Fréttir - Eyjafréttir - 18.05.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 18. maí 2000
TE r ' • ■
asi
Ég les allt mögulegt
Jóhann Baldursson skoraði á mig í
síðustu Fréttum til að segja frá því
sem hef gaman af að lesa. Það er lítið
mál. Ég les allt mögulegt, fer mikið á
Bókasafnið og tek hinar og þessar
bækur, sumar reynast vel, aðrar illa
eins og gengur. Sumar bækur er ég
ansi fljótur að lesa og les þá ég ekki
hvert orð, ef bókin nær ekki tökum á
mér. Með aldrinum hef ég meira
gaman af sannsögulegu efni og mér
gengur bölvanlega að ná taki á yngri
íslensku skáldunum.
Þær bækur sem mér dettur í hug og
eru mjög vinsælar til lestrar og
uppsláttar eru Aldabækumar og Blik,
sem Þorsteinn Víglundsson gaf út, en
þar er mikill fróðleikur saman
kominn. Ég get nefnt þrjár til fjórar
bækur sem ég hef nýlega lesið. Er
þar fyrsta að telja Gekk ég yfir sjó og
land, sem er saga íslenskra mormóna
og er athyglisvert hvað það trúboð átti
greiðan aðgang að Vestmanna-
eyingum. Önnur bók nýlega lesin er
eftir Roddy Doyle sem er írskur rit-
höfundur. Bókin heitir, Ég heiti
Henry Smart og fjallar um frelsis-
baráttu Ira. Henry Smart elst upp við
kröpp kjör í Dyflinni skömmu eftir
síðustu aldamót. Hann lifir mjög
háskalegu lífi, en inn í söguna spinn-
ast ástir og örlög. Tværaðrarbækur
sem ég hef lesið nýlega eru, Svipting-
ar á sjávarslóð eftir Höskuld Skarp-
héðinsson og Vetrarferðin eftir Ólaf
Gunnarsson, hvort tveggja bækur sem
ég las með athygli.
Mig langar að skora á Sævald
Elíasson stýrimann á Herjólfi í næsta
bókaþátt. Ég hef grun um að hann
lesi talsvert.
Hörður Snævar Jónsson.
©rðTspon
-Það er orðið nokkuð langt síðan heyrst hefur í Svarta
genginu í Orðspori, svo rétt þykir að bæta nokkuð þar úr. Það
hefur verið tíska og að flestra mati góður siður hjá
Svartagengismönnum ef þeir halda til útlanda að koma heim
með koníakspela og færa hópnum að ylja sér á I göngum
þeirra. Nú mun einn ágætur Svartagengismaður vera að fara
í sjölanda sýn um heiminn, sem þýðir að lifna mun yfir
genginu þegar hann kemur heim með að sjálfsögðu sjö pela í
farteskinu. Mun þessi ágæti maður jafvel hafa íhugað að
hætta við sjölanda sýnina sjáandi fram á að pelatollurinn yrði
honum um megn. Reyndar er ekki afhentur nema einn peli í
einu, en engu að síður dreymir gengið nú að eftir heimkomu
sjölandamannsins verði að minnsta kosti einn peli á mann í
fyrstu gönguferð eftir sjölandaheimkomu.
-Það eru miklir kærleikar milli Bumbugengisins (les
rækjurnar) og Svarta gengisins, en hvorir tveggja hóparnir
eru miklir áhugamenn um göngur í guðsgrænni (les
pútukúksgrænni) náttúrunni. Þykir Bumbugengið þó lítt
vaxið til mikillar göngu vegna þess hve bognir og framsettir
þeir eru, enda stunda þeir það án þess að blikna að keyra að
væntanlegum göngusvæðum sínum. Ef þeir örmagnast á
göngunni og geta ekki ekið til baka, þá eru heimildir fyrir því
að þeir hringi á leigubíl til þess að láta ná I sig. Segja nú vinir
Orðspors að skynsamlegt gæti verið að hringja á leigubíl áður
en þeir halda í téðar „göngur", sem eru iðulega farnar að
Sorpu, hvar þeir spóka sig á malbikuðu planinu.
-Mikið olíuslys varð á bryggjusporði í Eyjum á dögunum.
Einn ágætur vörubílstjóri var staðinn að því að einn dropi olíu
lak úr bíl hans og hann sektaður um 8000 eyjakrónur. Þótti
honum sektin mikil ósvinna og engin ástæða til hennar, enda
mun hann hafa velt mikið fyrir sér í hvað aurarnir fara. Segir
þetta hins vegar þeim mun meira um hin haukfránu augu
hafnarstarfsmanna, sem að sjálfsögðu vilja að þeirra lögsaga
uppfylli fyllstu kröfur um hreinlæti og fagra ásjónu. Ekki segir
hins vegar meira af lekanum umrædda, eða hvort að leita
megi manninn uppi af dropunum einum saman.
