Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagurinn 12. júlí 2001
Viðbót til
Þróunarfélags
Fyrir fundi bæjarráðs á mánudag lá
bréf frá Þróunarfélagi Vestmanna-
eyja þar sem farið er fram á aukinn
styrk að upphæð ein milljón kr. Þá
er farið fram á ábyrgð vegna
skuldbindinga Þróunarfélagsins,
vegna atvinnuuppbyggingar, er
nemur 10 milljónum kr. Þetta
erindi var samþykkt íbæjairáði og
er bæjarlögmanni falið að ganga frá
ábyrgðinni í samræmi við sveita-
stjórnarlög. Þá verður og gert ráð
fyrir einni milljón króna til ÞV í
endurskoðaðri fjárhagsáætlun árs-
ins.
Fasteignagjöld
hækki ekki
Ragnar Óskarsson lagði á síðasta
l'undi bæjarráðs fram svohijóðandi
tillögu: „1 framhaldi af breytingum
á fasteignamati, sem taka eiga gildi
15. sept. nk„ samþykkii'bæjan'áð að
gera viðeigandi ráðstafanir þannig
að fasteignagjöld, vegna þeirra
breytinga, hækki ekki á fasteignum
íVesunannaeyjum" Þessaritillögu
var vfsað til afgreiðslu bæjar-
stjómar.
Hverjar eru
tekjurnar?
A fundi bæjarráðs á mánudag lagði
Ragnar Óskarsson fram fyrirspurn
unt hve mikið lekjur bæjarsjóðs
Vestmannaeyja hefðu aukist vegna
yfirtöku grunnskólans frá því að
sveitarfélaginu var falinn rekstur
hans. Samþykkt var í bæjarráði að
fela Deloitte & Touche að gera
úttekt á málinu.
Róðuneytið synjar
um breytingu
Fyrr á árinu sendi Vestmanna-
eyjabær heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu erindi þess efnis
að heimilt yrði að breyta þremur
dvalarrýmum að Hraunbúðum í
hjúkrunarrými. Nú liefur ráðuneyt-
ið svarað þessu erindi og er þvf
synjað. Samkvæmt bréfi ráðu-
neytisins verður þetta erindi þó
skoðað vegna tjárlaga ársins 2002.
Eyjabústaðir fó
afslótt
Bæjarráð hefur samþykkt tillögu
Þróunarfélagsins um að Eyja-
bústaðir fái afslátt af gjöldum vegna
nýsköpunar.
Jakob Smóri fer
fram ó styrk
Fyrir síðasta fundi bæjarráðs lá bréf
frá Jakobi Smára Erlingssyni,
myndlistarmanni þar sem farið er
fram á styrk vegna málverkasýn-
ingar hans í Eden í Hveragerði.
Þessu erindi var vísað til menning-
armálanefndar.
Vilja merkja söfnin
A síðasta fundi menningarmála-
nefndar var m.a. rætt um merkingar
á Safnahúsinu og aðkomuleiðir að
því. Nefndin vekur athygli á því að
merkja þarl' betur söfn bæjarins og
aðkomuleiðir að þeim.
Kanínuplága í Eyjum?
Nýir ferfætlingar hafa á síðustu
árum verið að gera sig
heimakomna í dýraríkinu í Eyjum.
Hér er um að ræða kanínur sent
upphaflega hafa verið fluttar
hingað sem gæludýr en hafa sloppið
út í náttúruna og náð að laga sig að
staðháttum.
Asmundur Pálsson, meindýraeyðir,
segist, í viðtali við Morgunblaðið,
hafa lagt að velli um 300 kanínur á
síðustu sex ámm, þar sem þær voru
farnar að valda ónæði í lunda-
byggðum og görðum. Fyrir tveimur
árum sögðu lundaveiðimenn í Sæfjalli
að stefndi í óefni vegna ágangs kanína
og ástandið hefur ekki batnað síðan.
