Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Side 11

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Side 11
Fimmtudagur 26. júlí 2001 Fréttir 11 rhreppi og fleiri merka staði sem er að finna ó þessum slóðum - Er þetta fjórða gönguferð hópsins bitra reynslu frá fyrri ferðum. Þegar hún hafði komið sér íyrir las hún sögu, nú um unga heimasætu sem var ein heima á jólanótt og nítján útilegumenn sem hún drap og afhausaði um leið og þeir réðust inn í bæinn. Margar sofnuðu vært út frá þessari „hugljúfu" sögu þrátt fyrir að við væmm nánast eins og sardínur í dós, á loftinu að minnsta kosti. Margrét Lilja svaf í flíspeysu og Vera Björk svaf með ullarnærbuxur á höfðinu og vafði skálmunum um hálsinn. Eldgjá Vera Björk og Unnur Katrín vöknuðu fyrir allar aldir til að hita vatn á brúsana og sjóða hafragraut. Þær þurftu að vakna fyrr en ella vegna þess að rjúpnapotturinn hennar Díönu varð eftir í skálanum við Sveinstind. Undir- rituð þvoði hann vel og vandiega áður en lagt var af stað um morguninn en hafði ekki rænu á að taka hann með enda stundum reikhuga. Trússbílinn kom svo með hann í Hólaskjól þannig að allt bjargaðist þetta. Hópurinn hélt af stað á Gjátind, sem er 935m, um morguninn. Skyggni var frábært af tindinum og útsýnið mikilfenglegt. Þar mátti sjá Vatna- jökul, Háubungu. Blautalón og Gretti. Hofsjökul, Amaifellið mikla og Olafs- fell, Langjökul, Löðmund í vestri og Mýrdalsjökul í suðri og einnig sást Hjörleifshöfði greinilega. Eftir að við höfðum verið á Gjátindi var gengið niður brattar skriður niður í Eldgjá og eftir sléttlendi að Ofæmfossi. Hóp- urinn þurfti að vaða Ofæm og var það hressandi fyrir þreytta fætur að fá ískalt fótabað. Afram var haldið áleiðis í Hólaskjól en á þessari leið skiptist hópurinn nokkuð. Nokkrar drógust aftur úr og þurfti m.a. að gera að sárum einnar. Þær sem voru á undan spíttu í og hurfu út í buskann. Þá varð Kristínu Garðarsdóttur að orði: „Rosalegt aðdráttarafl hefur þessi karlakór," en allar komust á leiðarenda, og eflaust iiafa kórinn og bjórinn togað. Þegar í Hólaskjól var komið taldi Ágústa að unt misskilning hefði verið að ræða varðandi kórinn þegar hún sá börn leika sér um víðan völl og þetta væri örugglega félag einstæðra feðra sem héti Fóstbræður. Díana og Binna sáu um að grilla fyrir mannskapinn og síðan var eftin'étturinn dmkkinn, kakó og „80% straw" og var mikil gleði í hópnum. Var síðan kfkt á kórinn og tekin nokkur lög með þeim. Það kom nokkuð fát á þá kórfélaga þegar Ágústa stillti gönguhópnum upp og raddprófaði, síðan var sungið: „Hei, hó, hei, hó, við höfurn gengið nóg .. og ekkert rneir. Kona sem var með þeim bræðrum horfði í forundran á þessa uppákomu og var þá spurð af manni sem þama var staddur: „Hefur þú aldrei verið í Eyjum?." „Nei." svaraði konan, og þá sagði maðurinn, „þá skilur þú ekki svona húmor." Það var engin þjóðsaga lesin fyrir háttinn þetta kvöld en mikið glens og gaman og smám saman skreið ein af annarri í pokann sinn. Það var heldur enginn hafragrautur morguninn eftir en þegar mannskapurinn hafði pakkað niður var farið í göngu að Hánípufossi og Hánípuhelli. Brodda skálaverði í