Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Qupperneq 2
2 Fréttir Fimmtudagurinn 26. júlí 2001 Rólegur júlí í síðustu viku voru 207 færslur í dagbók lögrcglu og er það nokkuð minna en var í vikunni þar áður. Er þetta nokkuð í takt við undanfarin ár en síðustu vikurnar fyrir þjóð- hátíð hafa að jafnaði verið einkar rólegar hjá lögreglu. Óboðinn vekjari Upp úr hádegi á laugardag var lögreglu lilkynnt að maður hefði farið óboðinn í hús í bænum og óskaði húsráðandi eftir að lögreglan fjarlægði hinn óboðna gest. í ljós kom að sá óboðni hafði l'arið inn um glugga í þeim tilgangi að vekja húsráðanda. Náðust sættir milli þeirra tveggja og urðu ekki frekari eftirmál af heimsókninni. Rúðubrot Aðeins eitl skemmdarverk var tilkynnt lögreglu í vikunni og var það rúðubrot í vinnuskúr við malarvöllinn í Löngulág. Ekki er vitað hver þar var að verki en talið að rúðan hafi verið brotin um síðustu helgi. Níundi stúturinn Alls voru 14 kærðir fyrir brot á umferðarlögum í vikunni. Einn var stöðvaður, grunaður um ölvun við akstur, og er þelta níundi ölvun- arakstur ársins á móti fimmtán á síðasta ári þannig að þróunin er í rétta átt. Fimm voru kærðir fyrir að leggja ólöglega, limm höfðu ekki öryggisbelti spennt í akstri, einn liafði ekki endurnýjað ökuskírteini sitt og í einu lilviki voru höfð afskipti af barni sem var hjálmlaust á hjóli. Óhöpp og slys Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnl lögreglu í vikunni. Voru þau öll minni háttar og engin slys á fólki. Þá var eitt slys lilkynnt. átli það sér stað í Spröngunni en þar hafði níu ára bam fallið og meiðst á fæti. Var farið með barnið á sjúkrahúsið þar sem gert var að meiðslum þess. Golfskólamótið ó sunnudag Á sunnudag kl. 13 er stórmót Golfskólans á dagskrá. Þá munu nemendur Golfskólans spila níu holur með forráðamönnum sínum og sleginn betri bolti. Þeirforráða- menn sem þess óska geta fengið leiðsögn í golfleik, sér að kostnað- arlausu, í dag og á morgun milli kl. 15 og 16 á æfingasvæði GV. Næstu Fréttir ó miðvikudag Nú fer þjóðhátíðin í hönd og af þeini sökum koma Fréttir út á miðvikudaginn. Auglýsendur og greinahöfundar eru beðnir um að hafa þetla í huga. Skila þarf greinum í síðasta lagi á mánudag og auglýsingum fyrir þriðjudagskvöld. Flugmálastjórn í startholunum vegna Þjóðhátíðar: Unnið eftir kerfi sem þróað hefur verið undanfarin ár -en línurnar hafa verið skerptar og sett hefur verið upp verkskipulag um vinnutilhögun MIKIL umferð uni Vestmannaeyjaflugvöll fylgir þjóðhátíðinni og hafa starfsmenn Flugmálastofnunar verið að þróa verklag til að taka á móti þeim þúsundum farþega sem fara um völlinn þjóðhátíðarhelgina. Flugmálastjórn hefur lagt línurnar um verklag starfsmanna flugvallar- ins yfir þjóðhátíðina. Auk þess hefur verið fundað með aðilum sem koma að þjóðhátíðarhaldinu með einhverjum hætti og þeim gerð grein fyrir verkskipulagi flugvallar- ins. Þá er nýr og öflugur slökkvibfll væntanlegur til Eyja fyrir þjóð- hátíð. Jón Baldvin Pálsson, umdæmisstjóri Flugmálastjómar, segir að í megin- atriðum sé unnið el'tir kerfi sem þeir hafa verið að þróa undanfarin ár en til að auðvelda fólki að starfa hafi núna verið sett upp verklagsskipulag um vinnutilhögun. „Helsti