Fyrir um sex til sjö ámm varð fyrst
vart við kanínur sern lifðu villtar fyrir
ol'an hraun og töldu flestir að þær
myndu ekki lifa af harðan vetur.
Annað hefur komið í ljós og nú skiptir
fjöldi kanína í Eyjurn ekki lengur
tugum eða hundruðum, heldur þús-
undum. Kanínur hafa náð að hreiðra
um sig annars staðar á landinu en ekki
í jafnmiklum mæli og í Eyjum enda
eru aðstæður líklega hvað bestar hér á
landinu, hlýtt og milt loftslag og engin
rándýr í náttúrunni á borð við ref og
mink.
Líklega dettur fáum í hug að þessi
fallegu og gæfu dýr geti orðið að
plágu en það eru þær víða um heim,
t.d. í Astralíu þar sem þær valda
bændum þungum búsifjum. Kanínur
em sérlega frjósamar, hvert kanínupar
getur eignast 20 unga á ári sem síðan
halda áfram að fjölga sér og gæti
fjöldinn því orðið ógnvænlegur ef allt
lifði af. Sem betur fer er þó ekki hætta
á slíku og óblfð náttúra sér um að
takmarka fjölda þeirra.
„Jú, jú, ég hef orðið var við kanínur,
aðallega suður á eyju, við Lyngfell.
Hamarinn og í Helgafellsdal og einnig
á Haugununt," segir Kristján Bjarna-
son garðyrkjustjóri. „Þær skemma
trjágróður, naga börkinn allan hring-
inn þannig að tré drepast. A því hefur
borið t.d. í gróðurlundinum við Flug-
stöðina svo og í Gaujulundi. Ég held
að við séum svo sem ekkert að
dmkkna í kanínum en ég er ekki hress
með þær og yrði ekkert sorgbitinn þótt
þeim fækkaði eitthvað," segir Kristján
Bjamason.
Þegar verið var að rífa gamla
Golfskálann fyrir rúmu ári, kom í ljós
að svört kanína hafði hreiðrað um sig
undir honum. Hún fann sér nýjan
verustað, undir veröndinni við Golf-
skálann, lengi vel ein en í vor fann hún
sér félaga. Menn héldu lengi í þá von
að þessi félagi væri af sama kyni eða
þá að þarna væm félagar úr „Sam-
tökunum 78“ en þær vonir hafa
brugðist því að í sumar hefur fjölgað
svörtum kanínum við golfvöllinn.
Ennþá hafa kanínumar við golfvöllinn
ekki verið til vandræða en nú óttast
kylfingar að breyting kunni að verða
þar á. Golfíþróttin byggist á holum á
réttum stöðum og líf kanínunnar
byggist líka á því að eiga sér holu á
réttum stað. Gallinn er hins vegar sá
að þessar tvær gerðir af holum fara
ekki vel saman og kylfingum gest lítt
að því að kanínur taki að sér holugerð
í stað vallarstarfsmanna.
Nú er það helsta von kylfinga, sem
og lundaveiðimanna og trjáræktar-
fólks að náttúran grípi í taumana og
sendi okkur þokkalega harðan vetur
þannig að eitthvað megi draga úr
fjölgun þessara annars geðugu en
heldur óvelkomnu nýbúa.
DAVÍÐ í Tölvun kom með þessa tösku og riffilskot sem hann sagði að hefðu fundist á Stakkó þar sem
mikið jarðvegsrask hefur verið undanfarið. Giskar hann á að þetta sé frá síðari heimstyrjöldinni.
Skemmdir á
vatnslistaverki
Vatnslistaverk var vígt sl.
laugardag á Stakagerðistúni. Er
það hið fallegasta og setur
skemmtilegan svip á túnið og
miðbæinn.
