár. Ég hef líka verið sumarbúðastjóri í
kristilegum sumarbúðum. stjómað
leikjanámskeiðum og kom á fót
mömmumorgnum í Laugarneskirkju
ásamt séra Bjama Karlssyni, þannig
að maður hefur komið víða við í þessu
kirkjulega starfi. Veturlangt starfaði ég
hjá félagsmálastofnun og kenndi sið-
fræði við Verzlunarskóla íslands."
Af hverju fórstu í guðfrœðina. Var
þetta einhver köllun?
„Ég fór í guðfræðideildina með það
í farteskinu að ég ætlaði aldrei að
verða prestur. Ég ætlaði meira í guð-
fræði námsins vegna og af áhuga.
Námið gerði mér mjög gott og hefur
aukið mér þroska og víðsýni og styrkt
trúargrundvöll minn. Hins vegar
þegar fór að líða á námið fór ég að
spyrja mig að því hvað ég ætlaði að
gera við mitt nánt. Þetta þróaðist svo
út í það að ég gat ekki hugsað mér að
gera neitt annað, en að verða prestur.
Þannig leiddi hvað af öðru og ég
komst ekki undan þessari kröfu.“
Eii þú Kristján er einhver ceðri köllun
sentdróþig íguðfræðina?
„Ég er nú af miklum prestaættum
og það hefur trúlega haft áhrif á mig
og mótað mig mikið. Það er líklega
ekki alveg út f hött þegar gamla fólkið
spyr hverra manna ertu, þá er verið að
átta sig á því hver vikomandi er. Þetta
ýtti á mig og margir sögðu við mig að
ég yrði líklega prestur. Ég var kannski
ekki allt of ákveðinn í fyrstu, eins og
störf mín í gegnum árin sýna. En svo
opnaðist einhver áhugi fyrir prestsskap
og fer harð ákveðinn út í það þegar að
því kemur. Það er eins og þetta starf
hér hafi allt í einu opnast. Ég get ekki
litið á það öðru vísi en sem köllun.
Þegar einhver möguleiki opnast að
komast hingað til starfa. hefur hvert
atvikið leitt af öðru svo maður er
sallarólegur yfir þessum breytingum.
Tilfinningin er meira sú eins og að
maður sé leiddur út í staifið “
Kristján segir að margt spennandi
sé fyrir þau að takast á við í jafn
stórum söfnuði eins og Landakirkja er.
„Maður fær meira að gera í sambandi
við barna- og æskuilýðsstarf. Mér
finnst að vaxtarbroddurinn í mínu stari
fyrir norðan hafi verið á þessu sviði og
hefur kannski aldrei staðið í jafn
miklum blóma ef svo má segja.
Þannig held ég að uppskeran hafi
verið góð og maður fær ákveðna
svörun til baka.“
„Þannig er þetta ekki ósvipað og í
fótboltanum," segir Bára. Ef maður
stendur ekki vel að baki æsku-
lýðsstarfmu fær rnaður ekki upp-
skeruna síðar. Það er æskan sem er
grunnurinn að öllu öðru starfi. Maður
sér þetta mjög skýrt í íþrótta-
félögunum. Grunnurinn að góðu
kirkjustarfi er að halda utan um
bömin."
Bára segist hafa núkinn áhuga á
fjölskyldunni og hafi unun af góðum
bókmenntum og skrif sjálf bæði
smásögur og ljóð og segist líka hafa
mikl ánægju af hannyrðunt. „En
kannski hef ég mestan áhuga á fólki.
sem er mjög nauðsynlegt í þessu
starfi.“
Einnig eru þau hjónin mikið
áhugafólk um skútusiglingar og er
Guðmundur eiginmaður hennar er ný
kominn úr hálfsmánaðar siglingu til
Skotlands með viðkomu í Færeyjum.
Eignmaður Báru heitir Guðmundur
Ásmundsson. Þau eiga eina dóttur
Önnu Guðrúnu sem er fimm ára. Bára
á einn son Halldór Levi frá fyrra
hjónabandi
Eiginkona Kristjáns er ættuð úr
Vallartúni í Eyjum og heitir Guðrún
Helga Bjarnadóttir. Þau eiga tvo
stráka, Bjama Benedikt og Sigurð
Stefán og em í Hamarsskóla. Krisján
á líka tvær dætur af fyrra hjónabandi,
Ólöfu og Kristínu Rut.