Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.1998, Qupperneq 10
10
Fréttir
Föstudagur 11. september 1998
Landa-
KIRKJA
Sunnudagur 13. september
Kl. 11.00 messa. Sr. Bára Frið-
riksdóttir predikar. Altarisganga.
Viðtalstímar prestanna í sal'nað-
arheimilinu eru alla virka daga.
Mánudaga kl. 17-18 og þriðju-
dagatil föstudaga kl. 11-12.
Síminn er48l 2916. Boðsími er
845 2834.
Sr. Kristján Bjömsson, sóknar-
prestur, býr í prestsetrinu að
Hólagötu 42. Síminn er481 1607
og farsfminn er 893 1606.
Sr. Bára Friðriksdóttir, prestur býr
til bráðabirgða að Áshamri 75.
Síminn er 481 3185. Framtíðar-
prestsetur hennar verður Smára-
gata 6, en símanúmerið er ekki
enn ákveðið.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Samkomuriiar verðu:
Fimmtudag kl. 20.30 samkoma
með Mike Bradley trúboða í
Ungverjalandi.
Föstudagur kl. 20.30 samkoma
ineðMike Bradley.
Laugardagur kl. 20.30 brotning
brauðsins, ræðumaður Mike
Bradley.
Sunnudagur kl. 15.00 vakn-
ingarsamkoma ræðumaður Mike
Bradley samskot tekin til
trúboðsins íUngverjalandi.
Allir hjartanlega velkomnir
Hvítasunnukirkjan
Aðventkirkjan
Laugardagur 12. september
Kl. 10:00 Biblíurannsókn.
Allir vclknmnir.
BahÁÍ SAM-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B
fyrsta föstudag hvers mánaðar kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
Biblían
talar
Sími
481-1585
HITACHI
Ævintýri líkast segir
bílstjóri Keikós
Halldór fékk haó mikiluæga hlutuerk að aka Keikó frá fluuelli að Bása-
skersbniggju.
Kcikó er að koma ómaði um alln
bæ í gær og greinilegt að börninn
voru vel með á nótunum þegar
Kcikólestin kom niður Heiðarveg-
inn. Allir vildu vera þátttakendur í
þessum heimsviðburði.
Samt mátti heyra á mörgum að ekki
sæist hvalurinn og olli það mörgum
vonbrigðum. Skýringar voru samt
nægar en allir samt með á hreinu að
þessi flutningur væri ekki plat. „En
hvað er í kassanum?" ómaði samt og
fólk vildi sjá, þó ekki væri nema ugga.
Var furða þó að fólki væri spurn í
annari eins uppákomu og flumingur
Keikós til Eyja var. Þrátt fyrir vel
bónaðan bílinn þakinn auglýsingum
sem renndi niður Heiðarveginn með
hvalinn var spenningur í loftinu og
löngun til að fá meira að sjá.
Fjölmennið sem fylgdist með fékk
þó sjónlöngun sinni svalað þegar
kassinn var hífður um borð í pramm-
ann sem lá bundinn við Básaskers-
bryggju, því þá hallaði kassinn það
mikið að bak hvalsins sást lítilega og
staðreynd að Keikó var í kassanum en
ekki einhver hugmynd um Keikó.
Halldór Gíslason sem ók bifreiðinn
með hinum dýrmæta farmi sagði að
þessi flutningur haft verið ævintýri
líkast. „Þetta var náttúrulega mikil
ábyrgð sem ég tókst á hendur og
kannski gerði ég mér ekki alveg grein
fyrir stærðinni og umfanginu þegar ég
ákvað að taka þetta að mér. En þetta
tókst mjög giftursainlega og ákveðinn
léttir að þessu skuli vera lokið.“
Halldór er ekki að flytja milljóna-
dæmi fyrsta skipti á löngum
bflstjóraferli sínum. ,,Eg hef verið við
ýmsa flutninga á æfinni, en aldrei flutt
neitt þessu líkt. Ég var hins vegar
aldrei í neinum vafa með að Keikó var
í kassanum, enda einn fárra sem fékk
að kíkja ofan í hann,“ sagði Gísli
Atvinna
Getum bætt við okkur starfsfólki í
fiskvinnslu.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma
488 8000.
