Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1999, Page 2
2
Fréttir
frettir
Einnísteininn
Alls voru 148 færslur í dagbók
lögreglu í sl viku, sem eru færri
færslur cn í vikunni þar á undan.
Frckar rólegt var um síðustu helgi,
eða 31 færsla frá föstudagskvöldi
fram á föstudagsmorgun og einn
fékk að gista fangageymslu lögregl-
unnar aðfaranótt laugardagsins
sökum ölvunar og óspekta.
Hættavið
gangbrautir
Lögreglan vill ntinna ökumenn á að
samkvæmt 28 gr. umferðarlaga má
eigi stöðva eða leggja ökutæki á
gangbraut eða í minna en 5 metra
fjatiægð áður en komið er að henni.
Þetta er tekið fram vegna þess að
lögreglumenn hafa orðið varir við
að ökumenn sem eru að aka
börnum til skóla stöðvi ökutækin
jafnvel nær gangbraut en leyfdegt
er, eða á gangbrautinni sjálfri. Með
þessu getur skapast slysahætta og
geta ökumenn átt von á sekt vegna
þessa.
Færri stútar
AUs komu upp níu umferðar-
lagamál og voru flest minni háttar,
utan einn ökumaður sem stöðvaður
var vegna gruns um ölvun við
akstur aðfaranótt laugardagsins.
Mun það vera stútur númer 22 í ár
á móti 20 á sama tíma í fyrra.
Tværlíkamsárásir
Tvær líkamsárásir voru kærðar til
lögreglu í vikunni. önnur aðfaranótl
síðast liðins sunnudags og hin á
mánudaginn. Ekki var um alvar-
lega áverka að ræða að þessu sinni.
Tóbakiogskotum
stolið
Farið var urn borð í Valdimar
Sveinsson VE og stolið einu
kartoni af vindlingum og sjö pökk-
um afriffilskotum. Verknaðurinn
hefur verið kærður. Eru foreldrar
hvattir til að kanna hvort börn
þeirra séu með skot í fórum sínum,
því þarna er um hættulegan hlut að
ræða. Þá ent allir sem geta gefið
upplýsingar um grunsamlegar
mannaferðir um bryggjusvæðið
beðnir að hafa samband við lög-
reglu.
Skemmdarverká
bilreiðum
Eitt skemmdarverk var tilkynnt til
lögreglu. Var þar um að ræða
rúðubrot í þremur langferðabílum í
eigu Páls Fielgasonar þar sem
bifreiðarnar stóðu við smábáta-
höfnina á móts við Geirseyri. Alls
votii 11 rúður brotnar í bifreiðunum
og leikur grunur á því að annað
hvort hafí verið skotið á bfíana tneð
loftbyssu, eða notaður oddhvass
hlutur til verksins. Skemmdar-
verkið átti sér stað að kvöldi 31.
október, eða 1 nóvember. Em allir
sem geta gefið upplýsingar um
skemmdarverkið beðnir um að hafa
samband við lögreglu.
Bakkað á bifreíð
Eitl umferðaróhapp varð í síðast-
liðinni viku á Vestmannabraut. þar
sem bifreið var bakkað framan á
aðra bifreið. Ekki urðu slys á fólki.
Ársfundur Þróunarfélags Vestmannaeyja:
Starfseminní haldið áfram
-en reikna má með einhverjum breytingum
Ársfundur Þróunarfélags Vest-
mannaeyja fyrir árið 1998 var
haldinn á sunnudagskvöldið í
Rannsóknasetrinu. Þar kom fram
að miðað við starfsmannafjölda
hefur umfang félagsins verið með
ólíkindum mikið. Reyndar komu
fram raddir um annað á fundinum
en verkefnaskrá fráfarandi fram-
kvæmdastjóri sýndu mikia grósku í
starfscminni. Samþykkt var
breyting á iögum félagsins um
fjölgun stjórnarmanna úr þremur í
timm. Er það verkefni nýrrar
stjórnar að móta stefnu félagsins
fyrir næstu ár og ráða nýjan fram-
kvæmdastjóra.
Bjarki Brynjarsson, sem lét af
störfum framkvæmdastjóra 1. sept-
ember sl., flutti skýrslu stjórnar fyrir
árið 1998. Þar kom m.a. fram að
starfsmenn félagsins eru aðeins þrír í
tveimur og hálfu stöðugildi. Auk
framkvæmdastjóra starfa ferðamála-
fulltrúi og ritari hjá félaginu. „Tekjur
félagsins á árinu voru 29 milljónir
króna og hagnaður nam tæpum
ijórum milljónum króna. Verður þessi
góði árangur í rekstri félagsins að
teljast nokkuð sérstakur meðal
atvinnuþróunarfélaga," sagði Bjarki.
Hann sagði að ÞV hefði komið að
Qölda verkefna á árinu 1998 en tiltók
þijú verkefni sem staðið hefðu upp úr.
