Fréttir - Eyjafréttir - 24.09.1998, Síða 4
A
Fréttir
Fimmtudagur 24. september 1998
t) ttrétitu'
í síðustu viku
skoraði Elsa Valgeirs-
dóttir á Aðalheiði
Halldórsdóttur (Kaju)
að taka við sem hún
gerir Jiér með.
„Eg vil þakka Elsu
fyrir áskorunina en
bendi henni jafnframt á að ef hana vantar
eitthvað frá mér þá þarf hún ekki að nota
bæjarblöðin til að ná í mig. En hér kemur
uppskriftin sem hún er að sverma eftir.
Partýpottréttur:
2 Vi kg nauta eða lamba gúllas
4-6 laukar
2 tsk. karrý
3 tsk. paprikuduft
Vi tsk. pipar
1 flaska mangó
1 Vi kg sveppir
1 'A dós ananas + safi
2 rauðar paprikur
2 grænar paprikur
2 pelar rjómi
sósuþykkni
Steikið kjötið á pönnu, setjið það í pott
og sjóðið í vatni í eina klst. Steikið
sveppi, papriku og lauk og setjið út í
pottinn ásamt kryddi, mangói og ananas.
Látið sósuþykkni eftir þörfum og síðan
rjóma. Þetta er bæði fljótlegt og auðvelt í
framkvæmd. Berið fram með hns-
grjónum sem gott er að bragðbæta með
pítusósu og maísbaunum. Einnig er gott
að hafa gróft salat og brauð með.
Mig langar til að skora á vin minn og
skólabróður, Astþór Rafn Pálsson sem
búinn er að elda súpu fyrir svarta gengið í
mörg ár. Eg veit líka að Astþór er
höfðingi heima að sækja. Því skora ég á
Rabbabara að redda góðri uppskrift í
næsta blaði."
Aðalheiður Halldórsdóttir
(Kaja) er sælkeri þessarar viku
0 t ð S P 0 T
Lundaballið um slðustu helgi þótti
takast með eindæmum vel. Reyndar
þótti gestum jafnt sem gestgjöfum eitt
atriði skyggja á framkvæmdina og það
var húsnæðið. Fólk hafði á orði að það
væri orðið langþreytt á að allar stærri
samkomur í þessum bæ þyrfti að vera
með I íþróttasal, sem þrátt fyrir að vera
ágætur til síns brúks hentar afar illa
sem skemmtistaður. Margir vilja sjá
bæjarsjóð koma að þessu máli og bent
er á að það yrði til að efla félagslíf og
þjónustu við bæjarbúa ef skemmti-
staður, sem stæði undir nafni, yrði til í
bænum. Aðrir eru sjálfsagt ekki eins
ákafir í að sjá skattpeningana sína
notaða í að byggja upp öflugra
skemmtanalíf I Eyjum og hægt er að
ímynda sér ýmislegt gagnlegra sem
nota má aurana í. Það er svo aftur
athugandi hvort ekki borgar sig best að
halda stærri skemmtanir Eyjamanna á
höfuðborgarsvæðinu. Þar eru hús sem
taka tilskilinn fjölda og nóg er af Eyja-
mönnunum þar.
Nú mun vera ákveðið að Herjólfur fari í
slipp til Danmerkur 14. október næsL
komandi og komi aftur 4. nóvember. I
framhaldi af þessu hefur veðurstofa
Orðspors sent frá sér langtímaspá fyrir
umrætt tímabil. Spáin nær bæði til
veðurs í venjulegum skilningi svo og
andlegs veðurfars bæjarbúa, og hljóðar
upp á svarta þoku á tímabilinu 14.
októbertil 4. nóvember. Vonlítið verður
með flug þessa daga og búist við
almennu þunglyndi íbænum.
Hjá Svarta-genginu hefur tíðkast að
þegar menn fara utan koma þeir með
koníakspela næsta sunnudagsmorgun
í gönguna. Nú sjá menn þar á bæ fram
á bjarta sunnudaga því Sigurður Ingi er
á Isleifi sem á næstunni ku landa í
Færeyjum. Gengið skilgreinir hvert
skipti sem farið er út fyrir 200 mílurnar
sem utanlandsferð og krefst því pela í
hvert sinn sem það gerist. Munu þeir
hafa fullan hug á að komast í
skipsdagbókina til að hafa þessi mál á
hreinu.