Skoða stundum bækur
Um síðustu helgi voru bæði Tónsmiða-
féiag Vestmannaeyja og Brasskvintet
Vestmannaeyja með tónleika í Gallerí
Áhaldahúsinu. Eyjamaður vikunnar er
virkur I báðum hópunum.
Fullt nafn ? Ósvaldur Freyr Guðjónsson.
Fæðingardagur og ár? 6. október 1964.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? I sambúð með
Hólmfríði Sigrúnu Gylfadóttur. Svo á ég
eina sex ára dóttursem heitirÁrný Björg.
Menntun og starf?
Próf úr blásarakennar-
adeild Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Starfa
sem tónlistarkennari.
Laun? Vond.
Bifreið? Nissan
Almera '98 módel.
Helsti galli? Læt
áhugamálin oft ráða
ferðinni.
Helsti kostur? Ég held
að ég sé þokkalegurtónlistarmaður.
Uppáhaldsmatur? Svið.
Versti matur? Súrmatur og lúða.
Uppáhaldsdrykkur? Á jólum er
það malt og appelsín. Dags
daglega kók.
Uppáhaldstónlist? Klassík og
bandariskt iðnaðarrokk á borð við
Chicago og Toto. Og svo
náttúrulega min eigin músík.
Hvað erþað skemmtilegasta sem
þú gerir? Að flytja mína eigin
músík.
Hvað erþað leiðinlegasta sem þú
gerir? Að spila tónlist eftir þá
bræður Högna og Óðin Hilmissyni.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Múta Gauja bæjó til að hækka laun
tónlistarkennara.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn sérstakur.
Uppáhaldsíþróttamaður? Hlynur Stefánsson.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Lúðra-
sveit Vestmannaeyja, Tónsmíðafélaginu og Brass-
kvintetnum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir.
Uppáhaldsbók? Eg skoða stundum bækur en geri
lítið að því að lesa þær.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Hreinskilni.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér i fari annarra? Óstundvísi.
Fallegasti staður sem þú
hefur komið á? Fyrir utan
Vestmannaeyjar er það
Stykkishólmur.
Er tónlistarlíf blómlegt í
Eyjum, miðað við aðra staði á
landinu? Já.
Varstu ánægður með
tónleikana á föstudaginn? Já,
þeir stóðu undir björtustu
væntingum.
Hvað er skemmtilegast við
svona uppákomur? Viðbrögð-
in í salnum (og að horfa á Grím
Gíslason, kokk og trommara).
Eitthvað að lokum? Áfram
ÍBV.
Nýfædd^
estmannaeyingar
9*
Þann 10. apríl eignuðust Sigurlaug Lára Ingimundardóttir og Kristján
Georgsson son. Hann vó 16 merkur og 55 cm. Hann hefur verið skírður
Georg Þór. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Þann 13. apríl eignuðust Ekaterina Akbasheva og Mikael Akbashev
son. Hann vó 13 merkur og var 52 cm að lengd. Hann hefur verið
skírður Boris Bjami. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Á dofinni 4*
7 8. maí Vortónleikar skólakóranna í Safnaðarheimilinu kl. 17.30
18. maí Aðalfundur Snótar
7 8. maí Opinn lyrirlestur Guðjóns Atla Auðuns sonar í Rannsóknasetrinu um aðskotaefni í lífríki sjóvarkl. 20.00
19.-20. maí Islandsbankakórinn í menningareisu í Eyjum syngur í bankanum kl. 15.30og víðar bóða dagna
19.-20. maí Vor í Eyjum 2000
20. maí Motocross í Eyjum
20. maí Skóladagur í Hamarsskóla kl. 14.00
20. maí Skólaslit Framhaldsskólans kl. 11.00.
20. maí Arsfundur Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja
20. maí Kór Strandamanna í sal Tónlistar skólans kl 17.00
24. maí Kveðjulónleikar liÚu lúðrasveitarinnar fyrir utanför, kl.20.30 í sal Listaskólas
25. maí Guðmundur Oddur Magnússon heldur fyridestur í Rannsóknasetrinu um
° ímyndarsköpun
27. maí Sigurdís Amarsdóttir opnar sýningu ó verkum sínum ó Myndlistarvori Islands bankaí Gallerí Ahaldahúsinu kl. 17.00
3. - 4. júní Sjómannadagshelgin
10.-11. júní Sjóslangaveiðimót SjóVe haldið með glæsibrag ó miðunum kringum Eyjar