Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1999, Síða 15
Fimmtudagur 4. nóvember 1999
Fréttir
Helena Jónsdóttir leikskólastjóri:
in forsendum
Hjallastefnan í
hnotskum
Að mæta hverju barni
Böm eru eins misjöfn og þau em
mörg. Öll böm em sérþarfaböm og
leikskólanum ber að mæta þörfum
allra bama því að skólar em til fyrir
böm en ekki böm fyrir skóla.
Hjallakennarar fagna fjölbreytileik-
anurn innan bamahópsins og breyta
starfsháttum sína eftir stöðu „sinna
bama“ hverju sinni.
Fastur kennari/hópstjóri er heilt
skólaár til að tryggja hvert bam. Fastir
hópar em til að tryggja vináttu og
samstöðu. Vinimir eiga að vera aðal-
atriðið og hverju bami er gagnlegra að
þekkja fáa vel en marga illa og „líkir
jafnan leika best“. Aldursskiptir
jafningjahópar eru síðan til að mæta
jafningjaþörfum og skapa jafningja-
vináttu.
Kynjaskipting er notuð til að tryggja
bæði kyn og gefa stúlkum og
drengjum uppbót fyrir það sem þau
hafa farið á mis við vegna kynferðis í
samfélagi sem ekki hefur enn náð
jafnréttis-markmiðum sínum.
VlÐHORF í LEIKSKÓLASTARFI
Viðhorf Hjallakennara til starfsins er
að böm komi í leikskóla til að æfa
vináttu og samskipti gegnum leik og
leiki. Því er áherslan lögð á þá þætti
sem helst skapa farsæld í vináttu og
samskiptum einstaklinga og hópa á
millum. Jákvæðni, gleði og kærleikur
ásamt samkennd, ábyrgð og aga em
því mikilvægustu náms-greinamar
sem allt starf á að miðast við og allt
annað verður fyrir að víkja.
Samfélag leikskólans
Leikskóli er fyrsta þjálfunin sem böm
fá sem þátttakendur í opinberu
samfélagslíft og þau þurfa að læra
hvaða leiðir em færastar til að komast
af meðal margra, þ.e. samskipti,
vinátta og góð hegðun. Einkaheimili
kenna einkalíf og byggja upp
tilfinninga- og tengslagmnn sem
enginn leikskóli getur kennt.
Þess vegna leggja Hjallaskólar
ofuráherslu á umhverfi, búnað og
skipulag dagskrár á sundurgreindan,
einfaldan og ömggan hátt til að
samfélagið virki, umferðin gangi skv.
umferðarreglum og gagnsæi og
einfaldleiki gerir bömum kleift að
læra að ferðast um samfélagið fljótt og
ömgglega.
Sköpun og leikefni
Leikföng em ekki af hinu illa en gildi
þeirra ræðst af því hvemig og hversu
mikið þau em notuð. Leikskólinn á
að vera viðbót við uppeldi heimilanna
en ekki eftiröpun eða samkeppni. Því
er hlutverk leikskólans í dag að bjóða
upp á leikefni frábmgðið því sem böm
eiga heima.
Leikföng er búið að úthugsa áður
en þau komast í hendur bama og fela
oftast í sér leit að hinni einu „réttu
lausn“. Það er í sjálfu sér allt í lagi,
svo fremi sem eitthvað fleira og meira
skapandi fyrir hugsun bama er í boði.
Ofnotkun á leikföngum getur valdið
því að böm festist í innantómri
afþreyingu og jafnvel að bam einangri
sig frá samskiptum þar sem þeirra er
oft ekki krafist í leikfanganotkuninni.
Hófsemi og nægjusemi
Nægjusemi er að læra að una við sitt.
Grasið er ekki grænna „hinum megin“
og öllum er hollt að láta sig vanta
eitthvað og láta á móti sér öðm hvom.
Nægjusemin eykur einbeitingu og
minnkar spennu. Nýtni og umhyggja
fyrir umhverfí sínu kennir virðingu
íýrir því sem til er. Til hvers að kaupa
nýja liti ef hægt er að spelka þá
gömlu? Hamingjan verður víst ekki
keypt hvað svo sem auglýsingavaldið
segir.
