Fréttir - Eyjafréttir - 18.05.2000, Blaðsíða 22
22
Fréttir
Fimmtudagur 18. maí 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
Fimmtudagur 18. maí
Kl. 14.00 Útfararguðsþjónusta
Unnar Pálsdóttur
Kl. 14.30 Helgistund á sjúkra-
húsinu þriðju hæð, heim-
sóknargestir velkomnir
Kl. 17.30Tónleikarbamakórannaí
Bamaskólanum, Hamarsskóla og
Rauðagerði
Kl. 20.00 Fundur í Safnaðar-
heimilinu með lista- og hand-
verksfólki í Eyjum vegna
kristnihátíðarafmælis
Laugardagur 20. maí
Kl. 10.30 Útfararguðsþjónusta
Haraldar Hannessonar
Kl. 14.00 Útfararguðsþjónusta
Sigríðar Guðmundu Pétursdóttur
Sunnudagur 21. maí
Kl. 11.00 Guðsþjónusta safn-
aðarins, vori fagnað.
Miðvikudagur 24. maí
Kl. 20.00 Opið hús fyrir unglinga í
KFUM&K húsinu.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Bibh'ulestur
Föstudagur
Kl. 20.30 Unglingamir á sam-
komu.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma.
Brotning brauðsins.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma.
Samskot til trúboðsins.
Allir velkomnir í
Hvítasunnukirkjuna.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 13. maí
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Kl. 10.00 Guðsþjónusta. Gestur helgar-
innar er Eric Guðmundsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían
talar
sími
481-1585
Knattspyrna: Fréttir kynna meistaraflokk IBV í knattspyrnu
Léttleikínn verður
LEIKMENN og þjálfarar mcistaraflokks ÍBV í knattspyrnu árið 2000: Aftari röð f.v. Kristinn R. Jónsson þjáfari, Gunnar Heiðar
Þorvaldsson, Davíð Egilsson, Páll Almarsson, Baldur Bragason, Olgeir Sigurgeirsson, Kjartan Antonsson, Magnús Sigurðsson, Atli
Jóhannsson, Páll Guðmundsson, Unnar Hólm Ólafsson og Elías Friðriksson aðstoðarþjálfari.
Fremri röð: Allan Mörköre, Hjalti Jónsson, Bjarni Geir Viðarsson, Birkir Kristinsson, Hjalti Jóhannesson, Ingi Sigurðsson og Steingrímur
Jóhannesson.
A myndina vantar Guðna Rónar Helgason, Momir Miieta, Goran Aleksic, Jóhann Möller og Kristin Geir Guðmundsson.
Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV,
þekkir líklega flesta þætti er snóa
að knattsparki. Enn eitt árið ætlar
Hlynur að ljá ÍBV liðinu krafta
sína, enda nýtast þeir kraftar liðinu
vel og hafa gert undanfarin ár.
Fréttir fóru þess á leit að fyrirliðinn
fræddi Iesendur sína um komandi
tímabil.
Hvernig leggjast komandi átök í
þig?
„Þetta leggst alveg ágætlega í mig.
Spá þjálfara og fyrirliða var nýlega
gerð opinber og þar var okkur spáð
þriðja sæti, á eftir KR og ÍA en
auðvitað ætlum við að gera okkar
besta til að snúa röð þessara þriggja
liða við. Við tökum þessa spá ekki
það hátíðlega að við förum að svekkja
okkur eitthvað á henni, ÍBV er lið sem
hefur unnið þrjá titla á undanfömum
þremur ámm og leikmenn liðsins vita
alveg hvemig það er að standa uppi
sem sigurvegari. Við höfum reyndar
nússt sterka leikmenn fyrir tímabilið,
ívar Ingimars, ívar Bjarklind, Zoran,
Sindra Grétars og Kidda Hafliða en
þetta em allt mjög sterkir leikmenn og
ekki öll lið sem mættu við því að
missa þá. En við höfum verið að fá
mjög sterka unga leikmenn upp í
meistaraflokk sem eiga eftir að fá
smjörþefinn af þessu í sumar og við
bindum miklar vonir við þá. Mér
sýnist að á næstu árum eigi eftir að
fara fram kynslóðaskipti hjá IBV,
gamlir refir eins og Birkir Kristins.,
Ingi Sig. og Steingrímur eiga eftir að
hverfa á braut og þá munu ungu
leikmennimir taka við. En það þarf að
halda réttri blöndu í þessu og ég vona
að við eigum eftir að finna hana, ef við
eram ekki þegar búnir að því. Svo em
á leiðinni til okkar tveir útlendingar,
Goran þekkjum við en hinn er dálítið
spumingarmerki og þar sem þeir
koma ekki fyrr en í þriðja leik þá er
tíminn fyrir þá að aðlagast liðinu ekki
mikill. En við emm með topplið þrátt
fyrir að þeir séu ekki til staðar.“
Hver eru markmið liðsins fyrir sum-
arið?
