Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Page 8
8 Fréttir Fimmtudagur 26. júlí 2001 Lewis Neal og Marc Goodfellow kveðja í kvöld: Lærdómsríkur tími hjá ÍBV MARC Goodfellow og Lewis Neal halda af landi brott strax í fyrramálið til liðs við félaga sína í Stoke FC og hefja þar undirbúning fyrir komandi átök í vetur. Leikurinn FH og ÍI5V í kvöld verður kveðjuleikur Marc Good- fellow og Lewis Neal, þeir halda af landi brott strax í fyrramálið til liðs við félaga sína í Stoke FC og hefja þar undirbúning Ivrir komandi átök í vetur. Þeir félagar segja að þeim hafi líkað dvölin vel, hún hati verið mjög frábrugðin því sem þeir hafa átt að venjast út í Englandi. Þeir vissu ekki mikið um Vestmannaeyjar áður en þeir komu, þó var búið að sýna þeim ljósmyndabók frá Eyjunum og fræða þá um íbúaijölda og þess háttar. Veðrið er það sem hefur komið þeim mest á óvart, það er mun betra en þeir áttu von á og alls ekki ólíkt þeirri veðrátlu sem þeir eru vanir. En hvað hafa þeir verið að gera lil að drepa tímann? „Við erum mikið upp í íþróttahúsi, að lyl'ta og svo i' heita potlinum, eins höfum við spilað aðeins golf,“ sagði Lewis Neal en Marc Goodfellow bætti við að líklega væru þeir nú búnir að eyða meiri tíma í heita pottinum en á golfvellinum sent sæist best á skor- kortunum. Aðspurðir segja þeir íslenskan fótbolta á svipuðu plani og í ensku 2. deildinni sem þeir þekkja, það hefur komið þeim á óvart hversu margir góðir knattspyrnumenn eru hér á landi. Þeir voru ekki mjög viljugir að taka út sérstaka leikmenn í IBV liðinu sem þeir teldu að gætu komist í Stoke liðið, en nefndu þá Gunnar Heiðar Þor- valdsson, Atla Jóhannsson og Kjartan Antonsson. Eins sögðu þeir að gömlu kempurnar Hlynur Stefánsson og Birkir Kristinsson væru nógu góðir, en bara 10 árunt of gamlir. Þeir segja það alveg möguleika að þeir komi aftur næsta sumar, en það fari töluvert eftir því hvort þeir fái möguleika hjá Guðjóni Þórðarsyni framkvæmdastjóra Stoke. „Hópurinn er orðinn minni í ár en hann var í fyrra og vonandi eykur það möguleika okkar á að komast í aðalliðið." En hvernig Iíst þeim á möguleika ÍBV á íslandsmótinu? „ÍBV á alveg möguleika eins og öll hin liðin, heima- völlurinn skiptir greinilega miklu máli, ekki bara hér heldur finnst manni flest liðin vera í vandræðum á útivelli," sagði Lewis og bætti við: „Samt er Fylkir besta liðið sem við höfum séð leika, en svo má segja að hin níu liðin séu mjög jöfn.“ Þeir telja þennan tíma hér í Eyjum hafa verið lærdómsríkan og þeir fari reynslunni ríkari til heimalandsins og þeir munu hiklaust mæla með því við stráka á þeirra aldri að prófa þetta. Þjóðhátíðin: Undirbúningur gengur vel Undirbúningur fyrir komandi þjóðhá- tíð er nú í fullum gangi og gengur mjög vel. Menn bíða spenntir eftir ljósum sem pöntuð voru frá Kína í apríl og eiga eftir að setja skemmtilegan svip á dalinn, en eitthvað hefur afhending þeitra tafist og fékkst það staðfest í gær að þau koma til Islands með skipi á þriðjudaginn. Verða menn þá að hafa snör handtök til að koma jreim fyrir. Brennan er svo til fullhlaðin og nánast öll mannvirki kontin upp. Þó vilja nefndarmenn auglýsa eftir meðlimum Vitagengisins svokallaða sem hefur ekki sést í Dalnum síðan um síðustu þjóðhátíð. Unthverfisnefnd hefur komist í málið og íhugar að fjarlægja þá spýtnahrúgu sem nú liggur inni í dal og er lýti