Fréttir - Eyjafréttir - 18.05.2000, Blaðsíða 24
- itinanbæjar
Doglegar
ferðir milli
londs og Eyja
Landputningar
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
® 4811909 - 896 6810 - fax 4811927
A I ' I
Vilhjálmur Bergsteinsson
* 481-2943
* 897-1178
SSMðÍPEððAlÍLL
Humar-
veiðar
að hefjast
Nú er af sú tíð þegar talað var
um að humarvertíð hæfist upp
úr miðjum maí. Aður var sú
venjan og t.d. skólaslit
Stýrimannaskólans stundum
miðuð við að nemendur væru
lausir þegar sú vertíð hæfist.
Nú er heimilt að stunda
humarveiðar allan ársins hring
þó að ekki sé slíkt algengt, a.m.k.
hafa skip frá Eyjum ekki nýtt
sér þær heimildir. Humarveiðar
munu því hefjast frá Eyjum á
svipuðum tíma og venjulega.
Aðeins einn bátur mun stunda
humarveiðar hjá Isfélaginu, eins
og verið hefur undanfarin ár,
Álsey VE, enda er humarkvóti
Isfélagsins aðeins um 12 -13
tonn og því varla til skiptanna
eins og Hörður Oskarsson hjá
Isfélaginu orðaði það. Álsey
mun að líkindum halda til veiða
í dag eða á morgun.
Vinnslustöðin hefur yfir að ráða
nokkru stærri humarkvóta eða
um 40 tonnum. Ekki náðist í
útgerðarstjóra
Vinnslustöðvarinnar í gær áður
en blaðið fór í prentun til að fá
upplýsingar um fjölda báta frá
þeim á humarveiðum í sumar en
í fyrra stunduðu sjö bátar þær
veiðar, bæði heimabátar og
aðkomuskip.
MARGIR nýttu sér að fylgjast með Keikó þegar þjálfararnir létu hann stökkva á laug-
ardaginn. Ekki mátti fara út á bátum og varð fólk að fylgjast með af útsýnispallinum.
Kolmunna landað í Eyjum:
Brot á lögum um vinnudeilur
-segir Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélagsins
Undanfarna daga hefur verið landað hér nokkru af
kolmunna til bræðslu. Bergur VE landaði um 500
tonnum í fyrradag og í dag er Sighvatur Bjarnason VE
væntanlegur með fullfermi eða um 1400 tonn.
Beitir NK landaði hjá ísfélaginu í íyrradag 1000 tonnum.
Hörður Óskarsson hjá ísfélaginu segir að fleiri skip hafi
sýnt því áhuga að landa kolmunna hjá Isfélaginu, Faxi RE
væri væntanlegur en vissi ekki hvenær það yrði. Löndunin
úr Beiti olli nokkrum titringi þar sem verkamenn í
loðnubræðslum á Austurlandi eru í verkfalli og var það litið
alvarlegum augum eystra að skipið skyldi fá löndun hér.
Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmanna-
eyja, segir að þegar Ijóst var að skipið ætlaði að landa í
Eyjum hefðu Austfirðingar ætlað að koma hingað og
stöðva löndun úr þvf en síðan hætt við það. „Þetta er brot
á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur en ég held að þetta
hafi verið slys og varla með vilja gert. Enda heldur pínlegt
að menn með lausa samninga og ekki í verkfalli séu að
ganga inn í störf félaga sinna annars staðar á landinu sem
eru í verkfalli," sagði Jón Kjartansson. Fundur var í stjóm
Verkalýðsfélagsins í gærkvöldi þar sem taka átti þessi mál
fyrir.
Keikó úr
Klettsvík
ínæstu
viku?
Eins og getið var í síðustu
Fréttum ákvað hafnarstjórn að
fresta sprengingum við Naust-
hamarsbryggju í nokkra daga af
tillitssemi við háhyrninginn
Keikó en talið var að hann kynni
að bíða tjón af slíku atferli.
Nú mun sá frestur liðinn sem
forsvarsmenn Keikós fengu og
er áætlað að hefja sprengingar
fljótlega í næstu viku. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins eru
sterkar líkur á því að háhyrn-
ingnum verði sleppt úr Klettsvík
meðan sprengt verður. Þegar
sprengingarnar eru afstaðnar
verði hann síðan færður inn í
vfldna á ný.
Að öllu óbreyttu er fyrirhugað
að sieppa dýrinu í júlí eða ágúst
í sumar og hafa vonir manna
um að hvalurinn geti spjarað sig
einn og óstuddur heldur aukist.
Því gæti orðið fróðlegt að sjá
hvernig hann tekur því að yfir-
gefa griðasvæði sitt í Klettsvík
meðan sprengt verður fyrir nýju
þili við Nausthamar og kannski
spurning hvort hann afþakkar
frekari gistingu í Klettsvík og
heldur strax á vit frelsisins.
Nýtt kortatímabil !!!
Vikutilboð Vöruvals
*vikuna 18. - 25. maí
Sæfellsegg, 2+1
þú kaupir2 bakka en færð 3
Swiss miss kakó
359,- ðður 429,-
Hunts tómatsósa, 1,13 kg.
179,- áður 219,-
Kingsford grillkoL 2,27 kg. 229,- áður 279,-
Kingsford grillkol, 4,54 kg. 379,- áður448,-
Kingsford grillkveikir, 946 ml. 329,- áður 387,-
Sambó lakkrískonfekt
199,- áður 276,-
Qrville örbylgjupopp
fjölskyldupakki
249,- áður 279,-