Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1999, Page 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 4. nóvember 1999
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 4. nóvember:
Kl. 17:30 TTT - Allir fá að
leika sér að gipsi... Spennandi
verkefni og fjör og fróðleikur.
Allir tíu til tólf ára mæta.
Föstudagur 5. nóvember:
Kl. 10:00. Foreldramorgunn.
Mæður og feður með ungum
bömum sínum.
Laugardagur 6. nóvember:
Kl. 14:00. Utfararguðsþjónusta
Njáls Andersens.
Sunnudagur 7. nóvember,
Allra heilagra messa:
Kl. 11:00. Bamaguðsþjónusta
með miklum söng, fræðslu og
upplifun. Mætum vel.
K. 14:00. Guðsþjónusta á allra
heilagra messu. Minnst verður
látinna, og sérstaklega þeirra
sem andast hafa næstliðna tólf
mánuði. Kaffisopi og spjall
eftir messu.
Kl. 20:30. Æskulýðsfundur -
Guðmundur í hælnum mætir
og splæsir, en hverju skyldi
hann splæsa?
Mánudagur 8. nóvember:
Kl. 20:00. Vinnufundur hjá
Kvenfélagi Landakirkju.
Þriðjudagur 9. nóvember:
Kl. 16:30. Kirkjuprakkarar.
Farið í heimsókn til lög-
reglunnar með söng og myndir.
Mætum á réttum tíma.
Miðvikud. 10. nóvember:
K120:00. Opið hús í KFUM &
K húsinu - Hvað skyldi Skapti
tapa fyrir mörgum í borðtennis
íkvöld:)
Fimmtud. 11. nóvember:
Kl. 11:00. Helgistund í Hraun-
búðum.
K1 17:30. TTT - Nú verður sko
spriklað - Allir tíu til tólf ára
endilega að mæta að taka þátt í
meiriháttar fjöri...
Kl. 18:05. Bæna- og kyrrð-
arstund með Taize-söngvum.
Föstudagur 12. nóvember:
Kl. 09:00. Fermingarmót í
safnaðarheimilinu fram á
kvöld.
Hvítasunnu
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur: - Snorri
Óskarsson
Laugardagur
Kl. 20:30 Brotning brauðsins
Sunnudagurinn
Kl. 15:00 Vakningarsamkoma
Ræðum. Snorri Óskarsson
Efni: Eru íslendingar að glata
kristinni trú?
Samskot tekin til kristni-
boðsins.
Þriðjudagur
Kl. 17:30 Krakkakirkjan fyrir
öll böm á öllum aldri undir
stjóm Sólrúnar Bergþórsdóttur
Ailir hjartanlega velkomnir
Aðvent-
KIRKJAN
Föstudagur 5. nóvember
Kl. 20. Myndasýning - Net 98
Efni: Þegar mannkynssagan blekk-
ti okkur.
Laugardagur 6. nóvember
Kl. 11.00 Biblíurannsókn.
Kl. 12.00 Guðsþjónusta
Gestur helgarinnar Jón Hj. Jónsson
Allir velkomnir.
Knattspyrna: Lokahóf 2. og meistaraflokks
Birkír 03 Si&a Asa best
-ívar Ingimarsson og Lind Hrafnsdóttir efnilegust - Jóhannes formaður hættir eftir 13 ár
Lokahóf knattspyrnudeildar ÍBV-
íþróttafélags fyrir meistaraflokk og
2. flokk karla og kvenna var haldið
með miklum glæsibrag í Kiwanis-
húsinu á laugardagskvöidið. Þarna
voru veittar viðurkenningar fyrir
afrek sumarsins en hæst bar að
Jóhannes Ólafsson, sem setið hefur
í stjórn knattspyrnuráðs og síðar
knattspyrnudeildar ÍBV í 13 ár, þar
af tíu ár sem formaður, hefur
ákveðið að hætta. Birkir Kristins-
son markmaður var valinn besti
leikmaður sumarsins hjá körlunum
og varnarmaðurinn Sigríður Asa
Friðriksdóttir hjá konunum.
Dagskráin var með hefðbundnum
hætti og hófst með ávarpi Jóhannesar
formanns sem skýrði frá því að nú
væri hugmynd hans um að mynda
hlutafélag um rekstur meistaraflokks
og 2. flokks karla að verða að
veruleika. Vísaði hann til þess að
stjóm ÍBV-íþróttafélags hafði þá um
morguninn setið fund með stjórn
knattspymudeildar þar sem stjóm
deildarinnar lagði fram hugmyndir að
stofnun hlutafélags. Samkvæmt
tilhögunum er gert ráð fyrir stofnun
hlutafélags sem ásamt ÍBV stofnaði
rekstrarfélag sem hefði meistaraflokk
og 2. flokk á sinni könnu.
