Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Qupperneq 13
Fimmtudagur 12. júlí 2001 Fréttir 13 Jóhanna María Einarsdóttir Kaupþingi skrifar: Afkomuspár greiningardeildar Því er ljóst að hagnaður mun minnka verulega á fyrri helmingi ársins og munu fjölmörg fyrirtæki verða rekin með tapi. Þau fyrirtæki sem við teljum að komi verst út úr þessum uppgjörum eru flutnings- og samgöngufyrirtækin, Flugleiðir og Eimskip. Tap þeirra verður væntanlega verulegt á tímabilinu. Fyrirtækin tvö eru mikið skuldsett í erlendum gjaldeyri og þá hefur hækkandi olíuverð á tímabilinu einnig haft mikil áhrif og hækkað rekstrarkostnað félaganna svo um munar. Eins og fyrri ár hefur Greiningar- deild Kaup- þings spáð fyrir um milliuppgjör félaga á Verðbréfa- þingi Islands. Má búast við að fyrstu upp- gjör fyrir- tækjanna verði birt í lok júlímánaðar. Að mati Greiningardeildar kveður við svipaðan tón og við birtingu ársupp- gjöra fyrirtækja eftir áramótin. A fyrstu sex mánuðum ársins veiktist krónan um rúmlega 16% og mun það án efa hafa slæm áhrif á afkomu fyrirtækja, þó minni áhrif á fyrirtæki í útflutningi. Fjármagnsliðir fyrirtækjanna eru það sem hefur mest áhrif á afkomuna en þess má geta að hagnaður íyrir af- skriftirog fjánnagnsliði (EBITDA) er almennt að aukast hjá fyrirtækjum. Því er ljóst að hagnaður mun minnka verulega á fyrri helmingi ársins og munu fjölmörg fyrirtæki verða rekin með tapi. Þau fyrirtæki sem við teljum að komi verst út úr þessum uppgjömm em flutnings- og samgöngufyrirtækin, Flugleiðir og Eimskip. Tap þeirra verður væntanlega vem- legt á tímabilinu. Fyrirtækin tvö eru mikið skuldsett í erlendum gjaldeyri og þá hefur hækkandi olíuverð á tímabilinu einnig haft mikil áhrif og hækkað rekstrarkostnað félaganna svo um munar. Sjávarútvegsfyrirtækin fara ekki varhluta af slæmum rekstrar- skilyrðum á síðustu mánuðum og mun gengistap af skuldum einstakra félaga nema allt einum milljarði króna. Þá dregur hátt olíuverð einnig niður EBIDTA félaganna. Gjaldeyristap hjá olíufélögunum mun verða gífurlegt en þau hafa komið mjög illa út úr þróun í gjaldeyrismálum að undanförnu. Tekjur þeirra em í krónum en öll viðskipti þeirra við birgja fara fram í dollurum. Þá nemur gengistap þeirra af erlendum skuldum hátt á annan milljarð á fyrstu fímm mánuðum ársins. Þau fyrirtæki sem Greiningardeild telur að muni koma vel út em m.a. lyljafyrirtækin Pharmaco og Delta. Tekjur Pharmaco em t.a.m. um 80% í erlendum gjaldmiðlum og þá hefur vöxtur fyrirtækjanna verið gríðarlegur undanfarin misseri. Tekjur Pharmaco aukast mikið á milli ára en hjá Delta verður tekjuaukningin heldur minni. Fyrirtæki í verslun og þjónustu korna einnig ágætlega út þó svo að fjár- magnsliðir hjá þeim verði neikvæðir. Flest fyrirtækin verða fyrir nokkm gengistapi en þó í mjög misjöfnum mæli. Við teljum einnig að fjármála- fyrirtækin komi ágætlega út og að hærri vaxtatekjur gera það að verkum að fyrirtækin verða rekin með hagnaði. Aðrar rekstrartekjur, þ.á.m. af eigin fjárfestingum, minnka milli ára sökum erfiðra skilyrða á fjánnála- mörkuðum. Fljá tryggingafélögunum tveimur á VÞI er reksturinn af vátrygg- ingastarfsemi farin að gefa betur af sér en undanfarin ár en þau hækkuðu iðgjöld undir lok síðasta árs. Tekjur af iðgjöldum aukast um 30% milli ára. Aftur á móti minnkar hagnaður af fjárfestingarstarfsemi félaganna vem- lega milli ára en þaðan hel'ur hagnaður þeitra komið að undanfömu. Astæðan líkt og hjá bönkunum er erfítt umhverfi á fjármálamörkuðum. Sparisjóðsfólk lét úrhellið ekki stöðva sig Sparisjóðsdagurinn var haldinn sl. laugardag. Bæjarbúar létu ekki rigningu á sig fá heldur mættu vel búnir til hátíðahaldanna. Stjórn og starfsfólk sparisjóðsins grilluðu pylsur fyrir gestina og ýmislegt var til skemmtunar. Götuleikhús var á staðnum og mátti meðal annars sjá eldgleypa og kynjaverur á stultum. Setti þetta mjög skemmtilegan svip á skemmtunina og óskandi að krakk-arnir í götuleikhúsinu haldi áfram á sömu braut. Króni og Króna mættu á staðinn og hlaup voru fyrir þrettán ára og yngri. Einnig var boltakeppni og svo hið árlega Sparisjóðshlaup og verðlaun veitt þeim sem best stóðu sig. MÆTING var þokkaleg þrátt fyrir rigninguna og fólkið í götuleikhúsinu var tilbúið í slaginn og lét ekki sitt eftir liggja. HJL p?' j " * ’Æ ÝMSAR furðuskeppnur mættu á Bárustíginn á laugardaginn. ÓLA í Sparisjóðnum með keppendum í Sparisjóðshlaupinu sem er orðið fastur liður í dagskrá ÓLI sparisjóðsstjóri lagði sig allan fram í pylsunum sem komu sér Sparisjóðsdagsins. vel í vætunni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.