við hlið annarra glæsilegra mannvirkja sem þegar eru risin. Stefán Agnarsson í þjóðhátíðar- nefnd sagði að nú væri endasprettur- inn hafinn, öll hjálp vel þegin og vill hann hvetja alla sem vettlingi geta valdið að kíkja í Dalinn og hjálpa til. Stefán sagði að greinilegt væri að straumurinn lægi til Eyja, um lítið annað talað í höfuðborginni en þjóðhátíð. „Ætli hátíðin í ár stefni ekki í svipaða stærð og í fyrra,“ sagði Stefán. Fullbókað er nú með Herjólli frá miðvikudagskvöldi og fram að þjóðhátíð. Má búast við að rúmlega 3000 manns komi með skipinu til Eyja. Flugfélag Islands er með 19 vélar á föstudeginum og er nánast fullbókað með þeim. Eins er fullbókað -Mikil aðsókn bæði í flug og Herjólf MARGIR koma að undir- búningi þ,júðhátíðar en alltaf er pláss fyrir fleiri, sérstaklega þegar byrjað er að mála. í níu vélar á fimmtudaginn. Hjá Flugfélagi Vestmannaeyja fengust þær upplýsingar að búið væri að selja um 800 pakkaferðir frá Bakka. Uppselt er í ferðir til baka á ntánu- deginum. Mikið væri hringt og spurst fyrir um ferðir á þjóðhátíð. Framkvæmdum við lagningu slitlags á aðra braut Bakkaflugvallar er að ljúka og ætti umferðin um hann að ganga betur en undanfarin ár. FINNUR teiknikennari sér um skreytingar á þjóðhátíð nú eins og undanfarin ár. Flugmál í bæjarráði Á fundi bæjarráðs á mánudag var hörmuð sú ákvörðun Flugfélags Islands að hætta flugi til Vest- mannaeyja frá og með 1. október nk. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram tillögu um að bæjar- stjóri fari í óformlegar viðræður við forsvarsmenn þeirra flugfélaga sem sýnt hafa því áhuga að halda uppi flugsamgöngum milli Vest- mannaeyja og Reykjavíkur. Jafn- framt muni bæjarstjóri ræða við samgönguráðherra um mikilvægi samgönguöryggis fyrir Vest- ntannaeyinga. Þessi tillaga var samþykkt í bæjarráði. Vill Ólöfu sem deild- arstjóra Fyrir síðasta fundi bæjarráðs lá bréf frá Hjálmfríði Sveinsdóttur, skólastjóra Bamaskóla Vest- ntannaeyja. Þar er þess óskað að Olöf Margrét Magnúsdóttir, sér- kennari, verði ráðin deildarstjóri sérdeildar og sérkennslu við skólann. Bæjarráð hefur falið bæjairitara og skólamálafulltrúa að ræða við Hjálmfríði og verði niðurstaða fengin fyrir 1. ágúst nk. Ófeigur ráðinn húsvörður Fyrr í sumar sagði Bjami Sarnú- elsson, húsvörður við Bamaskól- ann, starfi sínu lausu og var það auglýst. Alls bámst tíu umsóknir um starfið frá þessum aðilum: Relja Borosak, Viktor Hjartarson, Pálí A. Georgsson, Gunnar Ólafs- son, Jakob S. Erlingsson, Þórður Sigursveinsson, Sveinn Þorsteins- son, Stefán P. Bjamason, Þorkell Traustason og S. Ófeigur Hall- grímsson. Að tillögu skólastjóra Barnaskólans hefur skólamálaráð samþykkt að ráða S. Ófeig Hall- grímsson húsasmíðameistara í starfið. Sjómanna- mótið í golfi ó iaugardag Á laugardag er Sjómanna- og útvegsmannamótið á dagskrá hjá Golfklúbbnum. Mótið hefst kl. 9.00 og verða leiknar 18 holur í punktakeppni. Keppt verður í tveimur flokkum. Ánnars vegar leika starfandi sjómenn og út- gerðarmenn og makar þeirra. Hins vegar leika fyrrverandi sjómenn og útgerðarmenn og gestir. Veitt verða I.. 2. og 3. verðlaun karla og kvenna í báðum flokkum. Kl. 20 um kvöldið verður kvöldverður í Golfskálanum með verðlaunaveitingu, fjöldasöng og léttum spomm. Skráningu í mótið lýkur kl. 20 á föstudagskvöld.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.