Þá kom fram að búið er að selja ívar
Ingimarsson til Brentford, ívar Bjark-
lind, Zoran Milkovich, Kristinn
Hafliðason em hættir og óvíst er hvort
Birkir Kristinsson kemur til með að
standa á milli stanganna hjá ÍBV á
næsta ári.
Jóhannes þakkaði Bjama Jóhanns-
syni, fráfarandi þjálfara fyrir vel unnin
störf um leið og hann bauð Kristinn R.
Jónsson, nýráðinn þjálfara velkomin
til starfa.
Stuðningsmannaklúbbur ÍBV valdi,
eins og nokkur undanfarin ár, efni-
legustu og bestu leikmenn karla og
kvenna. Valið fór fram með þeim
hætú að hringt var í meðlimi klúbbsins
og þeir beðnir um að segja til um hver
hefðu skarað framúr á sl. sumri. Þátt-
taka var tæp 80% og varð niðurstaðan
sú að Birkir Kristinsson var valinn
besti leikmaður hjá körlunum og
Sigríður Asa Friðriksdóttir hjá
konunum. Efnilegasti knattspymu-
maðurinn var valinn ívar Ingimarsson
og hjá konunum þótti Lind Hrafns-
dóttir efnilegust.
Markahæstu leikmennimir vom
Hrefna Jóhannesdóttir og handhafi
gullskóarins annað ári í röð, Stein-
grímur Jóhannesson. Þorsteinn Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri knatt-
spymudeildar, sagði við þetta tækifæri
að afrek Steingríms væri einstakt. „Eg
hef aðeins fundið einn mann sem
hampað hefur markakóngstitlinum tvö
ár í röð. Það var Eyjamaðurinn
Sigurlás Þorleifsson sem varð marka-
kóngur með ÍBV fyrra árið og
Víkingum seinna árið,“ sagði
Þorsteinn.
Sú hefð hefur skapast að veita þeim
sem ná 100 leikja markinu með
meistaraflokki viðurkenningu. Eng-
inn náði þeim áfanga að þessu sinni en
Ingi Sigurðsson lék sinn 150. leik og
tveimur leikjum betur með meist-
araflokki fyrir það fékk hann sérstaka
viðurkenningu.
Auk Jóhannesar hættir Tryggvi Kr.
Ólafsson í stjóm knattspymudeildar.
Tryggvi hefur eins og Jóhannes
formaður átt sæti í stjóminni frá 1986.
Voru þeim færðar viðurkenningar
fyrir vel unnin störf.
Eins og venjulega á lokahófi fót-
boltans, fluttu margir ávörp og ræður.
Jóhannes formaður sagði í sínu ávarpi
að hann ætlaði að koma sér vel fyrir í
stúkunni sem hann vænti að yrði risin
við Hásteinsvöll fyrir næsta tímabil.
Stúka við Hásteinsvöll hefur verið
baráttumál knattspymuforystunnar
undanfarin ár enda krafa KSÍ að
skipulögð áhorfendasvæði séu við
velli liða í efstu deild. Það var því
eðlilega nokkur eftirvænting í loftinu
þegar Sigurður Einarsson bæjarfulltrúi
steig í pontu. Hann gekk ekki lengra í
loforðum um væntanlega stúku en að
hún rísi einhvern tímann á næstu öld.
Jóhann Ólafsson, stjómarmaður í
KSI, kom einnig inn á stúkuna í sinni
ræðu og sagði að fresturinn til að
koma henni upp væri að renna út.
MARKAHÆST: Steingrímur
Jóhannesson var markakóngur
Landssímadeildarinnar í ár eins
og í fyrra en Hrefna Jóhannes-
dóttir varð markahæst í meist-
araflokki ÍBV en hún er nú á
leiðinni í Breiðablik.
EFNILEGUST: Lind
Hrafnsdóttii og ívar
Ingimarsson voru valin
efnilegust. Eggert Garðarsson,
varaformaður stjórnar
knattspyrnudeildar, tók við
verðlaunum fyrir Ingimar.
FYRSTA A-landsliðskona ÍBV: fris Sæmundsdóttir fékk
myndarlegan skjöld fyrir þann merka áfanga að vera fyrsta A-
landsliðskonan frá Vestmannaeyjum.
SIGRÍÐUR Ása Friðriksdóttir þótti skara framúr hjá konunum í
sumar. Hér er hún með Eggert sem tók við viðurkenningunni fyrir
Birki markmann.