Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Síða 15
Fimmtudagur 12. júlí 2001 Fréttir 15 Selma Ragnarsdóttirfatahönnuður: Frábært að fá þetta tækifæri -til að kynnast fólki í greininni. Fékk mikla athygli og naut þess að vera frá Eyjum Selma Ragnarsdóttir segir það á margan hátt hafa verið merkilega upplifun að fá að taka þátt í Midnight Fashion Show. Hún fór til móts við hópinn í Reykjavík og kom með þeim með til Eyja. „Fyrsta upplifun fjölmiðlafólks og annarra gesta var mjög sterk þegar siglt var inn höfnina í þoku sem setti dulúð á umhverfið,11 segir Selma. „Fólki var komið fyrir á sjö gisti- stöðum í bænum og byrjaði dagskráin á því að sjá bíómynd hjá Eyja- myndum. Eftir bíósýninguna var haldið með rútum Gísla Magnússonar upp í eldgíg þar sem Grímur Gíslason og hans fólk buðu upp á dýrindis kræsingar. Fólk var almennt mjög spennt fyrir Eldfellinu og fóru flestir upp í gíginn og margir upp á topp þrátt fyrir misjafnan skóbúnað. Nokkrir tóku með sér heita steina og sand í flösku til minningar um ferðina.“ Laugardagurinn byijaði með mikilli vinnu fatahönnuða og fyrirsætna í Bamaskólanum. Allurhópurinn hitt- ist síðan í hádegismat í Höllinni. Fjölmiðlafólk fór í bátsferð með Víkingi og var siglt umhverfis Heima- ey en um kvöldið mættu allir í Höllina kl. 20.00 í fordrykk og kvöldmat. Selma segir að veðrið hafi sett starfsfólk út af laginu og ekki var útlit fyrir að MSFS færi fram á Skans- svæðinu vegna mikillar rigningar. Varaáætlun hljóðaði upp á að flytja sýninguna í Höllina en um kvöld- matarleytið tók að stytta upp. Þá var alit sett á fullt við að undirbúa Skanssvæðið fyrir sýninguna. MSFS fór fram rétt eftir miðnætti og þótti takast í alla staði mjög vel þrátt fyrir smávægilegra örðugleika sem stöfuðu meðal annars af veðráttunni. „Ég var sjálf þátttakandi í sýn- ingunni og kynntist ég íjölda fólks unt helgina sem er að vinna við það sama og ég. Langflesúr voru yfir sig hrifnir af Eyjunum og öllu því sem kom að skipulagi Vestmannaeyinga. Tekið var gríðarlega mikið af myndum og sjónvarpsvélamar rúlluðu allan tímann. Sjálf fékk ég mikla athygli vegna tengsla minna við Vestmanna- eyjar. Sjónvarpsstöðvarnar MTV og Fashion TV tóku viðtöl við mig um hönnun mína og að sjálfsögðu snerust viðtölin að stómm hluta um Eyjamar. Ég tel að Eyjan okkar hafi fengið þarna virkilega góðan hóp fólks í heimsókn, sem eflaust á eftir að skila bæjarfélaginu og mér sem fata- hönnuði miklu. Allir sem ég tal- aði við voru yfir sig hrifnir af öllu í Vestmannaeyjum og þætti Eyjafólks í sýningunni. En nokkrir vom ekki ánægðir með skipulag stjórnenda á sjálfri sýningunni." Selma segir að MSFS hafi verið fyrst og fremst stór upplifun fyrir sig og frábært hafi verið að fá þetta tækifæri til að kynnast fólki í grein- inni. „Þama vom viss tækifæri sem ég held að ég hafi nýtt vel. Ég kom mér í samband við áhugaverða aðila en árangurinn kemur ekki í ljós fyrr en eftir tvo til þrjá mánuði í fyrsta lagi. Ég er búin að gera samning við verslun í Reykjavik um að selja línuna mína. Sérstaklega vil ég þakka þakka vinkonum mínunt Hafdísi, Hrönn og Bryndísi og Kidda og fjölskyldunni fyrir þolinmæðina. Stuðningur Vestmannaeyinga var frábær og vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu mér lið.“ SJÁLF fékk ég mikla athygli vegna tengsla minna við Vestmanna- eyjar. Sjónvarpsstöðvarnar MTV og Fashion TV tóku viðtöl við mig um hönnun mína og að sjálfsögðu snerust viðtölin að stórum hluta um Eyjarnar. LÍNAN, sem Selma sýndi á MSFS. -Ég er búin að gera s...ming við verslun í Reykjavík um að selja línuna mína, segii hún. Hvað annað sýningin á eftir að gera fyrir hana kemur í ljós á næstu mánuðum. HARGREIÐSLUFOLK á fullu við vinnu sína á Hressó. Kynntist skemmtilegu fólki Þórunn Rúnarsdóttir á Hárhúsinu sagði það hafa verið frábæra lífs- reynslu að fá að taka þátt í MSFS. „Maður kynntist hellingi af skemmtilegu fólki. Fyrirsætumar sem tóku þátt í sýningunni gerðu engar kröfur en hönnuðurnir sögðu til um hvemig hárið átti að vera. Hittum við þá deginum áður þar sem þeir lögðu línumar. Ég hélt að þetta yrði erfiðara en þeir voru allir mjög þægilegir og jákvæðir.“ Þórunn sagði að mikill atgangur haft verið í húsi Bæjarveitna á Skans- inum þar sem öllu ægði saman. „Stelpurnar komust ekkerl afsíðis og urðu að skipta um föt innan um okkur hin. Þarna hefði mátt setja upp smáskilrúm og snaga fyrir hönnuðina. Fannst mér þessi aðstaða niður- lægjandi fyrir stelpurnar. Þetta er það eina sem mér fannst að hefði mátt betur fara. En að lokum langar mig til að þakka öllunt skemmtilegt samstarf við sýninguna," sagði Þórunn. Þúsund kossar til allra -sem hjálpuðu mér, segir Selma Fagfólk í Vestmannaeyjum lagði sitt af mörkum á sýningunni og voru allir sammála um að það hefði staðið sig mjög vel. Um hárgreiðslu sáu Mæja og Þór- unn á Hárhúsinu, Nanna og Olöf á EnnEll og ÓIi Boggi á Space. Förðun- arfræðingar voru Aníta á Snyrtistofu Anítu, Ragnheiður á Farðanum og Fanney á Snyrtistofu Agústu. Þau fengu inni á Hressó með vinnu sína. Þrír Eyjapeyjar voru fengnir til að sýna fyrir finnska hönnuði því í ljós kom að það þurfti fleiri karlfyrirsætur. Þeir voru ívar, Hlynur, Ágúst og Daði. Aðrir sem Selma vill nefna eru Þróunarfélagið, Fréttir, Hafdís Krist- jáns, Egill og Magnús Arngrímssynir, Jóhann Ingi, ÍBV, Edda Sigrún sem kom fram sem Fjallkonan og margir fleiri. „Þessu fólki vil ég þakka frá- bæra vinnu og ekki má gleyma öllum sem styrktu verkefnið fjárhagslega. Þúsund kossar til ykkar allra,“ sagði Selma að lokum. BÖRKUR í Bankanum og Magnús Kristinsson útgerðarmaður voru meðal ntargra áhugasamra gesta sem fylgdust með sýningunni. Eru þeir rneðal margra sem Selma vill senda að minnsta kosti þúsund kossa fyrir aðstoðina.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.