Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1999, Qupperneq 6
6
Fréttir
Miðvikudagur 16. júní 1999
íslenska vindorku-
félagið í burðaiiiðnum
Á fundi stjórnar Bæjarveitna sl.
föstudag var lögð fram tillaga að
stofnun einkahlutafélags til að
standa að nýtingu vindorku til
orkuframleiðslu.
Stofnfélagar verða Selfossveitur og
Bæjarveitur Vestmannaeyja. Stofnun
þessa félags er m.a. forsenda fyrir
styrkveitingu til verkefnisins frá er-
lendum aðilum til að skapa möguleika
á aðild fleiri aðila í framkvæmd þess.
Stofnfundur félagsins verður væntan-
lega síðar í þessum mánuði en
stofnsamningur liggur þegar fyrir, svo
og helstu samþykktir. Stofnframlag
hvors aðila verður í upphafi 500
þúsund kr. og framkvæmdastjórar Sel-
fossveitna og Bæjarveitna Vest-
mannaeyja verða aðalmenn í stjórn
hins nýja félags en nafn þess verður
Islenska vindorkufélagið ehf.
Friðrik Friðriksson, veitustjóri í Vest-
mannaeyjum, segir að tilgangur
félagsins sé, eins og nafnið bendir til,
nýting vindorku og önnur starfsemi
sem tengist orkuöflun, orkunýtingu
eða úrvinnslu annarra verðmæta,
þ.m.t. heildsala og smásala orku.
Félagið mun í framtíðinni sjá um öll
orkukaup þessara tveggja byggð-
arlaga. Stofnun þess er m.a. svar við
þeim miklu breytingum sem eru að
gerast í orkumálum landsmanna með
hinum nýju raforkulögum sem taka
munu gildi áður en langt um Iíður, að
sögn Friðriks.
Keikó iftið fyrir að sýna sig
Ferðir eru með PH Viking út að kvínni en Keikó er lítið fyrir að sýna sig.
í gildi er samningur milli ferða-
mannabátsins PH-Vikings og
Ocean Futures um skoðunarferðir
að kví Keikós. Sá hængur er á
þessu fyrirkomulagi að Keikó er
ekki alltaf tilbúinn að sýna sig þegar
ferðamennirnir birtast.
Hallur Hallsson, talsmaður OF á
Islandi, segir að menn hafi ekki enn
náð að útfæra með hvaða hætti verður
hægt að koma til móts við ferða-
mennina. „Þessi mál eru í skoðun og
af okkar hálfu er fullur vilji til að
koma til móts við óskir fólks um að
sjá Keikó,“ segir Hallur. „Það hefur
ekki gengið nægilega vel. Keikó er
orðinn meira í eigin heimi en okkar og
er meira í kafi en áður.“
Hallur segir að nú þurfi menn að
stilla saman strengina þannig að meiri
líkur séu á að Keikó skjóti upp
kollinum þegar PH-Viking kemur að
kvínni. Veturinn var erfiður en vinnan
við Keikó gengur vel og honum líður
vel að því er kemur fram hjá Halli.
„Við erum að venja hann af fólki og
þjálfunin er erfið. Það er auðvelt að
stíga skref til baka og þess vegna m.a.
höfum við takmarkað ferðir frétta-
manna í kvínna. Samt sem áður
höfum við mótað þá stefnu að Keikó
verður sýnilegur ferðamönnum. Ég
vona að það takist því við viljum gott
samstarf við forráðamenn PH-
Vikings,“ sagði Hallur.
IBV-lþróttafélag: Samstarfssamningur við Islandsbanka
ÍSLANDSBANKIOG ÍBV-ÍÞRÓTTAFÉLAG undirrituðu í síðustu viku samstarfssamning sem gildir
til loka árs 2001.
Samningurinn nær til allrar starfsemi ÍBV-Íþróttafélags, knattspyrnu og handbolta kvenna og karla
og einnig er tiltekin ákveðin upphæð til unglingastarfs í báðum greinum.
Sigurður Friðriksson þjónustustjóri íslandsbanka í Vestmannaeyjum, segir að þessi
samstarfssamningur sé mjög góður fyrir báða aðila. íslandsbanki sér fram á betra og nánara samstarf
við íþróttahreyfinguna. Ég tel að með þessu móti geti báðir aðilar haft stuðning hvor af öðrum. Er þá
horft til nánara samstarfs á fleiri sviðum en hingað til hefur verið gert. Eins horfum við fram á að hægt
verði að efla unglingastarf félagsins enn frekar,“ sagði Sigurður.
