Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Side 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Ekki nýtt að Vestmannaeyjar séu
vettvangur mikilla tíðinda
ÞÓ crfitt sé að mcta stærð og mikilvægi einstakra frétta þá eru ekki margar fréttir frá íslandi sem vöktu
meiri athygli út um heim en Heimaeyjargosið 1973.
fréttirnar af sjávarútvegi í Vestmanna-
Það er ekki að sökum að spyrja
Jregar Vestmannaeyjar eru annars
vegar að þar gerast hlutirnir. Ekki
eru þær alltaf jákvæðar fréttirnar
sem héðan berast en þær bera því
þó vitni að hér lifa mcnn lífinu
Íifandi. Nýjasta dæmið er að
sjálfsögðu mál Arna Johnsens sem
fellur af stalli sínum með miklum
gusugangi. Mál sem á einhvern hátt
snertir alla Vestmannaeyinga sem
enn einu sinni verða að stilla á núllið
á stuttum tíma og þurfa að meta
stöðuna upp á nýtt.
Svartklæddur maður sem
sagði fatt
Mál Arna hefur tekið mikið pláss í
fjölmiðlum sem sumir þeirra hafa
farið svolítið fram úr sjálfum sér í
umfjöllun sinni. Skemmtilegt dæmi
um það er í DV á föstudaginn þar sem
blaðamaðurog Ijósmyndari eru mættir
heim á hlað á Höfðabóli. Arni gerði
þeim strax ljóst að hann væri ekki til
viðræðu en féllst á myndatöku. Til að
gera eitthvað fer blaðamaður að lýsa
aðstæðum, umhverfinu og því hvað
Arni er að gera. Hámarki nær drama-
tíkin í textanum þegar hann segir:
„Litlu síðar bar að svartklæddan
mann, sem sagði fátt. Þar var enginn
annar en presturinn Kristján Björns-
son. Hann heilsaði Arna, smiðum og
komumönnum. Oumbeðið greip hann
fjögurra tommu planka til að leggja
smiðunum lið. Þannig var greinilegt
að vinir Arna í Eyjum komu hver af
öðrum til að stappa stálinu í niður-
brotinn þingmann sinn þó fátt væri
sagt.“
Stórviðburðir á síðasta ári
Þegar farið er yftr atburði síðustu
missera kemur fyrst upp í hugann
Isfélagsbruninn laugardaginn 9. des-
ember síðastliðinn og þar á undan
andlát Sigurðar Einarssonar forstjóra
Isfélagsins í október í fyrra en hann
lést langt fyrir aldur fram. Isfélags-
bruninn er einn stærsti bruni í sögu
íslenska lýðveldisins og verður því
skráður á spjöld sögunnar.
Ef áfram er haldið að rekja söguna
afturábak stöldrum við næst við árið
1998 þegar háhyrningurinn Keikó var
fluttur til Eyja. Því fylgdi mikil
umfjöllun fjölmiðla úl um allan heim
og sér ekki f'yrir endann á henni.
Saga Vestmannaeyja
samotln sögu sjávarútvegs
Vestmannaeyjar eru óumdeilanlega
stærsta verstöð landsins og vegna þess
hafa oft komið fréttir héðan þó ekki
séu þær allar jákvæðar. A meðan
Sighvatur Bjarnason var forstjóri
Vinnslustöðvarinnar var hann mikið í
sviðsljósinu og eitt árið var hann
kjörinn viðskiptajöfur ársins af Frjálsri
verslun og Stöð 2.
Ekki hafa þær allar verið jákvæðar
eyjum og er frekar að þær netkvæðu
hafi ratað inn hjá stóru fjölmiðlunum
en stendur ekki einhvers staðar að
betra sé illt umtal en ekkert. Og
íslenskur sjávarútvegur mun áfram
verða brokkgengur þó ungir markaðs-
fræðingar ætli sér að koma böndum á
hann.
Frækilegt afrek
Vestmannaeyjar komust í heims-
fréttirnar þegar Guðlaugur Frið-
þórsson vann það frækilega afrek að
synda til lands á Heimaey eftir að
Hellisey VE sökk þrjár sjómflur austur
af Eyjum árið 1984. Eftir að
Guðlaugur náði landi varð hann að
ganga berfættur í nokkra km m.a. yfir
úftð hraun áður en hann komst til
manna. Fjórir fórust með Hellisey.
Pelagusslysið, þegar tveir íslenskir
björgunarmenn fórust, við björgun
skipverja á belgíska togaranum
Pelagusi, varð eðlilega tilefni mikilla
skrifa um Vestmannaeyjar en auk
Islendinganna tveggja fórust tveir
Belgarí slysinu.