„ Við ætlum okkur að sjálfsögðu að
halda okkur í toppbaráttunni. Eigum
við ekki að segja að við stefnum á
Evrópusæti, það er gott markmið fyrir
tímabilið og getur tryggt liðinu góðan
pening fyrir framtíðina. En eins og ég
hef sagt þá em menn í iiðinu sem hafa
unnið til titla og þá hungrar enn í þá.
Annars hefur öll athygli beinst að KR
og IA þar sem þeirra leikmannamál
hafa verið í brennidepli og ég tel það
ágætis kost fyrir ÍBV að vinna dálítið
bak við tjöldin."
En hvernig finnst þér undirbúningur
liðsins hafa verið?
„Undirbúningur liðsins hefur verið
eins góður og möguleiki hefur verið á.
Eins og allir vita þá var veturinn
sérstaklega erfiður í ár og ekki sást í
malarvöllinn svo mánuðum skipti
þannig að maður varð bara að ná í
gamla vetrargallann og hlaupa í skjóli
húsanna héma. En þessar tvær
utanlandsferðir hjá okkur hafa hjálpað
okkur mikið þar sem við höfum náð
að stilla saman strengi okkar, þó það
hefði óneitanlega verið gott að hafa
útlendingana með í för þá verður ekki
á allt kosið í þessu. Annars er ég bara
passlega bjartsýnn á sumarið, það
verður stefnan hjá okkur í ár að
léttleikinn fái að ráða ríkjum eftir
frekar þungt og erfitt tímabil í fyrra og
aðungumennimirfáisíntækifæri. Ég
vona bara að áhorfendur eigi eftir að
HLYNUR Stefánsson.
sýna okkur þolinmæði, þessir strákar
verða ekki toppfótboltamenn á einum
degi, þeir þurfa tíma og með góðum
stuðningi bæjarbúa held ég að IBV
eigi eftir að vera í toppbaráttunni í
mörg ókomin ár.“
Verður jafnt í sumar
Hjalti Jónsson er fulltrúi ungu kyn-
slóðarinnar sem nú er að banka
hressilega á dyr byrjunarliðs ÍBV.
Hjalti hóf feril sinn í meistaraflokki á
síðasta tímabili, en fékk fá tækifæri
með liðinu og var á endanum lánaður
til FH þar sem hann var í byrj-
unarliðinu. Fréttir náðu tali af Hjalta
þar sem hann sat í hárgreiðslustólnum
og lét gæla við hárið.
Nú er stutt ífyrsta leik, hvemig leggst
hanti í þig?
„Ja, ég hlakka bara til að spila
fyrsta leikinn á Islandsmótinu héma
heima. Við álpuðumst til að tapa fyrir
þeim í deildarbikamum þannig að ég
held að menn séu alveg tilbúnir í
leikinn. Vinnuveitandi minn, Stebbi í
Eyjablikk, er Fylkismaður og ég hef
varla fengið frið fyrir honum þannig
að við verðum eiginlega að vinna
KRISTINN þjálfari.
leikinn svo maður fái nú frið. En
annars má segja að ég sé bara nokkuð
bjartsýnn á sumarið sem framundan
er. Hópurinn sem við erum með er
bæði breiður og jafn þar sem allir hafa
fengið að spreyta sig í þeim leikjum
sem við höfum spilað á undir-
búningstímabilinu. En það sýnir sig
strax í byrjun móts þegar við spilum
sex leiki á 22 dögum að allir þurfa að
vera klárir í slaginn."
Þatmig að menn eru bara vel
stemmdirfyrir sumarið ?
„Já mér finnst það. Við vorum á
Hvolsvelli um helgina þar sem við
æfðum við góðar aðstæður, en fyrst og
fremst náðum við saman sem hópur
sem hefur mikið að segja.“
Nú varstu lánaður í fyrra til FH þar
sem þúfékkstfá tœkifœri tneð liðinu,
verður ekki annað á döfinni í ár?
„Júégætlaaðvonaþað. I fyrravar
ég kannski ekki alveg tilbúinn í
slaginn og var lánaður til FH þar sem
ég öðlaðist dýrmæta reynslu. Per-
sónulega tel ég þetta rétt í þeirri stöðu
að þegar ekki er pláss fyrir leikmenn
og skera þarf hópinn niður þá á að láta
viðkomandi vita strax fyrir tímabilið
hver staðan sé. Þá er hægt að spila út
frá því og jafnvel fara eitthvað annað í
eitt ár og öðlast reynslu. En eins og ég
segi þá vona ég að ég verði allavega í
16 manna hópnum en þetta er undir
mér sjálfum komið. Kiddi hefur verið
að berja því í hausinn á manni undan-
farin ár að maður uppsker eftir því
sem maður sáir og ég hef lagt mikið á
mig til að vera sem best í stakk búinn
þegar kallið kemur."
Hvaða lið eiga eftir að vera í
toppbaráttunni?
„Þetta á eftir að verða mjög jafnt í
sumar og þessi helstu lið eiga líklega
eftir að vera við toppinn. Annars hef
ég lítið verið að velta mér upp úr því
hvemig hin liðin séu, við þurfum bara
að einbeita okkur að okkar leik, og
hver að sjálfum sér, þá eiga hlutimir
að ganga upp. Þetta er bara undir
okkur sjálfum kornið."