Þjálfun í að bjarga sér sjálf/ur og
bíða ekki eftir að einhver komi og
bjargi málinu styður böm til sjálf-
stæðis og trúar á eigin getu.
Agi, rósemd og friður
Agi er óendanlega mikilvægur. Agi
gefur öllum öryggi sem ekki fæst án
aga. Að auki geftir agi rósemd og frið
og minnkar öllu betur hættu á spennu,
streitu og ótta sem veldur ofbeldi og
einelti.
Agi er einfaldlega að fara eftir reglu
og halda sig innan iammans og slíkt
kostar æfíngu. Agi gefur síðan
hverjum og einum vald yfir aðstæðum
sínum og slíkt vald gefur frelsi. Að
auki er aginn tamning þess guð-
dómlega vilja sem böm koma með í
farteskinu og slík taming er forsenda
þess að viljinn nýtist þeim sem
jákvæður drifkraftur í stað þess að
vaxa villt yfír höfuð þeim eða vera
brotinn og þar með gagnslaust.
Hvers vegna
KYNJASKIPTING?
Markmið kynjaskipts leikskólastarfs
er jákvæð kynjablöndun þar sem
báðum kynjum er gert kleift að
mætast á jafningjagrundvelli þar sem
hvomgt kyn þarf að gjalda fyrir kyn
sitt.Annars vegar em kynin styrkt
hvort í sínu lagi og hins vegar hittast
kynin daglega í sérstökum stundum
þar sem fullorðnir tryggja jákvæð
samskipti og raunvemlegt samstarf.
Kynjaskipting er aðeins leið að
markinu.
Leikskólastarf í hjallaleikskólum á
að einkennast af: Gleði og ánægju
Gleði og ánægja bama og fullorðinna
er fulkomið markmið fyrir hvem
dag.Kærleika. Gmndvöllur þess að
vinna með bömum er að þykja vænt
um þau og sýna það í orði og verki.
Jákvæðni Vönduð orðanotkun,
jákvæð, hlýleg og uppörvandi orð og
setningar. Aga. Agi er einfaldlega að
fara eftir reglu og viðbrögð annara við
hegðuninni ákvarðar hvers konar
regla lærist. Agi á að vera 99%
jákvæður.Agi án kærleika er jafn
hættulegur og kærleikur án aga.
Að lokum. Starfsfólk Sóla er mjög
ánægt með það starf sem unnið hefur
verið og þróast hér á Sóla og leggur
óhikað út í framtíðina. Það er von
okkar, að þeir sem lesa þessa stuttu
kynningu verði einhveiju nær um starf
okkar hér á Sóla. Þeir sem hafa áhuga
á að kynna sér starfsemina á Sóla
nánar, er velkomið að hafa samband
við Margréti Brandsdóttur leikskóla-
stjóra í síma 481 1928.
Opið bréf til
Vestmannaeyinga
Þau skrif sem hér fara á eftir skrifa ég
í umboði bama á leikskólanum
Rauðagerði. Þau em skrifuð vegna
þess að mikið hefur borið á kisum og
hundum í kringum leikskólann.
Þessi dýr em ekkert öðmvísi en
önnur dýr að þau þurfa að gera sínar
þarfir sem er afskaplega eðlilegt mál.
En einn gallinn er sá, að þau gera
mikið af því í sandkassana við leik-
skólann, sem og á grasið innan girð-
ingar. Þegar bömin em síðan að leika
sér við að moka eins og ber að gera í
sandkössum, þá róta þau upp kattaskít
sem er afar hvimleitt og sóðalegt.
Þar sem að aldur bama í leik-
skólanum er allt frá eins árs uppí sex
ára þá er leikur þeirra mismunandi.
Þau allra yngstu sitja stundum í sand-
kassanum og em að smakka sandinn.
Þegar kisumar em búnar að vera að
gera sínar þarfír þá vitum við ekki
hvað fer uppí bömin og hvað ekki.
Við viljum því beina þessum skrifum
til allra gæludýraeigenda og þá sér-
staklega þeirra sem búa í nágrenni við
Rauðagerði að íhuga hvar gæludýr
þeirra losa sig við sínar daglegu þarfir.