munurinn er að við höfum skerpt lfnurnar og komið þessu á blað,“ segir Jón Baldvin. „Við verðum með fimm starfsmenn í flugstöð og á flughlaði við stjórnun og öryggiseftirlit sem einnig eru tiltækir ef slys eða bruna ber að höndum. I flugtumi verða tveir til fimm eftir álagi og svo verðum við með tvo lög- reglumerin okkur til halds og trausts. Er það nýjung." Jón Baldvin segir að viðbúnaður á Bakka verði aukinn. „Svo munu menn frá Flugöryggissviði fylgjast með flugrekstraraðilum, flugvélum og flug- mönnum vítt og breitt um landið." Flugmálastjórn hefur fundað með fulltrúum bæjarstjórnar, sýslumanns, lögreglu, Sjúkrahúss og þjóðhátíðar- nefndar og gert þeint grein fyrir viðbúnaði og verklagi á flugvellinum. „Fyrir þjóðhátíð verður svo fundur á vegum sýslumannsembættisins þar sem allir þcssir aðilar hittast til að ganga úr skugga um að kerfið virki ömgglega." Eftir flugslysaæfmgu árið 1998 var ákveðið að nýta tækjageymslu flug- vallarins sem greiningarstöð slasaðra ef hópslys verður, hvort sem það yrði flugslys eða hópslys af öðru tagi. „Ástæðan er að Sjúkrahúsið í Vest- mannaeyjum ræður ekki við að taka á móti miklum fjölda slasaöra," sagði Jón Baldvin. Starfsmenn Flugmálastjórnar í Eyjum hafa haft yfir tveimur slökkvi- bílum að ráða og er sá stærri 1200 lítra. Ingibergur Einarsson flug- vallarstjóri segir að á næstu dögum sé væntanlegur mun stærri og öflugri slökkvibíll. „Við erum að fá 5100 lítra bíl með froðubúnaði sem stenst alþjóðlega staðla. Við höfum því yfir að ráða 6300 lítrum af vatni yfir þjóðhátíðina. Bíllinn getur líka nýst bænum ef stórbmni verður í skipi eða verksmiðju. Við emm því ekki aðeins með hagsntuni flugsins í huga þegar við setjum þennan bíl út í Eyjar,“ sagði Jón Baldvin að lokum. Flugfélag íslands: Öllu starfsfólki í Eyjum líklega sagt upp Eins og fram kom í síðasta blaði hyggst Flugfélag ísfands hætta áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja þann 1. október nk. Haft er ef'tir Jóni Karli Ólafssyni, framkvæmdastjóra Flugfélagsins að þetta sé einn þátlurinn í því að bæta rekstrarskilyrði lelagsins sem rekið hefur verið með tapi undan- farin ár. Auk þess að hætta flugi til Eyja verður einnig hætt að fl.júga milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Bragi Ólafsson, umdæmisstjóri Flugfélags Islands, hefur starfað hjá félaginu frá 15. september 1973. Hann segir að starfsmenn í Eyjum hafi enn ekki fengið uppsagnarbréf en þau muni líklega birtast um næstu mánaðamót. Þá eru þrír mánuðir þar til áætlunarfluginu verður hætt. Bragi segir að starfsmenn Flugfélags Islands í Vestmannaeyjum hafi verið fjórir ylir vetrartímann cn Ijölgað í átta yfir sumartímann. Bragi sagðist ekki eiga von á öðru en öllum yrði sagt upp en vildi ekki tjá sig frekar um málið fyrr en uppsagnarbréfin hefðu borist. HELMINGUR starfsfólks Flugfélagsins í Vestmannaeyjum, f.v. Ottó Óskarsson, Laufey Bjarnadóttir, Bragi og Kichard Guðniundsson. Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: ÓmarGarðarsson. Blaðamenn: Sigurgeir Jónsson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað eróheimilt nema heimilda sé getið. FRETTIR

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.