Hólaskjóli varð þá að orði: „Meira bröltið á þessum konum úr Eyjum, er ekki nóg af ijöllum þar?" Það var Guðbjörgu Jónsdóttur að þakka því hún hafði lesið sér til um þetta svæði áður en lagt var í hann. Þær sent urðu svo frægar að koma í hellinn sáu beinaleifar en smalar höfðust þar við fyrr á tímum og skildu eftir bein af kjöti sem þeir hafa haft með í nesti. Hópurinn kom við í Landmannalaugum á leiðinni til baka og sumar fóru í laugina en aðrar fengu sér kaffi í kaffivagninum. Því næst lá leiðin í Herjólf og heim til Eyja aftur. Glaðar og endumærðar J| Æ yj æ^~.' GUÐRÚN, Emilía, Ágústa, Díana og Binna skoða kort á Gjátindi. komunt við heim og farnar að plana nýja ferð. Finna fyrir landinu, víðátt- unni, hreina loftinu, ekkert áreiti og engar kvaðir Díana Svavarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur hefur átt stóran þátt í þvf að skipuleggja göngur sem gönguhóp- urinn hefur farið undanfarin ár. Má segja að hugmyndin hafi fæðst hjá henni og kjaminn í hópnum sem fór í fyrstu ferðina var af Sjúkrahúsinu. Þegar hún er spurð hvers vegna hún hafi svo mikinn áhuga á gönguferðum uni hálendið segist hún vön útiveru og hafi m.a. verið mikið í skátastarfi á sínum yngri ámm. „Eg og Guðmundur, eiginmaður minn höfum verið mikið í jeppa- ferðum um hálendið og haft mikla ánægju af,“ segir Díana. Svarta gengið, sem svo er kallað og hann er aðili að, er hópur karlmanna sem fór „Laugaveginn" árinu áður en við fórum en Guðmundur fór með þeim og ég vissi hann yrði tregur til að fara með mér líka. Eg ákvað því að skipuleggja ferð með konum en Steingrímur sjúkraliði er á undanþágu og hefur hann komið í nokkrar ferðir með okkur konunum enda starfs- maður á Sjúkrahúsinu. Síðan hefur þetta verið mjög gaman og stemningin innan hópsins verið mjög góð. Þetta er orðinn breiður hópur úr mörgum starfsstéttum. I þessum ferðum erum við óbundnar af heimili og föstum venjum og það er gott að vera frjáls og einn með sjálfum sér en í félagsskap góðra kvenna. Þetta er líka áskorun að takast á við, þar sem þetta er líkamleg áreynsla, þægileg þreyta og andleg upplyfting. Eg hef ákveðið göngu- leiðir í samráði við hópinn, pantað skála og fengið fararstjóra ásamt því að innheimta kostnað. Það má segja að ég sé tengiliður milli hópsins og Útivistar eða Ferðafélags íslands allt eftir því hvert er farið. Aðrar hafa séð um ýmislegt annað til dæmis er matamefnd sem sér um innkaup á vistum og o.s.frv." Hvað gerir þetta helst áhugavert ? „Það er að finna fyrir landinu, víðáttunni, hreina loftinu, ekkert áreiti og engar kvaðir. Þegar við lögðum af stað á Sveinstind vomm við að ganga í svörtu grjóti. auðn og þögn og eftir því se,.i maður gengur lengra þá tekur gróður við, þvf næst fuglasöngur og þegar við vorum komnar að Ofæm- fossi fer maður að mæta öðrum ferðamönnum. Það myndast ákveðin stemning í kvennahóp og allar hafa skilning á því hvað þarf að gera. GUÐRÚN og Vera Björk hvfla lúin bein, HÉR er hópurinn við Eldgjá. VAÐIÐ yfir eina af ánum sem varð á vegi hópsins. ekkert vesen og mikið spjall. í hópn- um vom bæði vanar og óvanar og mér fannst þær nýju falla vel í hópinn." Þegar Díana er