Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Enn fleiri stelpur í golfið
Vestmannaeyjameistaramótinu í golfi lauk á laugardag.
Þar vakti hvað mesta athygli ungur kylfingur sem vann 1.
flokkinn næsta örugglega. Hann lék frábært golfá öðrum
degi keppninnar, fórþá 18 holurá 69 höggum eða einum
undir pari og gerði þar með í raun út um keppnina í 1.
flokki. Hann vinnur í sumar hjá Golfskóla GV við að
leiðbeina öðrum ungum kylfingum. Þessi efnilegi kylfingur
er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Hlynur Stefánsson.
Fæðingardagur og ár? 22. júlí 1984. Hélt
upp á 17 ára afmælið daginn eftir mótið og
það má segja að þessi árangur hafi verið fín
afmælisgjöf.
Fæðingarstaður? Mexico.
Fjölskylda? Bý heima hjá foreldrunum, Stef-
áni Sævari Guðjónssyni og Sif Svavarsdóttur.
Hvert er draumastarfið? Það er algjörlega
óákveðið.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Ford eða
BMW.
Hver er þinn helsti kostur? Ég reyni að vera
hress og jákvæður.
Hvaða eiginleika vildir þú helst vera án?
Eitthvað af neikvæðninni mætti detta burt.
Uppáhaldsmatur? Hangikjöt á jólunum.
Versti matur? Fiskibollur.
Með hvaða aðila vildir þú helst eyða helgi?
Það væri fínt að spila svo sem 18 holur með
Tiger Woods.
Aðaláhugamál? Golf og aðrar íþróttir, kvikmyndir. Svo
teikna ég líka mikið.
Hvar vildir þú eiga heima annars staðar en í Eyjum? I
Mexico.
Hvaða íslendingur finnst þér standa upp úr um þessar
mundir? ÁrniJohnsen.
Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag? GV er mitt
félag og Tiger Woods er uppáhaldsíþróttamaðurinn.
Stundar þú einhverja íþrótt? Golf á sumrin og borð-
tennisáveturna.
Ertu hjátrúarfullur? Nei.
Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir.
Besta bíómynd sem þú hefur séð? Matrix.
Hvað finnst þér gera fólk aðlaðandi? Jákvæðni í
hugarfari og framkomu.
Hvað finnst þér gera fólk fráhrindandi? Neikvæðni og
stælar.
Hvað lækkaðir þú um mikið í forgjöf á mótinu? Um
2,2. Ég var með 8,7 í forgjöf fyrir mótið en lækkaði niður í
6,5.
Á að spila í meistaraflokki á næsta ári? Stefnan er
allavega sett á það.
Með hverjum hélstu í Opna breska mótinu? Ég hef
alltaf haldið með Tigernum og gerði það líka núna.
Annars var hann ekki að sýna sínar bestu hliðar í því móti.
Hvað er skemmtilegast við golfið? Fjölbreytnin. Þar
getur allt gerst eins og reyndar sást í British Open.
Eitthvað að lokum? Garðar Heiðar, vinur minn, svaraði
þessari spurningu fyrr í sumar á þann hátt að það vantaði
fleiri stelpur í golfið. Ég tek undir það og segi bara: „Enn
fleiri stelpur í golfið."
Hlynur Stefánsson
er Eyjamaður vikunnar
Matgæðingarnir eru Ólafur H. Sigurjónsson og Svava Hafsteinsdóttir.
Suðræn Eyjaýsa úr Baldri VE
Suðræn
Eyjaýsa
Rétturinn sem við ætlum að bjóða
uppá er fljótlegur og þægilegur
fiskréttur, sem byggist á hæfilega
lítið eldaðri ýsu og hæfilega sterkri
sósu. í réttinn þarf:
600 - 700 g ýsuflök ( helst jafn
fersk og Baldur VE 24 færir að
landi),
salt, pipar og sítrónusafa.
í sósuna fer:
Hálfur blaðlaukur,
1 st laukur,
ca 200 g sveppir (má sleppa),
1 pk frosið grænmeti (spergilkál,
gulrætur og blómkáls blanda),
1 dós Hunts - Ready, Chili
tómatsósa (eða tómatadós + chili
sósa),
Basil, rósmarín (og etv. fleiri
jurtakrydd) eftir smekk.
Rifinn ostur og matarolía.
Laukarnir og sveppirnir eru mýkt í
olíu, tómatsósan sett útí ásamt
grænmetinu og kryddað eftir
smekk. Betra er að hafa sósuna
nokkuð bragðsterka. Látið malla í
5 - 6 mínútur á meðan átt er við
fiskinn.
Ýsuflökin eru roðflett, snyrt og
skorin í hæfilega bita, sem raðað
er í smurt eldfast fat. Kryddað með
sítrónusafa, salti og svörtum pipar.
Fiskurinn er svo settur í 3 mínútur í
örbylgjuofn (hæsta stilling), tekinn
út og sósunni helt yfir, rifinn ostur
þar ofaná og réttinum brugðið
undir vel heitt grill í 3 - 5 mínútur.
Meðlæti er ekki nauðsynlegt, en
gott brauð eða annað sem feliur að
smekk neytenda, sakar ekki.
Mikilvægast er þó að kokkurinn sé
djarfur og matargestir jákvæðir.
Við ætlum að skora næst á hjónin
Pál G. Ágústsson umsjónarmann
Framhaldsskólans og Sigurbjörgu
Stefánsdóttur skrifstofustjóra, sem
Svava Hafsteinsdóttir og Ólafur H. Sigurjónsson matgæðingar vikunnar
Nýfæddir
Vestmannaeyingar
Litla stúlkan á myndinni heitir Ragnheiður Sigurðardóttir og
fæddist 19. júlí sl. Hún var 16 merkur og 54,5 em og Ijósmóðir var
Guðný Bjamadóttir. Foreldrar hennar eru Sigurður Ingi Ingason og
Anna Lilja Sigurðardóttir og með henni á myndinni er móðursystir
hennar Elísa Sigurðardóttir.
Þann 7. júni eignuðust Friðvör Harðardóttir og Pétur Pétursson
dreng. Hann vó 3764 gr og var 54 cm. Ljósmóðir var Drífa
Björnsdóttir. Fjölskyldan býr að Faxastíg 24 og með litla drengnum
á myndinni em systkini hans Andri, Aron og Inga Lára.
Á dÖfÍTTTTÍ 4*
JÚlí
28. Golfmót, Sjómonna- og útvegsmonnamótið.
29. Golfskólamótið kl. 13.
31. KFS ■ GG ó Hellgafellsvelli kl. 20.00.
Ágúst
I. Símadeild karlo ÍBV-Fram kl. 20.00.
3. Þjóðhótíð Vestmonnaeyja.
II. Golfmót, Suðurlandsmótið.
14. KFS ■ Njorðvík kl. 19.00 ó Helgafellsvelli.
17. Golfmót, Sveitokeppni 2. deildar
18. Kammertónleikar Áshildar Haraldsdóttur í Listaskólanum.
19. Símadeild karla, ÍBV-Grindavík kl. 18.00.
21. Símadeild kvenna, ÍBV-Stjarnan kl. 18.00.