Þetta bréf er ekki skrifað vegna þess
að við höfum eitthvað á móti gælu-
dýmm, síður en svo. Við emm til
dæmis með í leikskólanum fiska sem
bömunum þykir afskaplega vænt um.
Einnig höfum við fengið til okkar í
heimsókn gæludýr starfsmanna og
þykir það hin mesta skemmtun að fá
að leika við þau.
Það sem fer aðallega í taugamar á
okkur er sá óþrifnaður sem skilinn er
eftir á lóðinni og þá aðallega í
sandkössunum og bíður eftir því að
verða rótaður upp og það af sak-
lausum bömum.
Okkur langar líka til að athuga
hvort fólk geti ekki aðstoðað okkur í
að veija sandkassana þannig að við
getum lokað þeim og komið í veg
fyrir að sandkassamir verði notaðir
sem salemi fyrir gæludýr. Við höfum
reynt að loka þeim með neti en því
miður þá hefur það ekki fengið að
vera í friði fyrir krökkum sem leika sér
á lóðinni eftir lokun skólans. Þannig
að við leitum eftir hjálp frá
bæjarbúum um vemdun svæða sem
tilheyra bömunum og em allar upp-
ástungur velþegnar.
F.h. leikskólans Rauðagerði
Helena Jónsdóttir
leikskólastjóri.
Sonja Hand skrifar - Síðari hluti
Hvert er fólk að flýta sér
svona mikið á þessari eyju
Það á ekki að ganga þrautalaust að
koma því ágæta bréfí í Fréttir sem
Sonja Hand sendi inn til birtingar íyrir
margt löngu. Vegna handvammar af
hálfu undirritaðs vantaði niðurlag
bréfsins sem birtist að öðm leyti í
síðasta tbl. Frétta. Einnig slæddist inn
orðið þýska orðið Aufenthalt í lok
einnar setningar sem merkir dvöl í
samhengi textans. Niðurlag setning-
arinnar er því: „smá hugleiðingu sem
kom í hug mér meðan á dvöl minni
stóð“. Biðst undirritaður velvirðingar
á hugsanlegri skelfíngu sem þetta
kann að hafa valdið góðu fólki. En
héma kemur niðurlag bréfsins og
vonandi óbrenglað.
Með góðum kveðjum,
Benedikt Gestsson blm. Fréttum
I algerri andstöðu við hinn fagra
suðurhluta Eyjarinnar er norðaustur
hluti eyjarinnar ekkert annað en stór
illa lyktandi ruslahaugur. Eg skil
þörfína fýrir því að nýta malamámur á
eyjunni og að eyjamenn þurfí að losa
sig við sorp, en námasvæðin virðast
hafa verið valin af handahófi, því um
allt svæðið virðast menn hafa þurft að
grafa út nýjar námur. Og til þess að
kóróna ósómann er msli hent á öllum
þessum stöðum og það brennt hvar
sem henta þykir. Einnig virðist hæð-
ótt landslagið vera óskastaður þeirra
sem þurfa að reyna bíla sína í
torfæmm. Lýtin sem slfk umgengni
setur á landið hefur valdið varanlegum
skaða á nýja hrauninu. Eldfellið getur
þó hrósað sigri vegna þess að það
hefur verið friðlýst sem náttúruminjar,
en þrátt fyrir það er útsýnið af
Eldfellinu náttúruunnendum til skap-
raunar og lítils augnayndis. Stundum
hvarflaði það að mér að þessi eyði-
legging hraunsins væri unnin vegna
einhverrar hefndarhvatar gagnvart
náttúmöflunum, vegna þess tjóns sem
eldgosið olli. Jafnhliða þessu hegð-
unarmynstri sumra eyjamanna hef ég
þó hitt fólk sem veit að Vestmanna-
eyjar em gersemar. Margir þeirra em
vel að sér um sögu Eyjanna, sumir
fanga andrúmsloft þeirra í fallegum
málverkum, einnig em margir sem
nostra við garðana við hús sín, en eitt
er þeim öllum sameiginlegt og það er
söngurinn og viljinn til þess að njóta
lífsins.
