Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Síða 13
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Fréttir
13
Sigurður Árnason, tollvörður:
|---------- „Eg er mjög ósáttur
við hana. Auðvitað
skilur niaður þeirra
afstöðu að vissu
leyti þai' sem um
fækkun farþega
■ hefur verið að ræða
en það geta þeir sjálfum sér um
kennt með of háu verði."
Spurt er....
Hvernig líst þér
á þá ákvörðun
Flugfélags
Islands að
hætta áætlunar-
flugi til Eyja í
haust?
Lundaveiðin í ár svipuð og í fyrra:
Aðalvandamálið
að manna eyjarnar
-í þeim eyjum þar sem stærstu og glæsilegustu veiðihúsin hafa verið reist
hafa örfáir legið við í sumar en mun fleiri þar sem skilyrðin eru frumstæðari
Enn sem fyrr eru það lunda-
veiðimenn í Ystakletti sem bera
höfuð og herðar yfir kollega sína
þegar veiði er annars vegar.
Annars er veiðin mjög misjöfn eftir
eyjum, sums staðar betri en var í
fyrra, annars staðar lakari, veiði fer
talsvert eftir ríkjandi vindátt og í
stillum veiðist yfirleitt lítið.
Lundaveiðimenn tilgreina feng sinn
í kippum en hundrað fuglar eru í
kippunni.
Nýtt vandamál hefur skotið upp
kollinum í sumum úteyjunum og kann
að vekja furðu. Það er að erfiðlega
hefur gengið að manna þær í sumar.
Talsverðan hluta af veiðitímanum
hafa einn til tveir menn verið í hverri
eyju og stundum enginn. Það merki-
lega er að mest ber á þessu í þeim
eyjum þar sem mest hefur verið lagt í
að gera veiðihúsin sem glæsilegust,
svo sem í Elliðaey, Bjamarey og
Álsey. I hinum eyjunum, þar sem
íburðurinn er miklu minni, svo sem í
Brandinum, er aftur á móti ekkert
vandamál að manna eyna yfir lunda-
tímann og spurning hvort mönnum
hugnist fremur einfaldar aðstæður en
íburður þegar þeir hyggja á dvöl í
úteyjum.
Halldór Hallgrímsson, í veiðifélagi
Ystakletts, sagði á þriðjudag að búið
væri að veiða um 120 kippur eða
heldur meira en í fyrra um sama leyti.
Þeir í Ystakletti nýta Iundatímann
yfirleitt vel, að jafnaði em urn þrír úti
megnið af tímanum. Fremstur í flokki
þar er sjálfur Klettsgreifmn. Hall-
grímur Þórðarson, sem gefur þeim
yngri ekkert eftir í veiðinni. Ein-
hverjar tungur Ijóstmðu því upp að
veiðimenn í Elliðaey vantaði sjö
kippur upp á að ná því sem
Hallgrímur er búinn að veiða í sumar
en við tökum ekki ábyrgð á þeirri frétt.
Bjamareyingurinn Pétur Steingríms-
son segir veiðina hafa gengið ágætlega
í sumar. Mjög góð veiði haft verið
síðustu daga, eftir að ungfuglinn fór að
gefa sig og heildarveiðin sé milli 50
og 60 kippur. Pétur segir að þetta sé
meira en í fyrra og í Bjamarey séu
menn bæði sáttir og glaðir með sinn
feng.
Elliðaeyingurinn Ivar Atlason segir
allt gott að frétta úr Elliðaey, annað en
það að illa hafi gengið að manna eyna
í sumar til veiða. Af 24 dögum á
veiðitímabilinu hafa menn aðeins
verið úti í átta daga. ívar segir að 30
manns séu í veiðifélaginu en einhverja
þeirra skorti greinilega tíma. Reyndar
séu allmargir sjómenn í þessum hópi
sem líklega tími ekki að taka sér frí frá
þeim veiðiskap til að stunda annan.
Ivar segir að í Elliðaey sé búið að
veiða urn 30 kippur og það sé nokkuð
minna en í fyrra.
