Fréttir - Eyjafréttir - 01.10.1998, Síða 1
Velkomin í heimsókn!
430 sjómenn
Sjómannslíf, sjómannslíf, draum-
ur hins djarfa manns... orti Ási í
Bæ forðum. Sjómenn í
Vestmannaeyjum munu um
ókomna tíð gegna lykilhlutverki í
okkar sjávarplássi. í dag eru
fastráðnir sjómenn á
Eyjaflotanum hvorki fleiri né færri
en 430 eða tæplega 10% af
heildarfjölda Vestmannaeyinga.
Eyjaflotinn meO
fjóranng
loanukvótans
Nýi Lóðsinn verður til sýnis á laugardaginn. Hann var smíðaður í Skipa-
lyftunni í Vestmannaeyjum, til hægri má sjá gamla Lóðsinn.
Skipum sem eru með skráða
heimahöfn í Vestmannaeyjum er
úthlutað hvorki meira né minna
en tæplega fjórðungi loðnukvót-
ans, eða 24,2%.
Þá hefur Eyjaflotinn yfir að ráða
19,8% af síldarkvótanum, 18%
af humarkvóta, 16,4% af ýsu,
15% af ufsa og 7,3% af þorski.
Samtals er úthlutað aflamark
skipa í Eyjaflotanum fyrir
fiskveiðiárið sem er nýhafið, þ.e.
1. september 1998 til 31. ágúst,
42.303.811 tonn.
Á laugardaginn eru allir bæjarbúar velkomnir að kynna sér útgerð, fiskvinnslu, fiskimjölsverksmiðju, Eyjaís og Lóðsinn.
Kosta smiai
hafrann-
sóknaskíps
íslenskir útvegsmenn eru í farar-
broddi íslensks sjávarútvegs og
stuðla að margþættum rann-
sóknum, menntun og fræðslu á
sviði hans. Sérmenntuðu fólki á
ólíkum sviðum sjávarútvegs
fjölgar. Hafrannsóknir eru
nauðsynlegar til að afla sem
gleggstra upplýsinga um lífið í
sjónum en nú þegar hafa
íslenskir útvegsmenn samþykkt
að kosta smíði hafrannsókna-
skips. Það er hlutverk íslensks
sjávarútvegs að styrkja
hafrannsóknir og þróun vísinda á
sviði sjávarlíffræði og
hafrannsókna.
Heimboð vestmanneyskra útvegsbænda á laugardaginn frá kl. 15-18 í 5 skip í Eyjaflotan-
um, í vinnslusal (sfélagsins, fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar og Eyjaís.
rm rið 1998 er AR HAFSINS.
f _ 1 Útvegsbændur í Vest-
mannaeyjum ætla á laugar-
daginn, frá kl. 15 - 18, að bjóða
Vestmannaeyingum í heimsókn
í nokkur skip í Eyjaflotanum, í
vinnslusal ísfélagsins, fiski-
nijölsverksmiðju Vinnslustöðv-
arinnar, Eyjaís og nýja Lóðsinn.
Hér er um að ræða einstakt
tækifæri fyrir alla bæjarbúa til
að koma um borð í frystitogara,
loðnuskip, vertíðarbáta, skoða
vinnslusal með nýjustu tækni,
fiskimjölsverksmiðju sem upp-
fyllir ströngustu reglugerðir um
mengunarvarnir og verksmiðju
sem framleiðir ís í bátaflotann.
Skipin 5 og Lóðsinn munu verða
til sýnis við Binnabryggju í
Friðarhöfn gegnt Vinnslustöðinni.
Sjómenn taka á móti fólki og
skýra út það sem fyrir augu ber.
Veitingar verða urn borð, tóniist
o.fl. I Isfélagi, Vinnslustöðinni og
Eyjaís mun starfsfólk taka á móti
gestum og leiða ykkur í allan
sannleika um framleiðsluna.
Veitingar verða á þessum stöðum
og um borð í bátunum verða
fræðslumyndir um sjávarútveg í
sjónvarpstækjum.
Fyrir skömmu hleypti Lands-
samband íslenskra útvegsmanna
af stokkunum fræðsluátaki sem
kynna á nokkur grundvallaratriði
fiskveiða og fiskveiðistjórnunar
fyrir almenningi. Atakinu er ýtt úr
vör í tilefni af ári hafsins og
vonast er til þess að það muni
glæða áhuga og auka þekkingu
landsmanna á undirstöðuatvinnu-
vegi íslensku þjóðarinnar.
Afkoma okkar byggist á fisk-
veiðum. íslenskir útvegsmenn
telja mikilvægt að Islendingar hafi
glögga mynd af viðfangsefnum
sjávarútvegs, möguleikum hans og
þýðingu fyrir þjóðarbúið. Útvegs-
mönnum þykir það einnig miklu
varða að landsmenn hafi þekk-
ingu á því með hvaða hætti
verðmætasköpun í útveginum
verður til; á veiðum og vinnslu og
við hvaða aðstæður íslensk
útvegsfyrirtæki búa með tilliti til
alþjóðlegrar samkeppni. Að auki
er mikilvægt að kynna hvernig
veiðum er stjórnað til þess að
tryggja skynsamlega og hag-
kvæma nýtingu mikilvægustu
auðlindar íslensku þjóðarinnar.
Vel rekin útvegsfyrirtæki auka
almenna hagsæld á Islandi. Þau
hleypa lífi í verslun og þjónustu
og skapa fjölda atvinnutækifæra.
Sjávarútvegurinn er undirstaða
atvinnulífs á landsbyggðinni.
Útgerð, fiskvinnsla og skyid
atvinnustarfsemi verður í fyrir-
sjáanlegri framtíð uppistaðan í
atvinnulífi Vestmannaeyinga og
flestra byggðarlaga allt í kringum
landið.
mmmm
Á morgun, föstudag, verður dreift getraunablaði til
grunnskólanema í tilefni af ÁRI HAFSINS og heimboði
útgerðar og fiskvinnslu á laugardaginn í
Vestmannaeyjum frá kl. 15-18. Allir krakkar eru boðnir
sérstaklega velkomnir í fylgd með fullorðnum um borð í
bátana og í ísfélagið, Vinnslustöðin og Eyjaís.
Svarið spurningunum á getraunablaðinu sem þið fáið í
skólanum á morgun og skilið vel merktum í kassa um
borð í einhverjum af bátunum sem verða til sýnis. Dregið
verður úr réttum svörum.
í vinning eru þrír tölvuleikir og 20 bolir.