Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Qupperneq 7
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Fréttir
7
Ragneiður fegurðardrottning ófrísk:
Hún heldur titlinum
-en tekur ekki þátt í fegurðarsamkeppni
Ragnheiður Guðnadóttir fegurðar-
drottning Islands og unnusti henn-
ar, Baldur Rafn Gylfason hár-
greiðslumeistari, eiga von á barni.
Ragnheiður sagðist í viðtali við
Fréttir að sjálfsögðu bera titilinn áfram
og kemur til með að krýna fegurðar-
drottningu næsta árs þegar að því
kemur. „Eg finn fyrir mikilli gleði og
hamingju. Ég er búin að reyna svo
margt í lífinu þannig að ég er alveg
tilbúin og veit að ég er ekki að missa
af neinu. Vaðandi keppnina í Japan,
Miss International, þá ætlaði ég ekki
að fara því ég var ekki sátt við það
sem krafist var í samningnum. Ég
reikna með að Iris sem var í þriðja
sæti fari í þá keppni og hún á örugg-
lega sömu möguleika þar og ég hefði
haft. Ég var að koma úr skoðun,
mamma var með mér og það ríkir
mikil gleði hjá okkur öllum. Við
Baldur Rafn vorum búin að ræða
barneignir og þó svo það hafi ekki
verið planað á þessu ári þá trúi ég því
að hvert barn komi þegar því er það
ætlað. Auðvitað breytist margt en það
verður nýtt líf og ég hlakka til og við
erum hamingjusöm," sagði Ragn-
heiður
RAGNHEIÐUR kvöldið sem
hún var krýnd
fegurðardrottning Islands
Brennan á Fjósakletti rís nú hratt. Brennupeyjar hafa verið duglegir að undantörnu að safna að sér efni og
stefnir í eina stærstu brennu sem sögur fara af.
Partýtjald
5.995 kr.
Kælibox
1.995 kr.
Flíspeysur
4.990 kr.
Ljos, nælar, plast og
flest annað í tjaldið
fæst hjá okkur
HUSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Tjaldstoll
1.550 kr.
Fjölsýn færir út kvíarnar:
Tíunda rásin bætist
við í næstu viku
Undanfarið hefur ein sjón-
varpsrás Fjölsýnar verið til
viðgerðar í hjá framleiðandanum
í Bandaríkjunum.
Reiknað er með að hún komi úr
viðgerð á næstu dögum, auk þess
sem búnaður til að fjölga rásum
kemur um leið. Bætist þá tíunda
rásin við. Þá hefur verið unnið að því
undanfamar vikur að koma upp
stafrænum útsendingum á Fjölsýn.
Við það aukast myndgæði til muna
og afstaða gerfihnatta til okkar hefur
|rá ekki eins mikil áhrif á nrynd-
gæðin. En slíkt hefur verið vandamál
á vissum tíma ársins.
Hafnar eru útsendingar á bandarískri
kristilegri stöð sem heitir 3ABN. Er
hún send út órugluð og ókeypis og
allir sem hafa til þess gerð loftnet
geta séð hana, A þeirri stöð eru í
bland útsendingar frá kristilegum
samkomum, bamaefni, matarþættir,
leikfimi og ýmislegt fleira. Þá er
fyrirhugað að senda út textað efni í
einhverjum mæli í haust. Fjölsýn
sendir út þessa stöð, sem verktaki, en
áhugafólk um slíkt sjónvarpsefni
hefur útsendingarréttinn og kostar
hana.
Skúlason - markaðslausnir ehf:
Þjálfun starfsfólks
hefst í næsta mánuði
Eins og fram hefur koniiö í Fréttum
hyggst fyrirtækið Skúlason setja
upp útibú hér í Eyjum.