„Mesta athygli vakti Keikóverkefnið
sem hófst með undirbúningi ÞV og
Rannsóknaseturs Vestmannaeyja á
vormánuðum ársins. Eftir að ákvörð-
un hafði verið tekin um að Keikó
skyldi fluttur til Vestmannaeyja 16.
júní lagðist gríðarleg vinna á hendur
ÞV í tengslum við byggingu kvíar-
innar, flutning Keikó til Eyja, móttöku
blaðamanna osfrv. Það skal sér-
staklega tekið fram að Free Willy
Keikó samtökin tóku þátt í rekstri
félagsins með fjárframlögum á
þessum tírna," sagði Bjarki.
Annað mjög stórt verkefni sem
Bjarki nefndi ér IT FOR FOOD
verkefnið sem hann sagði komið í
fullan gang. „Hér er einnig um mjög
umfangsmikið fjölþjóðlegt verkefni
að ræða þar sem ÞV hefur með
höndum verkefnisstjóm. Verkefninu
lýkur í lok þessa árs en það hefur
vakið verðskuldaða athygli á alþjóða-
vettvangi."
Þriðja stóra verkefnið sem Bjarki
nefndi er stofnun Fjárfestingafélags
Vestmannaeyja sem varð að veruleika
á árinu eftir töluverðan undirbúning
ÞV. I tengslum við félagið var lagður
gmnnur að því að Kaupþing hf. hæfi
starfsemi í Vestmannaeyjum.
Það kom fram í máli Bjarka að ÞV
stendur á ákveðnum tímamótum.
Sjálfur er hann að hætta eftir að hafa
lokið þriggja ára starfssamningi.
Bjarki sagði eðlilegt á þessum
tímamótum að fara ítarlega yfir
starfsemi félagsins með það fyrir
augum að kanna hvort gera eigi
breytingar á rekstri þess eða áherslum.
Ekki síst í ljósi þeirrar reynslu sem
fengist hefur á starfseminni og
þróunar í atvinnu- og byggðamálum
almennt.
„Leita þarf svara við því hvernig
gera megi vægi aðgerða í atvinnu- og
byggðamálum sem mest. Ljóst er að
þróunarfélag með tveimur til þremur
starfsmönnum getur ekki tekið beinan
þátt nema í mjög takmörkuðum íjölda
verkefna á hverju ári og stærri
verkefni sem geta spannað lengri
tímabil,“ sagði Bjarki.
Breytingar voru gerðar á lögurn
félagsins um að fjölga í stjóm úr
þremur í fimm. Ný stjóm var kosin en
hana skipa Þorsteinn Ingi Sigfússon.
Páll Rúnar Pálsson frá Rannsókna-
setrinu og Guðjón Hjörleifsson, Bjarki
Brynjarsson og Bjöm Elíasson frá
Vestmannaeyjabæ.
Veisluþjónusta án leyfls
Sýslumanni hafa borist ábend-
ingar um að aðiiar í bænum sem
ekki hafa til þess tilskilin leyfi hafi
verið að selja veisluföng til neyslu í
samkvæmum svo sem afniælum og
brúðkaupum.
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður
segir að þessar ábendingar hafi verið
teknar til skoðunar enda ýmis sjónar-
mið sem líta ber til og lúta að lögum
og reglugerðum. „Sjónarmiðin sem
ráða em ekkert ólík þeim er lúta að
atvinnustarfsemi almennt og tekur til
löggjafans. Þetta em atriði er varða
samkeppnisaðstöðu, opinbert eftirlit,
skattlagningu og atvinnuöryggi þeirra
sem greiða sína skatta og gjöld af
löglegri starfsemi í þessum geira
atvinnulífsins. Við sendum út fyrir-
spuming til nokkurra aðila þar sem
skýrt var út að að slíkur atvinnurekstur
væri leyfisskyldur og háður opinbem
eftirliti og skorað á viðkomandi aðila
að sækja um leyfi, ef þeir væm að
selja matvæli til veisluhalda."
Karl Gauti bendir á að vissulega
hafi komið upp spurningar um hver
væri munurinn á vinargreiða og sölu,
en það sé ljóst að ef afhent er gegn
endurgjaldi, hvort heldur það endur-
gjald er í formi peninga vöm eða
þjónustu, þá sé um sölu að ræða og
sala tilbúinna matarfanga er
leyfisskyld. „En það sem kannski
vegur þyngst er sú ábyrgð sem felst í
því að selja fólki matvæli ef eitthvað
kæmi upp á og engin leyfi em fyrir
starfseminni. Eg bið fólk að íhuga
það,“ sagði Karl Gauti að lokum.
Róma
yfirtekur
Oddinn
Það er ekki bara í sjávarútvegi sem
fyrirtæki eru að sameinast þessa
dagana. Tvær verslanir hafa nú
sameinast í Eyjum, önnur gamal-
gróin en hin nýrri af nálinni.