A meðan ég var í Eyjum söng ég
um tíma með Kirkjukór Landakirkju
og hafði ég mjög gaman af því enda
gaf það mér tækifæri til þess að læra
meira j íslensku og kynnast fleira
fólki. A þessum fimm mánuðum sem
ég dvaldi í Eyjum náðu Vest-
mannaeyjar mjög sterkum tökum á
mér og aldrei fann ég fýrir heimþrá, en
ég mun ábyggilega sakna Heimaeyjar
þegar ég er aftur komin til Þýskalands,
því eyjan varð mér raunverulegt
„Heima“ og ég á mér draum um að
geta komið til Eyja oft í framtíðinni.
23. júlí 1999, Sonja Hand
Þakkir til ykkar allra
Ragnheiði Borgþórsdóttur, sem stóð
fyrir Franska kvöldinu s.l. laugardag,
langar að koma þakklœti til þeirra
420 gesta, sem þáðu boð hennar.
Þátttakan var framar mínum björtustu
vonum. Ég þakka ykkur innilega íýrir
komuna og verið ávallt velkomin á
snyrtistofu og verslun mína.
Vil ég þakka eftirtöldum aðilum
sértaklega: Guerlain í París, Amaud
Montfort, Heildverslun Th. Stefáns-
sonar, Þórami Stefánssyni, Helgu
Sigurbjömsdóttur, Rósu Rúnudóttur,
Franska sendiráðinu og starfsfólki,
Gilbert Krebs og frú, Guðmundi R.C.
Barker, Akóges félögum, og þó
sérstaklega Stefáni, Eiríki, Bjarni,
Magnúsi, Huginn og Kára, Flugfélagi
Islands, Braga Ólafssyni, Hótel Þórs-
hamri, Jóhanni Heiðmundssyni og
starfsfólki, Veitingahúsinu Fjömnni,
Emu Jónsdóttur og Andra, Tískuvöm-
versluninni Flamingó, Gunnhildi
Jónsdóttur, Geisla, Petri Jóhannssyni
og starfsfólki, Tréverki, Garðari
Björgvinssyni og starfsfólki, Selmu
Ragnarsdóttur, Heildverslun Karls
Kristmanns, Kristmanni Karlssyni og
Ingólfi Amarssyni, Magnúsarbakari,
Andresi og Rúrý, Herði og Matta um-
boðsmanna Renault bifreiða, Sjálf-
stæðiskvennafélaginu Eygló, Hressó,
Kára, Jóhönnu, Vigni og Onnu Dóm,
Petri Sturlusyni, Stefáni Pétri Bjama-
syni og Áslaugu Steinunni Kjartans-
dóttur, Karli Guðmundssyni, GV
Heildverslun Völu og Guðjóni,
Heildverslun Rolf Johanssen Stefáni
og Birgi, Heildverslun Gunnars
Kvaran, Halldóri Kvaran, Islensku
Frönsku eldhúsi, Þráni Þorvaldssyni
og starfsfólki, Guðrúnu Jóhannsdóttur,
Aka Heins Haraldssyni, Fotó
Guðmundi Sigfússyni, Fréttum, Gísla,
Benedikt og Guðmundi, Prentsmiðj-
unni Eyrúnu Gísla og Óskari,
Sigurgeiri Jónassyni, Utvarpi Suður-
lands, Hárgreiðslustofunni Enn EU,
Nönnu Leifsdóttur, Kristni Jónssyni,
Ragnheiði Guðnadóttur, Eyrúnu
Siguijónsdóttur, Dagmari Skúladóttur,
Evu Sveinsdóttur, Telmu Róberts-
dóttur, Telmu Rós Tómasdóttur,
Hrefnu Díönu Viðarsdóttur, Guð-
björgu Guðmannsdóttur, Helgu Inga-
dóttur, Líney Benediktsdóttur, Ingu
Bimu Sigursteinsdóttur, Emu
Jónsdóttur, Emilíu Borgþórsdóttur,
Sól, Bimu Böðvarsdóttur, Bjarneyju
Pálsdóttur, Jónu S. Guðmundsdóttur,
Svanhvíti Friðþjófsdóttur, Hörpu
Hauksdóttir, Ester Helgu og
Guðmundi Inga og síðast en ekki síst,
hægri hönd minni Bjama Hilmari
Jónssyni.