Fréttir - Eyjafréttir - 18.05.2000, Qupperneq 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 18. maí 2000
Greinargerð bæjarstjóra til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga:
Stórfelld lækkun útsvarstekna
-og fækkun íbúa helsta ástæðan fyrir lakari stöðu bæjarsjóðs
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
hefur fyrir hönd bæjarstjórnar
samið greinargerð til Eftirlits-
nefndar með fjármálum sveitar-
félaga. Eins og flestum mun í
fersku minni var Vestmanna-
eyjabær eitt þeirra sveitarfélaga
sem fengu aðvörun frá nefndinni
vegna fjármálalegrar stöðu.
I greinargerðinni er helsta skýringin
á þeirri breytingu, sem orðið hefur á
atkomu bæjarsjóðs, talin stórfelld
lækkun útsvarstekna. Síðan er í
greinargerðinni rakin breytingin frá
árinu 1994 til ársins 1999, í álögðu
útsvari, meðalútsvarstekjum og íbúa-
fjölda. Þar kemur fram að meðalút-
svarstekjur 1994-1996 á verðlagi
dagsins í dag, eru liðlega 745 milljónir
á móti liðlega 655 milljónum kr. fyrir
árin 1997-1999. Sá mismunur er 90
millj. kr. á ári eða 270 milljónir á
þessu þriggja ára tímabili. Fram
kemur að íbúum hefur fækkað úr
4.888 í 4.585 á þessu tímabili.
Þá kemur fram að ekki hefur tekist að
ná þeim útsvarstekjum sem áætlaðar
vom á árinu 1999. Helsta skýringin er
sú að fiskveiðar hafa verið minni en
vonir stóðu til, bæði í uppsjávarfiski
og bolfíski.
Sérstaða í uppbyggingu
þjónustu
I greinargerðinni segir að endalaust
megi deila um hvort skuldir séu
miklar eða litlar en meta þurfí hver
staða sveitarfélagsins sé í uppbygg-
ingu á þeirri þjónustu sem til staðar er.
Vestmannaeyjabær sé vegna land-
fræðilegrar legu í þeirri stöðu að við
þurfum einir að byggja upp alla okkar
þjónustu. Mjög algengt sé í dag að
sveitarfélög hafí sameinast um upp-
byggingu eða útboð á ýmissi þjónustu
sem veita þarf.
Hátt þjónustustig
Vestmannaeyjabær hefur staðið mjög
myndarlega að allri uppbyggingu og
þjónustu við íbúana, samanborið við
önnur sveitarfélög, segir í greinar-
gerðinni. Við sem stjómum þessu
bæjarfélagi teljum að þjónustustig sé
það hátt hjá okkur að við gætum verið
með 5.500 - 6.000 manna samfélag án
þess að það kostaði miklar fram-
kvæmdir í viðbót en myndi gerbreyta
öllu rekstrarumhverfi bæjarfélagsins.
Rekstur Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans er í góðu jafnvægi. Aukist tekjur ekki á ný er ljóst að
bregðast verður við því með enn frekari sparnaði í rekstri svo að hægt sé að greiða niður lán. Ljóst er að
það mun að mestu koma niður á skertri þjónustu og fækkun á starfsfólki bæjarins því að launakostnaður
er stór hluti af rekstri Vestmannaeyjabæjar eins og annarra sveitarfélaga.
Vestmannaeyjabær hefur skapað gott
umhverfi í atvinnu- og mannlífi.
Síðan sjálfstæðismenn tóku við í
bæjarstjóm 1990 hefur bærinn hvorki
fjárfest í atvinnulífi né gengið í
ábyrgðir heldur reynt að skapa skilyrði
sem hvatningu til nýrra verka. Sem
dæmi um það má nefna að
Þróunarfélag Vestmannaeyja var
stofnað 1996 til að vinna sjálfstætt að
alhliða atvinnuuppbyggingu og
ráðgjafaþjónustu í Eyjum. Þá hefur
bærinn veitt afslætti til fyrirtækja sem
koma með nýsköpun í bæinn og em
ekki í samkeppni við önnur fyrirtæki.
Niðurgreiðsla lána
Rekstur Vestmannaeyjabæjar og
stofnana hans er í góðu jafnvægi.
Aukist tekjur ekki á ný er ljóst að
bregðast verður við því með enn
frekari spamaði í rekstri svo að hægt
sé að greiða niður lán. Ljóst er að það
mun að mestu koma niður á skertri
þjónustu og fækkun á starfsfólki
bæjarins því að launakostnaður er stór
hluti af rekstri Vestmannaeyjabæjar
eins og annarra sveitarfélaga.
Framkvæmdum er að mestu lokið og
ætti því, miðað við forsendur tekna og
jafnvægi í íbúaþróun, að vera hægt að
greiða niður lán bæjarsjóðs á eðlileg-
um tíma.
Með greinargerðinni fylgir tíu ára
áætlun um rekstur Vestmannaeyja-
bæjar, raunar tvær áætlanir, en munur
á þeim áætlunum miðast annars vegar
við að byggja upp grunnskólana
miðað við núverandi áætlun og hins
vegar við þær hugmyndir sem uppi
em í dag.
Hvað á eftir að gera?
Þá er rakið hvað eftir er að gera í
uppbyggingu þjónustunnar. Er fyrst
tekin einsetning grunnskólanna og
kostnaður við hana áætlaður 300
milljónir en sú upphæð gæti þó
lækkað vemlega vegna skipulags-
breytinga í skólunum.
