Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Side 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 12. júlí 2001
Ætlaði að verða fegurðardrottning
Sumarstúlkukeppnin fer fram á laugardag en þessi keppni
erorðin árviss í skemmtanalífi Vestmannaeyja. Að þessu
sinni taka 11 stúlkur þátt í keppninni og hafa þær að
undanförnu verið kynntar á síðum Frétta. Fram-
kvæmdastjóri Sumarstúlkukeppninnar er Eyjamaður
vikunnar.
Fullt nafn? Dagmar Skúladóttir.
Fæðingardagur og ár? 27. júlí 1971.
Fæðingarstaður? Reykjavík en ég er samt Vest-
mannaeyingurl!
Fjölskylda? í sambúð með Hjalta Einarssyni,
tvær dætur.
Hvert var draumastarfið þegar þú varst
Iftil? Ég ætlaði að verða fegurðardrottning en
það varð aldrei neitt úr því.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Volks-
wagen Passat, ég á Bora núna og væri alveg
til i að skipta.
Hver er þinn helsti kostur? Góður kokkur.
Hvaða eiginleika vildir þú helst vera án?
Það væri gott að losna við stressið.
Uppáhaldsmatur? Svínakjöt er í uppáhaldi.
Versti matur? Allur súrmatur.
Með hvaða aðila vildir þú helst eyða helgi?
Óperusöngvaranum Andrea Bocelli. Hann er
blindur og stórkostlegur söngvari.
Aðaláhugamál? Líkamsrækt og dans. Og
tískan.
Hvar vildir þú eiga heima annars staðar en
í Eyjum? Alla vega ekki í Reykjavík.
Hver fannst þér vera maður síðasta árs? Kristín Rós
Hákonardóttir, sundkona, er alveg frábær.
Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag? ÍBV f
íslenska boltanum og Chelsea í þeim enska. Uppá-
haldsíþróttamaðurinn er eldri dóttir mín, Erna, Vest-
mannaeyjameistari í fimleikum. Svo eru bræður mínir,
Friðrik og Siggi auðvitað í uppáhaldi, annar í körfunni, hinn
í handboltanum.
Stundar þú einhverja íþrótt? Líkamsrækt.
Ertu hjátrúarfull? íhófi. Mérerekki vel við svarta ketti.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Vinir.
Besta bíómynd sem þú hefur séð? Gladiator sá ég
nýlega og hún er góð.
Hvað finnst þér gera fólk aðlaðandi? Það sem tengist
útgeislun, bros og annað jákvætt í framkomu.
Hvað finnst þér gera fólk fráhrindandi? Fýla og frekja.
Hver er munurinn á Sumarstúlkukeppninni og
eiginlegri fegurðarsamkeppni? í Sumarstúlkukeppninni
eru ekki þessirföstu staðlar, ákveðin hæð, þyngd og þess
háttar. Svo er þetta miklu skemmtilegri keppni, léttara yfir
öllu, ekki eins formfast og hitt.
í hverju er þitt starf fólgið? Sjá um allar æfingar, semja
dansa, innkomur, hafa umsjón með tískusýningu og vaka
yfir velferð þátttakenda. Þetta er svona smábrot af því
sem ég sé um.
Er gaman að þessu? Frábært. Samt er ég ákveðin í því
að þetta verður síðasta árið mitt í þessu. Það er kominn
tími til að fá nýtt (og yngra) blóð í þetta starf.
Eitthvað að lokum? Ég er mjög ánægð með þjóð-
hátíðarlagið, alveg í skýjunum yfir því. Svo sjáumst við á
Sumarstúlkukeppninni á laugardag.
Dagmar Skúladóttir
er Eyjamaður vikunnar
Matgæðingurinn er Kári Þorleifsson
Kjúklingabringur og ostatjúttari
Takk Valli minn, ég vissi að þú
myndir ekki bregðast mér. Hér
koma tvær afbragðs uppskriftir.
Pönnusteiktar
kjúklingabringur
með Dijon-sinnepi og rjóma
Hráefni:
4 stk. kjúklingabringur
Smjör til steikingar
2 dl rjómi
1 dl vatn
1/2 matsk. Knorr kjötkraftur (Fond-
Kalv í flösku)
1/2 -1 matsk. Dijonsinnep
Estragon krydd
Kryddið kjúklingabringurnar með
salti og pipar, steikið í litlu smjöri í
ca. 20 mín (fer eftir stærð). Setjið
vatn, rjóma og kjötkraft út í,
hrærið sinnepinu saman við og
látið sjóða þangað til sósan er
orðin mátulega þykk, Sósan er
síðan krydduð með salti, pipar og
estragoni eftir smekk.
Berið fram með hrísgrjónum,
snöggsoðnu spergilkáli eða því
grænmeti sem hver og einn hefur
smekk fyrir.
Þar sem Valli vinur minn er
þekktur tjúttari læt ég fylgja með
eina góða uppskrift að
ostatjútturum.
Valla-
ostatjúttarar
(skinkusnúðar)
sesamfræjum stráð yfir, Gott er
líka að setja bara smá ost ofan á.
Bakað í 10 -15 mín við 250
gráður.
(Mjög þægileg uppskrift t.d. fyrir
þjóðhátíðina, má frysta)
Ég ætla að skora á Einar Frið-
þjófsson, sem að eigin sögn er
mesti og besti grillari í heimi.
Hráefni:
500 g smjördeig
(fæst frosið í
pökkum)
2-3 matsk. Dijon
sinnep
150 g skinka eða
pepperoni
150 g óðalsostur
1 egg
sesamfræ
Fletjið út smjördeig
(þunnt) þegar það
hefur þiðnað,
smyrjið með
sinnepi, síðan osti
og skinku eða
pepperoni dreift
ofan á. Rúllað upp
og skorið í u.þ.b. 1
cm sneiðar.
Penslað með eggi
og
Kári Þorleifsson
matgæðingur vikunnar
?o"
Vestmannaeyingar
Þann 26. apríl eignuðust Ragna Lára Jakobsdóttir og Ivar
Gunnarsson son, sem hefur verið skírður og heitir Davíð Þór. Með
Davíð Þór á inyndinni er systir hans Ingunn Sara. Fjölskyldan býr í
Bandaríkjunum, þar sem Ivar stundar framhaldsnám í læknisfræði.
Ingveldur Hermannsdóttir og Sigurður Magnús Jónsson eignuðust
dreng þann 17. mars sl. Hann fæddist á Landspítalanum, vó 13 merkur
og var 50 cm á hæð. Drengurinn hefur verið skírður Hennann Páll.
Fjölskyldan býr í Reykjavík
Á döfinni 4*
Júlí
13. KFS ■ ÍH ó Helgafellsvelli kl. 20.00.
14. Golfmót, Opna Samskipamótið.
14. Keppnin Sumarstúlka Vestmannaeyja órið 2001 í Höllinni.
15. Símadeild karla, ÍBV-Breiðablik kl. 20.00.
16. -21. Golfmót, meistaramót Vestmannaeyja.
20. Símadeild kvenna ÍBV-Valur kl. 20.00.
28. Golfmót, Sjómanna- og útvegsmannomótið.
31. KFS ■ GG ó Helgafellsvelli kl. 20.00.
Ágúst
I. Símadeild karla ÍBV-Fram kl. 20.00.
3. Þjóðhótíð Vestmonnaeyja.
II. Golfmót, Suðurlandsmótið.
14. KFS - Njarðvík kl. 19.00 ó Helgafellsvelli.