Stax á sunnudeginum höfðu verið
unnar skemmdir á umhverfi
verksins. Sefgras sem prýðir
tjömina sem listaverk Páls
Guðmundssonar stendur í hafði verið
rifið upp ásamt festingum og búnaði
og eyðilagt þannig að tjömin var sem
forarpyttur. Lagfæringar fóm fram á
sunnudeginum en það dugði skammt
því gróður hafði aftur verið rifinn
upp úr tjöminni og umhverfis hana á
mánudagsmorgun. Er ljóst að
skemmdir em töluverðar og eru
foreldrar bama hvattir til að tala um
fyrir bömum sínun ef þau koma
rennblaut heim. Það er óþolandi ef
þau verk sem em sett upp til þess að
fegra bæinn eru skemmd og
eyðilögð.
Friðbjöm vill lýsa
upp Heimaklett
Friðbjörn Valtýsson skrifaði fyrir
skömmu stjóm Bæjarveitna bréf þar
sem hann varpaði fram þeirri hug-
mynd að lýsa upp Heimaklett.
Bæjarráð fjallaði um þetta erindi á
síðasta fundi og lýsti sig hlynnt
hugmyndinni en vísaði rnálinu að
öðru leyti til sjómar Bæjarveitna.
Slfkar framkvæmdir eru ekki ó-
þekktar á Islandi, t.a.m. hefur
Reykjanesbær lýst upp bergvegg
við Helguvík og þykir hafa tekist
vel þar.
Þessi hugmynd hefur áður komið
til umræðu innan Bæjarveitna.
Biddý skoraði
Bryndís Jóhannesdóttir skoraði
annað af tveimur mörkum tslenska
U-21 árs landsliðsins þegar það
lagði Ira að velli 2-1. Liðin léku tvo
leiki og skiptu með sér sigrunum.
Elfa Asdís Olafsdóttir og Lind
Hrafnsdóttir vom einnig með liðinu.
Þá vom þær Elva D. Grímsdóttir og
Margrét Lára Viðarsdóttir með U-
17 ára liðinu á Norðurlandamótinu
þar setn Island endaði í neðsta sæti
og tapaði öllunt Ieikjunum. Mar-
grét skoraði tvö mörk í síðasta
leiknum, gegn Hollandi en sá leikur
tapaðist 3-4.
Pústrar á goslokum
Ekki fór goslokahátíðin árekstra-
laust fram og vom þrjár líkams-
árásir kærðar til lögreglu eftir
helgina. Áttu þær sér allar stað í
Skvísusundi. Ekki var um alvarlega
áverka að ræða, þó varð að flytja
eitt fómarlambanna á sjúkrahús. Sá
fékk skurð á höfuð eftir að hafa
fengið fiösku í höfuðið.
Gekk berserksgang
Fjögur skcmmdarverk vom kærð til
lögreglu í vikunni. Það alvarlegasta
átti sér stað aðfaranótt 7. júlí en þá
gekk ungur maður berserksgang í
íbúð þar sem hann var gest-
komandi. Skemmdi hann nánast
allt sem þar var lauslegt og henti
m.a. örbylgjuofni út um glugga.
Var hann handtekinn og fékk að
gista fangageymslu þar til af honum
hafði runnið víma og vígamóður.
Rúðubrot
Um helgina var brotin rúða á
veitingahúsinu Lundanum. Einn af
gestum var ekki sáttur við að vera
vísað út af staðnum og sparkaði í
rúðu í kveðjuskyni. Þá var rúða
brotin í verslun ÁTVR við
Strandveg og ekki vitað hver var
þar að verki. Ekki er heldur vitað
hver var að verki þegar tvær rúður
voru brotnar að Bröttugötu 18.
Hjóli stolið
Einn þjófnaður var kærður til
lögreglu í vikunni. Hjóli var stolið
frá Búastaðabraut 3 aðfaranótt 8.
júlí. Hjólið er af gerðinni TREK,
hvítt og blátt að lit.
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: ÓmarGarðarsson. Blaðamenn: Sigurgeir Jónsson, Guðbjörg
Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjaf retti r. is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni,
Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að
Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
FRETTIR
I