Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1999, Side 13
Fimmtudagur 4. nóvember 1999
Fréttir
13
Húsfyllir var í Alþýðuhúsinu á
föstudagskvöldið þar sem
Lionsklúbbur Vestmannaeyja
hafði boðið eldri borgurum til
skemmtunar í tilefni að ári
aldraðra.
Ingimar Georgsson,
formaður Lionsklúbbsins var
mjög ánægður með hvernig til
tókst. „Alls mættu um 100 eldri
borgarar sem er nijög góð
mæting,“ sagði Ingimar. „Við
Lionsmenn ákváðum að efna til
þessa fagnaðar í tilefni árs
aldraðra. Ætlunin var að kynna
um leið þriðja blað okkar af
Tímamótum, sem helgað er
málefnum aldraðra. það hafðist
því miður ekki en það er
væntanlegt á næstunni.“
Ymislegt var til skemmtunar.
Meðal annars var Leikfélag
Vestmannaeyja með
skemmtiþátt. Gísli Óskarsson
kennari las smásögu eftir
Sigurbjörn Sveinsson, Bára
Grímsdóttir fór með rímur og
sjálfir voru Lionsmenn með
skemmtiatriði. Að skemmti-
atriðum loknum var ball til
klukkan 1 og sáu Eymenn um
tónlistina.
„Þetta kvöld var mjög
skemmtilegt og ánægjulegt fyrir
okkur Lionsmenn. Hafi eldri
borgarar skemmt sér eins vel og
við er tilganginum náð,“ sagði
Ingimar að lokum.
JÓHANNA hló
dátt af framlagi
Leikfélagsins og
það er ekki annað
að sjá en að Fríða
og Diddi skemmti
sér vel.
GÚSTI í Mjölni, Siggi í Húsavík, Jói danski, Gísli Óskars og Bjarni Sam áttu saman skemmtilega stund í Alþýðuhúsinu.
ÞÆR fylgdust af athygli með því sem fram fór.
r
~i
Bjórinn flæddi á minnstu bjórhátíð heimsins
Minnsta bjórhátíð í heimi var haldin á
Mánabar um síöustu helgi. Reyndar
byrjaði hátíðin á fimmtudegi, en það virtist
ekki draga úr áhuganum, því mjög góð
mæting var á fimmtudagskvöldið að sögn
þeirra Mánabarsverta. Það er skemmst frá
því að segja að bjórhátíð af téðri
stærðargráðu virðist eiga góðan
hljómgrunn meðal Eyjamanna, því fullt var
út úr dyrum hina tvo dagana sem hátíðin
stóð. Ölið kneifað úr líterskrúsum við
undirleik heimamanna og þess á milli
hljómaði þýsk Týrólamúsík af geisladiskum
við mikinn fognuð gesta. Það var og tekið
til þess hversu ailir voru prúðir í allri
framkomu og kom aldrei til neinna
ryskinga þrátt fyrir þann mikla fjölda sem
rann á öllyktina. Greinilegt að fólk kann að
skemmta sér með ölið annars vegar og ef
fram fer sem horfir segja aðstandendur
þessarar „minnstu bjórhátíðar í heimi”að
hún verði örugglega endurtekin að ári og
ekki með minni bravúr en þessar þrjár
kvöldstundir sem hún stóð nú að þessu
sinni.
SÖNGURINN þykir sjálfsagður á öllum bjórhátíðum.
HANDBOLTASTRÁKARNIR töldu sig hafa ástæðu til að fagna og fá sér bjór eftir
sigurinn á IR á föstudagskvöldið.
L
J