Halldór Sveinsson. í veiðifélagi
Álseyjar, segir að veiði hafi verið
mjög þokkaleg í sumar í Álsey.
Líklega sé búið að veiða um 70 kippur
sem sé svipað og var á þessum tíma í
fyrra. Aftur á móti segir Halldór svip-
að uppi á teningnunr hjá þeim og í
Elliðaey með að manna eyjuna. Að
jafnaði hafi þetta einn til tveir verið úti
í sumar og það hefði einhvem tíma
ekki þótt mikið.
Kolbrún Guðnadóttir, af-
grciðslustúlka:
i „Mjög illa. Við bú-
f um á eyju og okkar
■ T samgöngur verða að
|&4 vera f góðu lagi.
l Það er ekki hægt að
'Ú vera án flugsam-
3 gangna. Vonandi
taka aðrir við."
Þorsteinn Þorsteinsson, Vestur-
veginum:
(h-j „Það er bara
4K ómögulegt. Þeirem
búnir að vera í þessu
í «11 þessi ár og hafa
haft golt út úr því.
, V jflX Svo þegar illa árar
þá ákveða þeir að
hætta og snúa sér að fluginu til
útlanda í staðinn. Mér finnst það
ekki gott."
Eygló Kristinsdóttir, húsráð-
andi:
„Mér finnst hún ekki
fgóð. Og fargjöldin
verða að lækka,
almenningur hefur
ekki lengur efni á
því að íljúga."
LUNDAVEIÐI í Álsey.
Sigursteinn Óskarsson segir að
fremur treg veiði hafi verið í Stór-
höfða í sumar. Líklega sé búið að
veiða þar um 20 kippur sem sé talsvert
minna en í meðalári. I fyrra þótti
sumarið slakt í Höfðanum en Sigur-
steinn segir þetta sumar enn tregara.
Vindáttir hafa ekki verið þeim
Stórhöfðamönnum nijög hagstæðar í
sumar, þar eru suðaustan og suðvestan
áttir bestar en í Höfðanum eru engir
lognstaðir eins og í sumum úteyj-
unum. Stillumar og norðanáttimar í
júlí hafi því ekki verið veiðimönnum í
Höfðanum hagstæðar.
Helliseyingurinn Magnús Bragason
segir að þeir hafi eingöngu verið úti
um helgar og veiðin sé um tíu kippur.
Það sé svipað og var í fyrra. Magnús
segir að Hellisey sé það lítil eyja að
hún þoli ekki öllu meiri veiði. Þá fari
og drjúgur tími þeirra í Hellisey í að
sinna hreindýrinu sem þeir komu
þangað í fyrra en Magnús segir að það
dafni vel í nábýli við súlu, fýl, svart-
fugl og lunda.
1 Brandinum hefur verið hin þokka-
legasta veiði og þar hafa þrír til fjórir
legið við í allt sumar. Einar Olafsson.
einna Brandsmanna, sagði að hann
Mynd Sigurgeir Jónnsson.
hefði verið úti fyrir tíu dögum, þá
hefði veiðin verið orðin tólf kippur og
ágætisátt hefði verið undanfama daga
þannig að væntanlega hefði veiðst vel
á þeim tíma.
Ekki fengust fréttir af veiði í
Suðurey né heldur í Smáeyjum. Á
heimalandinu stunda nokkrir aðilar
veiði grimmt, bæði í Heimakletti,
Klifi, Dalljalli, Lambaskorum, Sæ-
fjalli, Kervíkurtjalli og Litlhöfða.
Forðum daga var einnig veitt í tveimur
stöðum í Ofanleitishamri en þar mun
lundaveiði ekki lengur stunduð.
Sigurjón Pálsson, tæknifræð-
ingur:
„Mér finnst það
skelfilegt. Þósvoað
litlu félögin komi til
með að lljúga
hingað þá er ég
hræddur um að sú
þjónusta verði ekki
eins og við höfum átt að venjast."
Kristín Eggertsdóttir, Spari-
sjóðnum:
„Mér líst illa á það.
En þeir geta sjálfum
sér um kennt með
fækkun farþega,
þetta er orðið allt of
dýrt."