spurð hvort hún sé farin að skipuleggja næslu ferð, segist hún vera í fríi fram að næstu ára- mótum en upp úr því fari hún að leggja á ráðin um næstu ferð sem trúlega verði Strútsstígur og er framhald af síðustu ferð. „Við fáum vonandi að vígja nýjan skála á þeirri leið og erum við erum að vonast eftir því að Emilía komi með okkur í næstu ferð,“ sagði Díana að lokum. Að sigrast á sjálfum sér Emilía Magnúsdóttir var fararstjóri hjá hópnum og var tilbúin í spjall um það livað varð til þess að hún gengur nú með ferðahópa þvert og endilangt um landið. „Eg byrjaði að fara í göngur fyrir unt það bil tíu árum, og þá í Reykja- vík. Þegar það nægði ekki lengur og ég ákvað að fara „Laugaveginrí* varð ekki aftur snúið og ég fékk bakteríuna. Þetta áhugamál hentar vel með kenn- arastarfinu en Útivist er áhuga- mannafélag og ég fór fyrst að fara sem fararstjóri á þeirra vegum fyrir fimm til sex árum. Eg hef tekið þátt í uppbyggingu á skálum félagsins en Útivist og Skaftárhreppur gerðu með sér samstarfssamning. Við gerðum endurbætur á gangnamannakofum sem við höfum afnotarétt af ásamt gangnamönnum. Þetta er annað sumarið sem ég fer með hópa frá Sveinstindi í Eldgjá en þetta er nýleg leið og nú eru fyir- hugaðar skálabyggingar á svoköll- uðum Strútsstíg sem er Eldgjá - Álftavatn -Strútslaug. Það þurfa alltaf að vera nýir möguleikar fyrir göngu- fólk. Göngur eru óskaplega heilsusamleg hreyfing og það er þakklátt verk að leiða hópa um svo falleg svæði sem landið okkar er. Stemningin í hóp- unum verður alltaf góð því hópurinn er saman í súru og sætu. Allir eru jafnir og ekkert kynslóðabil, við erum með börn og fólk að áttræðisaldri. Það getur oft verið líflegt í Básum og til dæmis er skálapláss fyrir áttatíu manns og oft haldnar fjölmennar kvöldvökur.“ Hvenær ferðu næstu ferð? „Eg fer með hóp á Sveinstind eftir tíu daga og það getur verið að um næstu helgi verði ég að vinna við Skálabyggingu í Álftavatnakrók. Þá er jeppaferð um Gæsavatnaleið 4. ágúst með jeppadeild Útivistar sem stendur í viku.“ Þegar Emilía var spurð hvernig kvennahópurinn okkar hafi komið henni fyrir sjónir þá segir hún að konur séu oftast í meirihluta og hún hafi hópa sem telji einungis tvo karlmenn hitt eru konur. „Hópurinn ykkar var mjög skemmtilegur og samstilltur og þið studduð hver aðra mjög vel, vanar liðsinntu óvönum. Það er ákveðin ögrun að takast á við þetta og sigrast á sjálfum sér. Það myndaðist mjög skemmtileg stemning innan kvennahópsins og aðalatriðið var að hafa gaman af þessu. Við vorum líka eins og landnemar og ábyrgðarfullar að gera góða slóða þar sem við vomm fyrsti hópurinn í sumar og skerptum gönguslóða frá því í fyrra ef þeir vom ekki horfnir með öllu.“ Emilía segir gönguskíði vera beint framhald af göngunum og hún bíði eftir að komast á þau á vetuma. Siðasti vetur hafi verið snjóléttur en hún fór frá Sigöldu í Landmannalaugar á gönguskíðum. „Mér finnst sem maður geti stundað þetta fram á elliár og það á líka við um gönguskíðin," sagði Emilía að lokun. Texti: Guðbjörg. Myndir: Agústa Guðnadóttir, Kristín Garðarsdóttir og Guðbjörg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.