Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Qupperneq 6
6 Fréttir Fimmtudagur 12. júlí 2001 Golfeeviniýri íslandsbanka: Þar var golf númer 1,2 og 3 Mjög góð þátttaka var í Golfævintýri Golfklúbbs Vestmannaeyja en það var nú haldið í sjöunda sinn. Golfævintýrið stóð frá 2. til 5. júlí og þátttakendur voru 140 á aldrinum átta til fimmtán ára, 40 frá Eyjurn en um 100 frá hinum ýmsu golfklúbbum á landinu. Yflrumsjón með Golfævintýrinu hafði Júlíus Hallgrímsson og hafði sér til aðstoðar flokk vaskra kylfinga úr GV. Félagar úr GV aðstoðuðu cinnig við mótshaldið á ýmsan annan hátt, t.d. við störf í eldhúsi og sal en hin ágæta aðstaða í Golfskálanum nýttist vel á Golfævintýrinu þar sem unnt var að sjá um mat fyrir alla þátttakendur á staðnum. Eins og gefur að skilja var golf númer eitt, tvö og þrjú, æfingar, leiðbeiningar, þrautir og kcppni en að auki var ýmislegt fieira gert, þátttakendum til ánægju, svo sem bátsferðir og skoðunarferðir. Hið ágætasta veður var alla dagana sem auðveldaði mjög alla framkvæmd auk þess sem mun skemmtilegra er að leika golf í góðu veðri. Fréttir litu við á golfvellinum á miðvikudag í síðustu viku og smelltu nokkrum myndum af kylfingum framtíðarinnar. Á miðvikudag voru þessir ungu menn við æfingar og golfþrautir á æfingasvæðinu við 2. og 3. braut. Þeir eru flestir á aldrinum 13 til 15 ára og koma víðs vegar að af landinu, allt frá Hafnarfirði austur til Hornafjarðar. Þeir voru ánægðir með Golfævintýrið, sumir voru að koma í fyrsta sinn, aðrir voru Iíka í fyrra og tveir voru að koma í þriðja sinn. Þeir sögðust ýmislegt hafa lært þessa daga, m.a. hvernig ætti að hemja skabolta. Allir hafa þeir verið að lækka forgjöfina sína í sumar, Hornfirðingurinn sagðist hafa verið með 19 í forgjöf þegar hann kom hingað en eftir mótið á þriðjudag hefði hann lækkað og hann ætlaði sér að lækka enn meira. Þeir voru því sem næst sammála um að Tiger Woods bæri af öðrum ikylfingum í dag, þó svo að hann hefði verið í einhverri smálægð síðustu daga, það væri nokkuð sem kæmi fyrir alla golfleikara. Þessir f jórmenningar voru búnir með hringinn og voru að ganga frá skorkortunum inni í skála. Þeir eru allir 13 ára og eru, frá vinstri: Jón G. Ragnarsson GKG, Sigurberg Guðbrandsson GK, Vignir Jónsson GK og Sæþór Þórðarson GV. Þeim bar saman um að Golfævintýrið hefði verið ánægjulegt og þeir væru um margt fróðari en áður eftir þessa dvöl í Eyjum. Allir töldu þeir Tiger Woods besta golfleikarann í dag en töldu þó að Spánverjinn ungi, Sergio Garcia ætti góða möguleika á að ná honum. Kylfuhlífin hljóp í burtu Margt gerist oft skondið og skemmtilegt í golfi. Þetta ár hafa tvær kolsvartar kanínur gert sig heimakomnar undir veröndinni við Golfskálann og verið fáum til ama. Nú gæti hins vegar farið að kárna gamanið því þær hafa tekið upp á að fjölga sér og sýnt að atkomendurnir muni ætla sér búsetu við golfvöllinn með tilheyrandi holugerð sem ekki hugnast öllum vel. í rökkrinu á föstudag, þegar langt var komið að lcika 18 holur í Volcano Open, var sá ágæti kylfingur Sigurjón Aðalsteinsson á leið upp á 3. teig með félögum sínum. Þá sá Sigurjón að einhver úr næsta holli á undan hafði misst svarta kylfuhlíf (cover) sem lá í grasinu. En þegar Sigurjón beygði sig niður og hugðist taka kylfuhlífina, brá svo við að hún híjóp í burtu. Þarna var sem sé einn af áðurnefndum ferfætlingum af héraætt. Sigurjóni varð svo um þetta að hann gleymdi að taka kylfu með sér á teig og varð að hlaupa til baka eftir hcnni. Ekki hafði atvikið þó nein meiri áhrif á hann og Sigurjón sló léttilega sína 250 metra enda högglangur eins og hann á kyn til. • ) '\ r Þetta holl var að búa sig undir annað höggið á 18. brautinni. Frá vinstri: Þorleifur Sigurlásson GV, Jón G. Jónsson GS, Sigurgeir I. Ágústsson GV og Gylfi Andrésson GK. Þeir voru allir mjög ánægðir með Golfævintýrið og sögðu frábærlega gaman að spila golf á góðum velli. Júlíus Hallgrímsson (í miðið) bar hitann og þungann af dagskránni fyrir þá 140 ungu kylfinga sem mættu til leiks á Golfævintýrið. Hér er hann ásamt tveimur aðstoðarmönnum sínum, þeim Viktori Pétri Jónssyni og Karli Haraidssyni en þeir voru valdir í unglingalandsliðið í golfi og eru þessa dagana að leika fyrir Islands hönd úti í PóIIandi. Þeir Viktor Pétur og Karl stigu báðir sín fyrstu golfspor á Golfævintýri, rétt eins og svo margir ungir og efnilegir kylfingar sem í dag eru í fremstu röð í sínum klúbbum. Þessir ungu menn voru að Ijúka við að pútta á 17. flötinni á miðvikudag þegar myndin var tekin. Þeir eru allir átta ára og eru frá vinstri: Emil Atlason GK, Ólafur J. Ólafsson GKG, Bjarnþór I. Sigurðsson GKG og Egill Sigurjónsson GKG. Aðstoðarkonur þeirra sem einnig eru á myndinni eru þær Tinna Ósk Óskarsdóttir og Ester Viktorsdóttir. EgiII setti niður sannkailað meistarapútt á þeirri 17., tíu metra pútt með talsverðu broti og hefði hver atvinnumaður getað verið fullsæmdur af því. Ólafur sagði að sér þætti mest gaman að slá upphafshöggin en Bjarnþór sagði að skemmtilegast væri að slá yfir vatn. Emil tók í sama streng en sagði að það væri þó ekki alltaf gaman, t.d. hefði hann slegið bolta í sjóinn rétt áðan og það fannst honum ekki gott.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.