Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Page 1
GÚSTI á Lóðsinum og Sigga í Skuld skemmtu sér vel í Skvísusundi. Loðnu og kolmunna landað í Eyjum: Unnið á fullu í báðum bræðslunum íslensk matvæli í startholunum: Vinnsla í Eyjum hefst í næstu viku -Auglýst eftir fólki í blaðinu í dag í blaðinu í dag er auglýsing frá fyrirtækinu Islcnsk matvæli ehf. þar sem óskað er eftir fólki til starfa við pökkun og vinnslu á laxi og sfld. Fyrirtækið var fyrir skömmu keypt til Eyja fyrir atbeina Þróunar- félagsins og nú er komið að því að rekstur þess hefjist. Þorsteinn Sverrisson, framkvæmdastjóri Þró- unarfélagsins segir að vinnsla muni hefjast fljótlega í næstu viku, ekki þó á fullum alköstum heldur er það hluti framleiðslunnar sem þá fer í gang. Undanfarna daga hafa farið fram viðræður um húsnæði fyrir starfsemina og Þorsteinn segir að þau mál verði til lykta leidd um helgina. Ný tækjalína kemur til Eyja í dag og verður sett upp strax eftir helgi. Þorsteinn segir að nú sé auglýst eftir átta til tíu manns til pökkunar og vinnslu. „Við erum að leita að góðu fólki með reynslu af fisk- vinnslustörfum. Ingvar Karlsson, framleiðslustjóri hjá Islenskum matvælum, mun stjórna vinnslunni, a.m.k. til að byrja með en vinna á bæði lax og síld fyrir Bandaríkja- markað," sagði Þorsteinn. Þurrkvíin: Málin ættu að skýr- ast í næsta mánuðf í vor var frá því greint að í athugun væri að setja upp þur- rkví í Vestmannaeyjum. Aætlað var að hún yrði sett upp á at- hafnasvæðinu á Eiðinu og miðað við að hún gæti tekið öll skip í Eyjaflotanum. Gunnlaugur Axelsson í Skipa- lyftunni segir að verið sé að vinna í þessu máli, fyrsta skrefið hafi verið að kanna væntanlegan hluthafahóp. Reyndin sé sú að flestir hlutir gangi rólegar yfir sumartímann en á öðrum tíma árs og það sé eins með þetta, menn í sumarfríum og allt taki tímann sinn. En væntanlega ættu þessi mál öll að skýrast þegar líða tekur á ágúst, að sögn Gunnlaugs. Hin ágætasta loðnuveiði hefur verið undanfarna daga á miðunum norðvestur af landinu. Talsverðu niagni hefur verið iandað í Vestmannaeyjum hjá báðum bræðslunum þrátt fyrir að siglingin af miðunum taki nokkuð á annan sólarhring. Þá hefur kolmunna einnig verið landað hér til hræðslu. Guðjón Engilbertsson, verk- smiðjustjóri hjá FES, segir að þeir hafi byrjað að taka á móti loðnu í júnímánuði, reyndar aðeins einum farmi í þeim mánuði, en það hafi verið mjög líflegt síðustu daga. A föstudag í síðustu viku landaði Antares 900 tonnum og síðan hafi Sigurður. Harpa og Guðmundur landað loðnu, þetta hali verið eitt skip á dag sem sé ágætt og með þessu hafist vel undan að vinna aflann. I gær var búið að taka á móti um 5000 tonnum hjá FES. Guðjón segir að þetta sé þokkaleg loðna en nokkuð misjöfn og þoli ekki geymslu, vinna verði hana strax og hún er komin í land. Sigurður Friðbjörnsson, verk- smiðjustjóri hjá Fiskimjölsverk- smiðju Vinnslustöðvarinnar, segir að undanfarið hali þar verið unnin loðna og kolmunni til skiptis. Kap er á loðnuveiðum, landaði á sunnu- dag 850 tonnum og var væntanleg í nótt með svipað magn. Sighvatur er á kolmunnaveiðum og landaði 1360 tonnum á þriðjudag. Sigurður segir að þetta sé ekki nægilegt magn til að sjá .fyrir samfelldri vinnslu, aðeins hafi slitnað á milli en þetta sé engu að síður mjög gott og mun betra en var á sama tíma í fyrra. „Þetta er allt saman ntjög jákvætt og við getum ekki annað en verið ánægðir með lífið og tilveruna," sagði Sigurður. Lítið mál er þótt landað sé til skiptis loðnu og kolmunna til vinnslu, vinnsluferlið er hið sama þó að sjálfsögðu sé þessum af- urðum ekki blandað saman. „Ég var sjálf þátttakandi í sýningunni og kynntist ég fjölda fólks um helgina sem er að vinna við það sama og ég,“ sagði Selma Ragnarsdóttir sem tók þátt í MSFS sem haldið var hér um helgina. Og hún bætti við: „Langflestir voru yfir sig hrifnir af Eyjunum og öllu því sem kom að skipulagi Vestmannaeyinga. Tekið var gríðarlega mikið af myn- dum og sjónvarpsvélarnar rúlluðu allan tímann. Sjálf fékk ég mikla athygli vegna tengsla minna við Vestmannaeyjar." Bls. 14 og 15. EKKI vitum við hvað þær heita en sætar eru þær. Bílaverkstæðið pri LK@I TM-ORYGGI Bragginn s-f. CjSS»gi fyrir fjölskylduna Flötum 20 * . tm sameinar öll tryggingamálin á einfaldan og hagkvæman hátt Viðgerðir og srrurstöð Sími 481 3235 Réttingar og sprautun SimiÆUL535 SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS Júní - september Frá Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfn Alla daga. 8.15 12.00 Aukaferð mán., fim., fös. og sun. 15.30 19.00 H ERJÓLFU R NánarÍ upplýsingar: Vestmannaeyjar: Sími 481-2800 Þoriákshöfn: Sími 483-3413 • Fax 481 2991 •Fax 483 3924 .andflutningar / SAMSKIP

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.