í aðalhlutverki á toppi og
botni
Iþróttir í Vestmannaeyjum, sem skipa
stóran sess í bæjarsálinni, hafa fylll
margar síður í dagblöðunum, útvaipi
og sjónvatpi. Það verður að teljast
eðlilegt þegar vel gengur og það
fengum við að upplifa árin 1997 og
1998 þegar strákarnir í fótboltanum
urðu bikar- og Islandsmeistarar. Eða
að lið í botnbaráttunni næði að stela
senunni eins og IBV gerði árin 1992
og 1993 þegar liðið náði að bjarga sér
frá falli á ævintýrilegan hátt. Og
enginn fékk meiri athygli en Martin
Eyjólfsson, bjargvætturinn, sem
skoraði mörkin sem tryggðu Eyja-
mönnum áframhaldandi setu í efstu
deild.
Þátttaka IBV í bikarleikjum, bæði í
handbolta og fótbolta, hefur náð að
gera þá að stærstu viðburðum hvers
tímabils. Upphafið má rekja til ársins
1991 þegar IBV var í úrslitum bikar-
keppni handknattleiksins. Þá varð IBV
bikarmeistari eftir sigur á Vfldngi.
Þarna náðu Eyjamenn að skapa
bikarleiknum skemmtilega umgjörð
sem HSI hefur reynt að halda síðan.
Þessu var fylgt eftir af kvenna-
handboltanum sl. vetur þegar ÍBV
varð bikarmeistari eftir að stelpurnar
lögðu Haukana í einum skemmti-
legasta úrslitaleik bikarkeppninnar í
mörg ár.
Bikarleikir karlanna í fótboltanum
hafa alla tíð verið hápunktur hvers
tímabils en umgjörðin hefur aldrei náð
hæiri hæðum en þegar IBV lék til
úrslita árin 1997 og 1998. Þá stóðu
stuðningsmenn liðsins í Reykjavík
fyrir glæsilegum upphitunarsam-
komum og dugði ekki minna til en
lokuð Tryggvagatan í Reykjavík og
heilt flugskýli á Reykjavíkurflugvelli.
Báðar þessar uppákomur voru
einstakar og Eyjamönnum til mikils
sóma.
Heimaeyjargosið
Það síðasta sem hér verður talið upp er
Heimaeyjargosið 1973 sem náði
alheimsathygli. Gosið sem hófst
aðfaranótt 23. janúar 1973 er örugg-
lega stærsta einstaka frétt síðustu aldar
hér á landi. Kom það Islandi og
Vestmannaeyjum á kortið hjá fólki vítt
og breí.t um heiminn. Eru þeir
ótrúlega margir útlendingarnir sem
minnast gossins sem þess fyrsia sem
heyrðu af Islandi. Og auðvitað voru
Vestmannaeyjar í aðalhlutverki, hvað
annað?
Ó.G.
Hverju spáðu völvurnar?
Rís Árni upp sterkari þegar hremmingunum lýkur?
1 janúar ú þessu ári leituðu Fréttir
til völvu sem áður hefur spáð fyrir
athurðum nýhafinna ára með
góöum árangri. Þá var Matthildur
Sveinsdóttir cinnig fcngin til að lesa
úr tarotspilum fyrir hvern rnánuð
ársins. Nú hafa glöggir lesendur
bent okkur á að ýmislegt í
spádómum beggja hali verið að
konia fram á óyggjandi hátt í þeini
málum sem tengjast Arna Johnsen.
Lítum á hvað Völva Frétta og
Matthildur siigðu í upphafi árs.
í kafianum um framkvæmdir segir
Völva Frétta:
„Ég sé fyrir mér a.m.k. tvö stórhýsi
rísa og nokkur smærri. Eitt þessara
húsa tengist menningarstarfsemi af-
gerandi og framkvæmdir við það eiga
eftir að valda hatrömum deilum.“
Nú er Herjólfsbær að vísu ekki
-Það er spá Dalvíkurvölvunnar
risinn, og spurning hvort hann verði
yfirhöfuð reistur, en umræða um hann
og hlut Arna í þeim framkvæmdum
hefur á síðustu dögum verið
fyrirferðarmikik í íslensku þjóðlífi.
I kafianum um menningu segir
Völva Frétta:
„Hneykslismál á eftir að koma upp
sem bæði tengist menningarlegum
atburðum og öðrum öllu veraldlegri
og á eftir að skekja ýmsa máttarviði
bæjarins."
í tarotspá Matthildarfyrirjúlímánuð
segir m.a:
„Eitthvað sem farið hefur leynt
kemur fram í dagsljósið."
Og meira af völvuspám. í blaðinu
Bæjarpóstinum á Dalvík spáði ára-
mótavölvan svo íjanúar:
„Árni Johnsen verður í sviðsljósinu í
vor. Ég finn fyrir þessu að þetta verði
mikið fjölmiðlafár. Mikið blásið út
og gott ef Árni stendur ekki sterkur
eftir. Eitthvað sem enginn bjóst við í
upphafi.“
Hver var svo að segja að ekkert væri
að marka þessar völvuspár?
VÖLVA
Bæjarpóstsins á
Dalvík telur ekki
útilokað að Árni rísi
upp aftur sterkari,
eitthvað sem enginn
reiknaði með.