Jóhannes Skúlason annar eingenda
fyrirtækisins segirundirbúning vera í
fullum gangi og verið er að vinna að
tæknilegum atriðum. „Fyrirtækið
hefur ekki áður sett upp útibú en
undirbúningur gengur vel ogvið höf-
um fengið þýskt ráðgjafafyrirtæki til
að vinna þetta með okkur. Það er
verið að vinna að tengingum á síma
og nettengingum og að ýmsum
tæknilegum atriðum. Ég verð í
Eyjum á fimmtudag og við förum ylir
hönnunina og teikningar á húsnæðinu
við Skólavegi l. Þegar búið verður að
tengja tæki og tól við húsnæði okkar
að Laugavegi 3 förum við að kalla
inn starfsfólk í þjálfun. Ég reikna með
að það verði nálægt verslunar-
mannahelgi. Við auglýstum eftir
starfsfólki, við fengum mjög góð
viðbrögð og ljóst að mjög hæfir
einstaklingar sóttu um og raunar
framar okkar björlustu vonum,“ sagði
Jóhannes að lokun og var ánægður
með þær viðtökur sem fyrirtækið
hefur fengið í Eyjum.
íslensk maivæli:
Framleiðsla hafin
Fyrirtækið íslensk matvæki hóf
framleiðslu í Vestmannaeyjum sl.
þriðjudag.
Níu starfsmenn hófu störf hjá
fyrirtækinu en framleiðslustjóri er
Ingvar Karlsson. Reyklur lax er roð-
flettur, sneiddur, og honum pakkað í
neytendaumbúðir. Þorsteinn Sverris-
son framkvæmdastjóri Þróunarfé-
lagsins sagði tuttugu og fjórar um-
sóknir hafa borist um störf hjá
fyrirtækinu og þær standi áfram sé
þess óskað. Vinnutími starfsmanna er
frá klukkan sjö á morgnana til þrjú á
daginn og launakjör sambærileg og í
frystihúsunum. Aætlanir eru um að
framleiðslan verði komin í fullan gang
í október og þá verða framleiddir fleiri
vöruflokkar.
Framleiðslan er í húsi Fiskmark-
aðarins við Friðarhöfn.
Tapað - lánað?
Þegar ég kom heim til Eyja, eftir vel heppnaða aðgerð á hné í Reykjavík, og
hugðist fara að dunda mér í vinnu, gat ég hvergi fundið litla
rafsuðutransarann minn og höggborvélina. Lfldega hefur einhver fengið
þessa hluti að láni og farist fyrir að skila þeim. Nú vil ég vinsamlega biðja
þann sem fékk tækin að láni að koma þeim inn í Fjölverk sem fyrst, og helst
áður en hitt hnéð bilar líka.
Siggi Gúmm
Góður afli
Af bátum ísfélagsins var það að frétta sl nriðvikudag að Bergey VE var á
Breiðamerkurdýpi með 18 kör og Heimaey VE á Síðugrunni með 44 kör.
Sigurður VE landaði tæpum þúsund tonnum í Krossanesi, Harpa VE var í
Eyjum og Antares VE og Guðmundur VE á loðnumiðunum.
Hjá Vinnslustöðinni landað Kap VE 800 tonnum aðfaranótt nriðvikudags.
Drangavík VE landaði 100 körum í Hafnarfirði sl. þriðjudag og Jón Vídalín
ÁR var væntanlegur á föstudag. Sighvatur Bjamason VE var á
kolmunnaveiðum en kropp var hjá humarbátunum.
Aukning hjá Herjólfi
Samkvæmt upplýsingum frá Björgvini Arnaldssyni, Samskipum voru fluttir
44.400 farþegar með Herjólfi fyrslu sex mánuði þessa árs. Til samanburðar
vom farþegamir 35.248 á sama tímabili árið 2000. Farþegum hefur því
fjölgað um 9.152 farþega milli ára. Fyrstu sex máuði þessa árs vom fluttir
12.384 bflar en 9.470 í fyrra, aukning milli ára er því 2.914 bflar.