Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1998, Blaðsíða 16
FLUTNINGAR • VESTMANNAEYJUM
Dcglegar ftriUr hvtrt á fmd t*m *r.
Vöruaffgreiðsla
Sldldingavegi 4 Simi 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík
AðaHffiitiilngar Héðiosgöfu 3
Síni 581 3030
Imex hætor rekstri
Nú liggur fyrir að fmex hf. er hætt
rekstri en starfsemi félagsins hefur
legið niðri frá því í sumar. Osk um
gjaldþrotaskipti félagsins verður
sent Héraðsdómi Suðurlands í dag.
Saga félagsins nær til ársins 1996
þegar sjö einstaklingar í Vest-
mannaeyjum stofnuðu iðnfyrirtækið
Imex hf. til frantleiðslu á hurðum á
Þýskalandsmarkað. Fyrstu mánuðina
starfaði félagið í leiguhúsnæði í
Mosfellsbæ en flutti síðar til
Vestmannaeyja í húsnæði sem var að
miklu leyti endurbyggt af ímex.
I frétt frá ímex segir að af ýmsum
ástæðum hafi fjárfesting og reksturinn
ekki gengið eins og áætlanir og áform
stofnendanna gerðu ráð fyrir. Astæður
fyrir því eru að áætlanir um kostnað
við tjárfestingu í fasteign, vélum og
tækjum stóðust ekki auk þess sem
flutningurinn til Eyja varð fjárfrekari
en gert var ráð fyrir.
Einnig segir að markaðs- og gæða-
mál ltafi verið verr á vegi stödd en
gert var ráð fyrir. „Þróun fram-
leiðslunnar var ekki lokið eins og til
stóð þegar af stað var farið. Þýska
markið hefur fallið verulega gagnvart
íslensku krónunni frá því að ákvörðun
um stofnun félagsins var tekin," segir
í fréttinni.
Fram kemur að eigendur félagsins
haft lengi, en með mestum þunga
síðustu vikumar leitað leiða til að
finna rekstrargrundvöll fyrir félagið
og m.a. reynt að fá að því sam-
starfsaðila en það haft ekki tekist.
„Þetta var tilraun til að hefja út-
flutningsframleiðslu á iðnaðarvömm í
Vestmannaeyjum og til að auka
fjölbreytni í atvinnulífinu. Hefði þetta
verið mjög spennandi hefði það
gengið eftir.“
Ekki kemur fram í fréttinni hvað
skuldir félagsins er miklar og óvissa er
unt verðmæti eigna þess. „En ljóst er
að andvirði eigna nær engan veginn til
að mæta skuldum og því miður verða
ýmsir viðskiptaaðilar og eigendur
fyrir fjárhagslegu tjóni.“
GunnarSteinná
Úlympíuleikana
ístærðfræði
Gunnar Steinn Magnússon,
nemandi í Framhaldsskólanum
hefur tryggt sér þátttökurétt í
Olympíuleikunum í stærðfræði.
Gunnar Steinn tók þátt í und-
ankeppni fyrir leikana og er meðal 20
sem komast áfram. Keppnin nær til
framhaldsskólanema um allt land. Er
þetta í fyrsta skiptið sem nemandi í
FIV nær þessum áfanga.
Halldór Hallgrímsson, staðarhaldari Landakirkju virðir fyrir sér
ummerki eftir bruna í kirkjunni á sunnudaginn. Þá mátti litlu
muna að eldurinn næði að breiðast út. Sjá bls. 2.
Hlutu Fréttabikarana 1998
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 16 ára og Bryndís Jóhannesdóttir 17
ára fengu Fréttabikarana fyrir góða frammistöðu með yngri flokkum
ÍBV í sumar. Gunnar lék með 3. flokki og 2. flokki og skoraði 50
mörk. Bryndís lék með 2. og meistaraflokki kvenna og lét mikið að
sér kveða í báðum. Gunnar Heiðar og Bryndís eru góðir fulltrúar
ungs íþróttafólks í Eyjum og vel að þessari viðurkenningu komin.
Sighvatur ífylgdarliði
/ /
Olafs Ragnars forseta á Italíu
Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar og
stjórnarformaður SIF, er í fylgdarliði Olafs Ragnars Grímssonar
forseta Islands sem er í opinberri heimsókn á Italíu.
Vegna anna komst Sighvatur ekki fyn- en í gærmorgun og var að stíga upp
í flugvél þegar Fréttir náðu sambandi við hann. Hann sagðist fara í þessa ferð
sem fulltrúi SÍF. Það væri það vel við hæfi því á Ítalíu væri einn helsti
markaður félagsins sem er stærsti útflytjandi landsins á saltfiski.
„Á fimmtudaginn (í dag) hittiim við forseta Ítalíu og á föstudaginn hittum við
forsætþsráðherrann í Napólí. Ég lít svo á að þessi heimsókn skipti miklu máli
fyrir SÍF. ítalir líta upp til þjóðhöfðingja og þeir eru mjög spenntir fyrir að
hitta Ólaf Ragnar. Auk þess er forsetinn mjög áhugasamur um öll viðskipti,“
sagði Sighvatur.
RlO kaffl 500 gr.
Colombia kaffi 500 gr.
Diletto kaffi 500 gr.
ABmjÓlklltr.
LGG +
.pk. kM49,-
pr. pk. ktr4T9,-
pr. pk. kKí458,-
pr. Itr. kt429,-
pr. pk. kt£42,-
396,-
444-
424-
114-
224-