Smáar
Til sölu
Til sölu er KORG hljómborð á kr.
80.000 og heimastúdíó + hljóðnemi
á kr. 80.000. Þarf að seljast strax.
Upplýsingar í síma 481 2I47
Auglýsingasíminn er
481 3310
Faxið
481 1293
Netfangið
frettir@eyjar.is
STLIKT LOÐNA PLST
Knattspyrnuvertíöinni er að Ijúka þessa dagana. Yngri
flokkarnir hafa margir hverjir náð góðum árangri í
sumar. 3. flokkur karla endaði í 2. sæti í 1. deiid og 2.
flokkur karla náði 1. sæti í sinni deild og vann sig upp í
1. deild. Einn afþessum knáu leikmönnum 2. og 3.
flokks er Gunnar H. Þorvaldsson og hann var svo
sannarlega á skotskónum í sumar, skoraði alls 50
mörk með 3. flokki eða að meðaltali rúm þrjú mörk í
leik! Gunnar er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Fullt nafn? Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Fæðingardagur og ár? 1. apríl 1982.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Bý í foreldrahúsum ásamt þremur systkinum
Menntun og starf? Er nemandi á hagfræðibraut í FÍV.
Laun? Engin eins og er.
Helsti galli? Það skulu aðrir meta.
Helsti kostur? Það meta aðrir líka.
Uppáhaldsmatur? Steikt loðna að hætti pabba.
Versti matur? Sveppir, lifrarpylsa og svoleiðis.
Uppáhaldsdrykkur? Aquarius.
Uppáhaldstónlist? Er eiginlega alæta á tónlist.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að skora
mörk.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að
taka til í herberginu mínu.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Kaupa
nýjan Hyundai Coupé.
J
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Lúðvík Bergvins.
Uppáhaldsi'þróttamaður? Davor Suker. (Svo fékk ég 50 kall
fyrir að segja Björgvin bróðir)
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Já, ÍBV.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Simpsons og South Park.
Uppáhaldsbók? Ég hef nú aldrei klárað að lesa neina bók. Ætli
það breytist ekki í skólanum í vetur.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika og hreinskilni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Falskir náungar.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ætli það sé ekki
herbergið mitt þegar nýbúið er að taka til í þvi.
Hvað ert þú búinn að vera lengi í fótboltanum? Ég byrjaði held
ég fimm ára.
Stundarðu einhverjar aðrar íþróttir? Já,
frjálsar en fótboltinn er skemmtilegri.
Hver er stefnan í f ramtíðinni? Reyna að
komast í atvinnumennsku í fótbolta.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir
óessi orð?
-Fótbolti? Skemmtileg íþrótt.
-ÍBV? Frábært félag.
•Þrenna? Leikirnir í sumar.
Eitthvað að lokum? Hvet alla sem geta til
að mæta á leikinn á laugardaginn.
Afram IBV.
Gunnar H. Þorvaldsson
er Eyjamaður vikunnar
NYFfEDDIR VESTMfiNNfiEYINQBR
Þann 14. september eignuðust Bylgja Dögg Guðjónsdóttir og Óskar Þór
Kristjánsson dóttur. Hún vó 14 merkur og var 53 sm að lengd. Á
myndinni með litlu systur eru fv. Birgir Davíð og Kristján Valur.
Þann 15. september eignuðust Bryndís Guðmundsdóttir og Grímur
Gíslason son. Hann vó 14 merkur og 53 sm. Á myndinni með litla bróður
eru Gísli og Erna Ósk. Ljósmóðir var Drífa Björnsdóttir.
z?--------
CLGflwtÍ
26. september Úrslitaleikur ÍBV - KR í Frostciskjólinu
26. september Geirmundur í Týsheimilinu
14. október Herjólfurfer í slipp til Dcmmerkur
4. nóvember Herjólfur kemur afturfrá Danmörku
Veggfánarm/íslenska
fánanum
15% staðgreiðsluafsláttur
rr
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA