Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Side 1
28. árgangur • Vestmannaeyjum 26. júlí 2001 • 30. tölublað • Verð kr. 150,-« Sími: 481 1300 • Fax: 481 1293
til margra ára. Bjarni Jónasson og Páll
Zóphóníasson í einum af sínum mörgu göngutúrum
Þakklátur fyrir hlýju og
stuðning í erfiðri stöðu
■segir Árni Johnsen við Eyjamenn og annað stuðningsfólk
Árni Johnsen alþingismaður
hefur lítið látið hafa eftir sér í
fjölmiðlum síðan mál hans
komust í sviðsljósið fyrir um
hálfum mánuði. Þegar Fréttir
höfðu samband við hann í gær
vildi hann koma á framfæri
þakklæti til Eyjamanna og
annarra sem stutt hafa hann
síðustu daga. Um leið harmar
hann þau mistök sem honum hafa
orðið á.
„I fyrsta lagi hlýt ég að harma þau
mistök sem mér hafa orðið á,“ segir
Árni.
„Ég veit ekki hvernig ég hefði get-
að gengið í gegnum þann fjöl-
miðlagötubardaga sem ég hef mátt
þola ef ég hefði ekki verið heima í
Eyjum og fundið fyrir mikilli hlýju
og stuðningi í erfiðri stöðu. Fyrir
það er ég þakklátur mínu heima-
fólki. Ég hef líka fengið hundruð
kveðja og hvatninga frá ólíklegasta
fólki um allt Iand og ekki síst úr
mínu kjördæmi.“
Árni segist ósköp lítið geta tjáð sig
eða útskýrt sín mál á þessu stigi.
„Öll mín mál eru undir eins og er en
ég mun kappkosta að þetta gangi
greiðlega fyrir sig og það taki sem
minnstan tíma. Núna þarf ég að
spúla eigið dekk og freista þess að
lifa af ótrúlegar innri kvalir. Ég
vona að þegar þessi lota er gengin
yfir að þá fái ég tækifæri til að horfa
fram á veginn iræð ykkur inn í nýja
framtíð,“ sagði Árni að endingu.
Veitingasala í Týsheimilinu
til að mæta kostnaði IBV vegna löggæslu í bænum
Að þessu sinni verður veitinga-
sala í tengslum við þjóðhátíð ekki
aðeins í veitingatjaldinu heldur
einnig í Týsheimilinu. Það er ÍBV
íþróttafélag sem sér um veitinga-
söluna, bæði í tjaldinu og Týs-
heimilinu.
Magnús Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri IBV, segir að veit-
ingasalan í Týsheimilinu verði opin
frá kl. 10 til 20 alla þjóðhátíðar-
dagana. Þar verða á boðstólum
svipaðar veitingar og er að hafa í
þjóðhátíðartjaldinu, hamborgarar,
samlokur, pizzur og fleira í þeim
dúr en þessi veitingasala er rekin í
samráði við Pizza 67.
Magnús segir ekkert launungarmál
að með þessu sé verið að reyna að
auka tekjur félagsins til að mæta
þeim kostnaði sem hlýst af þátttöku
félagsins í löggæslu yfir þjóðhátíð-
ina. „Okkur er gert að greiða fyrir
löggæsluna, ekki inni í Dal, heldur í
bænum yfir þessa daga. Veitinga-
menn og sjoppueigendur eru auð-
vitað ekkert mjög sáttir við þennan
veitingarekstur en flestir þeirra
segjast þó skilja okkar afstöðu. Við
buðum þeim að taka þátt í greiðslu
á þessum löggæslukostnaði gegn
því að við hættum við veitingasölu í
Týsheimilinu en þeir voru ekki
reiðubúnir til þess. Við verðum ein-
hvern veginn að reyna að ná inn fé
fyrir þessum aukakostnaði sem er
dengt á okkur vegna löggæslunnar
og það varð úr að reyna þetta,“ segir
Magnús .
Akveðnir í að
endurbyggja
Herjólfsbæ
-segir Ásmundur Friðriksson, formaður
félags sem stofnað var um framkvæmdina
Félag um byggingu Herjólfs-
bæjar í Herjólfsdal lifir góðu lífi
þó það hati ekki enn orðið sér út
um kcnnitölu.
Þetta segir Ásmundur Friðriksson,
formaður félagsins og segir líka að
félagið hafi verið stofnað snemma á
þessu ári og hafi þann tilgang einan
að endurbyggja bæ Herjólfs Bárðar-
sonar í Herjólfsbæ. „Við viljum
gera þetta í tengslum við aðrar
endurbætur í Herjólfsdal. Þær miða
að því að Dalurinn verði fólkvangur
og er líka tekið mið af þörfum
þjóðhátíðar," sagði Ásmundur.
Hann segir að framkvæmdir séu
ekki farnar af stað og ekki hafi enn
verið sótt um leyfi tiþbæjarstjórnar
eða þjóðminjaráðs. „Ástæðan er sú
að ekki er enn búið að tryggja nægi-
legt fjármagn til framkvæmdanna.
Hið opinbera hefur veitt tíu millj-
ónum króna til verksins og hafa þær
ekki enn verið nýttar. Verða fengnir
menn með reynslu til að teikna
húsið og byggja það,“ sagði Ás-
mundur formaður að lokum.
HANDKNATTLEIKSDEILD kvenna efndi til bryggjudags á laugardaginn þar
sem boðið var upp á skemmtun, veitingar og hægt var að kaupa fisk í matinn.
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
Bílaverkstæðið
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235 .
Rettmgar og sprautun
Sími 481 1535
SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS
Júní - september Fró Vestmannaeyjum Fró Þorlókshöfn
Alla daga. 8.15 12.00
Aukaferð món., fim., fös. og sun. 15.30 19.00
HERJÓLFUR
Nónari upplýsingar: Vestmannaeyjar: Sími 481-2800 • Fax 481 2991 Þorlókshöfn: Sími 483-3413 *Fax 483 3924 Jindfiutningar / SAMSKIP