Þór Vilhjálmsson, formaður IBV-íþróttafélags, tók í sama streng og sagði að samningurinn ætti að
auðvelda öll samskipti félagsins við bankann. „Hérna eru samankomnir allir styrkir bankans til félagsins
í einn pakka sem kemur báðum aðilum til góða. Ég vil lýsa ánægju minni með samninginn og vonast svo
eftir áframhaldandi góðu samstarfi við Islandsbanka,“ sagði Þór.
Frá undirskriftinni, Jóhann Pétursson og Þorsteinn Gunnarsson frá ÍBV, Sigurður Friðriksson frá
Islandsbanka, og Þór Vilhjálmsson og Birgir Guðjónsson frá ÍBV.
Lánatryggingasjóður kvenna
Meginmarkmið Lánatryggi ngasjóðs kvenna er að styðja konur
til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að
helming lána sem þær taka hjá íánastofnun til að fjármagna
tiltekið verkefni.
Abyrgðin er veitt á grundvelli mats á arðsemi viðskipta-
hugmyndarinnar.
Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári, febrúar og júlí.
Lánatryggingasjóður kvenna er tilraunaverkefni til þriggja ára.
Að verkefninu standa félagsmálaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið
og Reykjavíkurborg.
Skilyrði fyrir ábyrgðarveitingu eru m.a. eftirfarandi:
Að verkefnið sé í eigu kvenna og stjómað af konum.
Að ábyrgð sé verkefnatengd þ.e. ábyrgðir eru veittar vegna
ákveðinna nýsköpunarverkefna, en ekki eru veittar ábyrgðir
vegna t.d. rekstrarlána til starfandi fyrirtækja. Að verkefni sé á
byrjunarstigi og að minnsta lán sé 1,0 m.kr. og minnsta
lánatrygging 0,5 m.kr.
Ekki er um að ræða sérstök umsóknareyðublöð, en umsókn
skulu fylgja: Framkvæmda- og fjárhagsáætlun fyrir verkefnið
ársreikningar og skattaskýrsla sl. tveggja ára
Nánari upplýsingar eru veittar í félagsmálaráðuneytinu
og á skrifstofu Byggðastofnunar.
Umsóknarfrestur um lánatryggingu er til 20. jtilí nk. og ber að
skila umsóknum til félagsmálaráðuneytis eða til skrifstofu
Byggðastofnunar í Reykjavík.
Lánatryggingasjóður kvenna
Byggðastofnun Félagsmálaráðuneyti
Kristján Þór Guðfinnsson Ingibjörg Broddadóttir
Engjateigur 3 Hafnarhúsið, Tryggvagötu
105 Reykjavík 150 Reykjavík
Sími 560-5400 Sími 560 9100
Bréfsími 560-5499 Bréfsími 552 4804
MÁLEFNI FATLAÐRA
DAG- OG SKAMMTÍMAVISTUNIN
BÚHAMRI 17
Félagsmálaþjónustan óskar eftir hæfum og áhugasömum
starfskrafti til starfa við Dag- og skammtímavistunina að
Búhamri 17. Heimilið er ætlað börnum og unglingum með
fötlun. Opið er alla virka daga og eina viku í mánuði er
skammtímavistun allan sólarhringinn.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af störfum með
börnum og unglingum.
Starfið felur m.a. í sér stuðning og þjálfun í athöfnum
daglegs lífs.
Um er að ræða 50% stöðu í vaktavinnu og verður
viðkomandi að geta gengið allar vaktir. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf 16. ágúst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félags- og skóla-
skrifstofu, í kjallara Ráðhússins.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí nk.
Frekari upplýsingar veita Ásta Halldórsdóttir, forstöðu-
maður í síma 481-2127 og Hanna Björnsdóttir
deildarstjóri málefna fatlaðra í síma 481-1092.
Tíunda kvennahlaupið
verður haldið19. júní
Hið árlega kvennahlaup verður 19. júní og er það nú orðið
10 ára.
Hlaupið/gengið/skokkað verður frá íþróttamiðstöðinni og
hefst skráning og afhending bola kl. 11.00 og upphitun
hefst kl. 11.30.
Farnar verða þrjár leiðir. Gjald er kr. 650.-