Vinnslustöðin hf.
Árnað heilla
Foreldrar okkar Pétur Sveinsson og
Henný Dröfn Ólafsdóttir urðu 50 ára
núna 9.9. og 9.10.
Af því tilefni ætla þau að halda veislu í
Akóges föstudaginn 11. Sept. kl. 20.00
og bjóða þau vini og velunnara
velkomna að samfagna þeim.
Bömin.
Fjögur ■ banda-
rísk fengu að sjá
heimkomu Keikós
Nan Marr frá Jean-Michel
Coustau stofnuninni kom frá
Santa Barbara var hér með
fjögur bandarísk börn sem
fylgdust með komu Keikós til
Vestmannaeyja.
Stofnunin einbeitir sér að því að
sameina jarðarbúa í að varðveita
heimshöfin. Er í því sambandi reynt
að höfða til allra ráðandi afla hvar
sem er í heiminum. Nann Mar sagði
í samtali við Fréttir að hún hefði
fýlgst með Keikó í nokkur ár og
sagði það merkilegan hlut hvað
myndin Free Willie hefði vakið
sterkar tilfinningar, sérstaklega hjá
bömum. ,JLöngu áður en Free
Willie Keikó sjóðurinn var
stofnaður vom böm farin að senda
framleiðundum myndarinnar
peninga til að hægt yrði að frelsa
háhymingin," segir Nan „En við
emm ekki aðeins að leyfa
bömunum að kynnast Keikó því við
viljum að þau fái að kynnast
náttúrinni á sem flestum sviðum."
Jean-Miehel Coustau stofnunin
er nefnd eftir stofnanda hennar
Jean-Michel Coustau sem var
heimsfrægur fyrir gerð mynda um
lífið í sjónum. Stofnunin starfar
báðum megin Atlantshafsins og
hefur sonur Jean-Michel Coustau
tekið upp merki hans og veitir henni
forstöðu.
Nýtt gistíheimlli, Nlaría uar opnað í Vestamannaeyjum sunnudaginn. Það eru
Maria Tegeder, Guðlaugur Friðhórsson, Hólmf ríður Björnsdóttir og Sæuar
Sueinsson sem standa fyrir rekstrinum. Þau hafa ekki staðið í
gistiheimilarekstrí áður, en segjast hafa faríð út í hennan rekstur.
Dagur hafsins á laugardaginn
Árið 1998 var valið ár hafsins. Þetta
var gert í alþjóðlegu samhengi til að
vekja athygli á hafinu sem
umhverfi, þeim vandamálum sem
að því steðja á ýmsan máta og því
fjölbreytilega lífríki sem það
fóstrar. I tilefni af því hafa verið
settar upp margar sýningar og
ráðstefnur um allan heim til að
kynna hafið og lífríki þess.
Laugardagurinn 12. september hefur
síðan verið valinn alþjóðlegur dagur
hafsins. Af því tilefni hafa
Rannsóknasetrið í Vesmianneyjum og
Náttúrugripasafn Vm. ákveðið að
standa fyrir kynningu á hafinu
umhverfis ísland og lífrfki þess í
Náttúrugripasafninu. Ýmiskonar
kynningarefni verður hengt upp til
sýnis og skoðunar í safninu frá 12 -
ló.september.
Niðurstöður úr lundaverkefni
grunnskólanema í Vestmannaeyjum
verða kynntar, en verkefnið vann til
fyrstu verðlauna íkeppni Hugvísis s.l.
vor og verður kynnt á
umhverfisráðstefnu íBerlín íhaust. Þá
verða teikningar úr teiknisamkeppni
bama, sem Rannsóknasetrið og Nátt-
úrugripasafnið hafa efnt til, sýndar í
safninu. Vestmannaeyingar og aðrir
eru hvattir til að koma og kynna sér
efhi sýningarinnar og í leiðinni safnið,
sem ávallt hefur upp á margt
skemmtilegt að bjóða.. Aðgangur að
safhinu verður ókeypis þessa daga.
Fréttatilkynning.