Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Side 7

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Side 7
Fimmtudagur 12. júlí 2001 Fréttir 7 ÞANNIG Ieit Nausthamarsbryggan út fyrir rúmri viku en þá var búið að aka úr henni um 8000 rúmmetrum af sandi. I staðinn kemur bögglaberg sem á að þola betur álagið. , Framkvæmdirnar á Nausthamarsbryggju: Atta þúsund rúmmetrum af sandi ekið í burtu Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Nausthamarsbryggju. Segja má að bryggjan sé öll endurbyggð, því að bæði er stálþil endurnýjað í henni, skipt um fyllingu og svo sett nýtt dekk yfir. Það er Gáma- og tækjaleiga Austurlands sem sér um verkið en sömu aðilar sáu um framkvæmdir á Friðarhafnarbiyggj un n i. Samkvæmt samningi átti verkinu að vera lokið um næstu mánaðamót en Olafur Krist- insson, hafnarstjóri, segir ljóst að sú tímasetning standist ekki. 300 metrar af stálþili hafa verið reknir niður á níu metra dýpi við bryggjuna norðanverða en niður á fimm metra að sunnan.. Gífurlegu magni af sandi hefur verið ekið úr uppfyllingu bryggjunnar, um átta þúsund rúmmetrum. Fyllingin, sem kemur í staðinn er svokallað böggla- berg, blágrýti sem er malað hér. Olafur segir að nauðsynlegt haft verið að skipta um uppfyllingarefni, sandurinn sé ekki gott efni til slíks, stór og þung tæki séu f notkun á bryggjum og sandurinn geti gefið sig undan þunga þeirra og hafi raunar gert það. Þá þurli ekki að koma stórt gat á bryggjuþilið til að sandurinn renni burt. Olafur segir að bryggjan verði ekki endanlega tilbúin fyrr en einhvem tíma á næsta ári en stefnt að því að hún verði komin í gagnið í haust þótt þá verði eftir að ganga ífá einhveiju af lögnum í hana og eftir að steypa dekkið. Byrjað að byggja ísfélagið upp Framkvæmdir eru hafnar við enduruppbyggingu á húsnæði Is- félags Vestmannaeyja við innan- verðan Strandveg, húsnæðinu sem brann í desember á síðasta ári. „Þetta er svona rétt að komast í gang, enginn skriður kominn á það ennþá enda ekki fullmótað," segir Hörður Óskarsson, fjármálastjóri Isfélagsins. „Það sem nú er verið að vinna í er að færa vélahúsið í þann hluta þar sem eldri frystiklefamir vom. Byggður verður nýr frystiklefi sunnan við þann eldri og síðan byggt þak yfir portið. Austan við það koma síðan ný frystitæki.“ Hörður segir að enn sé verið að forma framkvæmdir og skipuleggja frekari uppbyggingu á hæðinni, svo sem aðstöðu fyrir starfsfólk og fleira. Þá sé verið að semja við aðila um framkvæmdir. „En við ætlum að byrja í nóvember, stefnum að því að þá verði allt klárt til að hefja vinnslu á síld og ég á von á að fljótlega verði tekin ákvörðun um áffamhald þessarar uppbyggingar," sagði Hörður. Friðþjófur í Vallhöll kíkti undir hjá sér í vikunni og komu þá í ljós Ijómandi myndarlegar kartöflur. Friðþjófur setti niður á 2. í páskum. Uppskera krakkanna í fimleikum Á þessu ári hafa verið haldin ýmis mót á vegum fimleikafélagsins Ránar, þessi mót eru Nýársmót, Fantamót og Vestmannaeyjamót. Urslit frá þessum mótum koma hér á eftir, einnig voru veittir minn- ingabikarar Kristbjargar og Rán- arstyttan en þær viðurkenningar eru veittar fyrir efnilegasta ein- staklinginn og bestan árangur á árinu. Úrslit á Fantamóti: í 1. sæti var Ingibjörg Ólafsdóttir, 2. sæti SvavaTaraÓlafsdóttirogí3. sæti Jóhanna Svava Gunnarsdóttir A nýársmóli vont úrslit þessi: I 1. sæti var Rakel Hlynsdóttir, 2. sæti María Rós Sigurbjömsdóttir og í 3. sæti Halla Björk Jónsdóttir. Vestmannaeyjameistarar 2001: II. þrepi Díana Ólafsdóttir, í 2. þrepi Ása G. Guðmundsdóttir, í 3. þrepi Ema Sif Sveinsdóttir. í 4. þrepi Ama Björg Sigurbjömsdóttir og 5. þrepi Þórsteina Sigurbjömsdóttir hebiólfvr Hr 12800 VESTMANNAEYJAMEISTARAR, hver í sínu þrepi: F.v. Díana Ólafsdóttir, Ása Guðrún Guðmundsdóttir. Erna Sif Sveinsdóttir, Arna Björg Sigurbjörnsdóttir og Þórsteina Sigurbjörnsdóttir. ÚRSLIT á nýársmóti, samanlagður árangur. F.v. María Rós Sigurbjörnsdóttir, Rakel Hlynsdóttir og Halla Björk Jónsdóttir. VERÐLAUNAHAFAR á Fantamóti, f.v. Jóhanna Svava Gunnarsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir. SIGURBJORG Jóna Vilbjálmsdóttir hlaut Kristbjargarbikarinn sem efnilegasti fimleikaniaðurinn. RAKEL Hlynsdóttir hlaut Ránarstyttuna fyrir besta árangur á árinu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.