Eigendur verslunarinnar Róma, þau
Jarl Sigurgeirsson og Helga Dís
Gísladóttir, hafa stofnað hlutafélag um
verslunina og munu yfirtaka rekstur
Oddsins sem þau Sigurgeir Jónsson
og Katrín Magnúsdóttir hafa átt í tíu
ár. Verslunin Róma verður áfram við
Bámstíginn og þar verður gjafavaran
sem fyrr ásamt föndurvöm. Oddurinn
við Strandveg skiptir nú um nafn, mun
framvegis heita Krakkakot og þar
verða leikföngin til húsa. Þá verður
áfram um sinn verslun að Bámstíg 9,
einnig undir nafninu Krakkakot og þar
verða barnaföt og leikföng fyrir þau
yngstu. Oddurinn, sem var stofnaður
fyrir 25 árum, af þeim Magnúsi
Kristinssyni og Sigurfinni Sigur-
finnssyni, heyrir því sögunni til.
Oddurinn hefur verið á söluskrá í tvö
ár og segir Katrín að þau hafi verið
orðin þreytt á rekstrinum, ekki vegna
þess að illa hafi gengið heldur hins að
þau séu bæði í fullri vinnu annars
staðar og útilokað að sinna hvom
tveggja. Helga Dís, verslunarstjóri í
Róma, segir að haldið verði áfram á
svipaðri braut í gjafavöm, föndurvöm
og leikföngum. Aftur á móti verða
ritföng ekki á boðstólum. Ymsar
aðrar breytingar em fyrirhugaðar en
opnað verður í hinum nýju verslunum,
sem heita Krakkakot, á morgun,
föstudag. Helga Dís segir að í tilefni
þessa verði ýmis opnunartilboð, m.a.
verulegur afsláttur á nokkmm vöm-
flokkum.
fréttir
íljósaskiptunumá
Bókasafninuog
finnsk byggingalist
Nú verður haldin í þriðja sinn
bókasafnsvikan „í ljósaskiptunum"
og er þema hennar að þessu sinni
þjóðsögur og sagnir fyrr og nú.
Markmiðið með þessari viku er að
auka samvinnu og samstarf á milli
noirænna bókasafna.
Á mánudaginn kernur þann 8.
nóvember kl. 18.00 hefst upplestur
á Bókasafni Vestmannaeyja. Þá
verður á sarna tíma slökkt á íjósum
á almenningsbókasöfnum á öllum
Norðurlöndunum. Lesinn verður
kafli úr finnska verkinu „Kalevala"
og nútíma þjóðsagan Rottupítsan
og er upplesturinn í höndum félaga
í læikfélagi Vestmannaeyja.
Af þessu tilefni verða kynntar
finnskar bókmenntir í eigu Bóka-
safns Noiræna hússins og Bóksafns
Vestmannaeyja.
Á mánudaginn 8. nóvember
opnar í anddyri Safnahúss sýningin
FINNSK BYGGINGALIST á
vegum Finnska sendiráðins. Mun
hún standa uppi í mánuð. Meðal
þeirra sem sýna er arkitektinn Alvar
Alto, en hann hannaði Norræna
húsið í Reykjavík og er einnig
þekktur fyrir hönnun á húsgögnum
og eru húsögn í eigu Bókasafns
Vestmannaeyja hönnuð eftir hann.
Allir velkomnir.
Villibráöarkuöld
Fjörunnar
Næstkomandi laugardag mun
Fjaran bjóða Vestmannaeyingum
til villibráðarveislu við góðu verði.
I boði verður glæsilegur matsesðill
að hætti Gríms Gíslasonar sælkera-
ástmögurs.
Eins og unnendur girnilegrar
matreiðslu vita, hefur Grími ekki
brugðist bogalsitin við eldavéiina
og mun beita öllum sínum töfrum
við villibráðina nú sem endranær.
Á matseðlinum verður bæði fugla-
og hreindýraréttir og sem dænii má
nefna: Villigæsabringu með sól-
berjasósu og gljáðum lauk,
svartfugls- og lundabringur með
ýmsum bragðlostavekjandi sósum
og meðlæti að ógleymdri léttreyktri
súlu, sem aldrei hefur brugðist.
Eitthvað óvænt mun verða til að
gleðja vestmanneyska sælkera af
báðurn kynjum og Austurbakki
mun verða með vínkynningu fyrir
matargesti og hefst hún klukkna
20.00.
Ekki er vitað hveijir sjá um splirí
en Ema lofar lifandi tónlist sem
enginn verður svikinn af.
ÁTVRásamastað
Bæjarráð fundaði síðastliðinn
mánudag og var það fúndur núrner
2508. Fyrir ráðinu lágu tjögur mál
og voru þau afgreidd á tíu
mínútum. Meðal mála sem lágu
fýrir fundinum vai' bréf frá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins þar sem
sótt er urn endurnýjun leyfis til
rekstrar vínbúðar við Strandveg 50.
Bæjarráðs samþykkti erindið fyrir
sitt leyti.
(fréttir)
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur. frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.