Samkvæmt ESB samþykktum þarf
að fara í framkvæmdir við frá-
veitumál. Fyrir liggur framkvæmda-
áætlun næstu 8-10 ára sem gert er ráð
fyrir í þriggja ára fjárhagsáætlun.
Þá er menningarhús eitt af því sem
eftir er. í greinargerðinni segir að
ríkisstjórnin hafi samþykkt að taka
þátt í uppbyggingu fimm menningar-
húsa í sveitarfélögum á lands-
byggðinni og séu Vestmannaeyjar eitt
þein a. Ekki hafi verið tekin ákvörðun
um framhald málsins.
Þriggja ára áætlun
í þriggja ára fjárhagsáætlun 2001-
2003 er gert ráð fyrir niðurgreiðslu
skulda upp á tæpar 73 milljónir kr.
Gangi þær skipulagsbreytingar eftir,
sem unnið er að með einsetningu
skólanna, mun það breyta og llýta
fyrir frekari niðurgreiðslum og verður
Eftirlitsnefndinni gerð grein fyrir því
þegar það liggur fyrir.
íbúaþróun
Ljóst er að landsbyggðin hefur átt
undir högg að sækja og íbúum hefur
fækkað á flestum stöðum þrátt fyrir
þokkalegt atvinnuástand, miðað við
það sem áður var. Eyjamenn hafa
ekki farið varhluta af því að þessi
þróun hefur verið óhagstæð hér. Þó
svo að nokkur hálaunastörf séu hér, þá
er það aðallega sjómennska.
Atvinnumál
Atvinnumál eru í nokkuð góðu jafn-
vægi en vantar meiri fjölbreytni.
Vegna landfræðilegrar legu hefur það
háð okkur að vera í samkeppni í þeim
greinum þar sem flutningskostnaður
getur haft áhrif á vöruverð öðru
fremur. Samt sem áður hafa verið
stofnuð hér mörg fyrirtæki á síðustu
árum, önnur hafa hætt starfsemi sinni
en það er fyrst og fremst frumkvæði
Eyjamanna sem við treystum á og
Aðrar breytingar
Þá er vikið að rekstrarumhverfi veitu-
fyrirtækja, bæði vegna sameiningar og
breytinga yfir í hlutafélagaform. Þar
segir að Bæjarveitur Vestmannaeyja
séu myndarlegt og vel rekið fyrirtæki
með eignir töluvert meira virði en
skuldir. Því sé ljóst að stjómendur
bæjarins verði vel vakandi yfir þeirri
þróun sem fram undan er í þeim
malum.
I lok greinargerðarinnar segir:
„Þessar breytingar, ef af þeim yrði,
myndu einnig gerbreyta skuldastöðu
og greiðslugetu bæjarsjóðs til hins
betra. Það kæmi okkur ekki á óvart að
þau mál skýrðust á næstu einu til
tveimur árum.
Sálin, Sóldögg og Móti sól
-munu leika á stóra pallinum á þjóðhátíðinni -
Kim Larsen jafnvel væntanlegur
Búið er að ganga frá ráðningu hljómsveita á stóra
pallinn á þjóðhátíðinni í sumar. Það verða Sálin hans
Jóns míns, Sóldögg og Móti sól sem þar munu leika.
Ólafur Týr Guðjónsson, sem er í þjóðhátíðamefnd, segir
að verið sé að ganga frá öðmm málum, t.d. sagðist hann
eiga von á að ráðið yrði á litla pallinn á næstu dögum.
Ráðning annarra skemmtikrafta er einnig í vinnslu en þau
mál segir Ólafur Týr að ráðist nokkuð af því hvort sá
þekkti Dani Kim Larsen komi hingað en talsverðar líkur
em á því. Verði af því kemur það til með að hafa nokkur
áhrif á ráðningu annarra.
Ólafur Týr segir að hátt í 20 lög hafi borist í
samkeppnina um þjóðhátíðarlagið í ár en ekki sé enn
ákveðið hvenær það verði valið.
Sjöundi bekkurmáekkivinna
Fram til þessa hefur starflð í Vinnuskóla Vestmannaeyja náð til 7., 8. og 9.
bekkinga í grunnskólunum. Nú verður á því breyting. Vinnueftirlit
ríkisins hefur sent félagsmálaráði bréf þar sem fram kemur að börn yngri
en 13 ára megi ekki stunda störf við vinnuskóla sveitarfélaga.
Sigþóra Guðmundsdóttir, tómstundafulltrúi, sem hefur yfimmsjón með
Vinnuskólanum, segir að þessi tilkynning hafi komið sér nokkuð á óvart en ljóst
sé að 7. bekkingar megi ekki vinna í sumar samkvæmt þessu. „Ég er þessa
dagana að kanna hvað önnur sveitarfélög ætla sér að gera og eins hvaða úrræði
við höfum fyrir þessa krakka fyrst búið er að meina þeim aðgang að
Vinnuskólanum," sagði Sigþóra.
Leyndir gallar í Lóðsinum
Á fundi hafnarstjórnar í síðustu viku lá fyrir bréf frá kaupendum gamla
Lóðsins, sem nú heitir Elding, þar sem fram kemur að leyndir gallar og
skemmdir hafa komið í ljós á skipinu.
Olíuleki er í skiptibúnaði auk þess sem fremra þil í íbúðum er ónýtt og þarf
að rífa mikið til að lagfæra skemmdimar. Kaupendumir leggja til að loka-
greiðsla upp á eina milljón króna verði felld niður og ekki komi fleiri kröfur á
hafnarsjóð vegna kaupanna. Þessi tillaga var samþykkt í hafnarstjóm og var
hafnarstjóra falið að ljúka málinu.