Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Qupperneq 15
Fimmtudagur 26 júlí 2001
Fréttir
15
Lundauppskriftakeppni Frétta, Magga Braga og Vöruvals:
Grafinn lundi og reyktur
Lcitin að bestu lundauppskriftinni
stendur sem hæst. Að þessu standa
Fréttir, Maggi Braga og Vöruval.
Verðlaunin eru mvndarlegar mat-
arkörfur. Eina skilyrði fyrir þátt-
töku er að lundi sé í uppskriftinni.
Fé)lk hefur tekið vel við sér og eru
uppskriftir farnar að streyma inn.
Birtum við hér tvær uppskriftir
sem borist hafa.
Tillaga að eldun á reyktum
lunda
Þvoið fuglinn vel úr volgu vatni. 6-10
lundar soðnir í nokkuð stórum potti.
Út í vatnið er sett u.þ.b. 100-150 g af
hangifloti. Lundinn ersoðinn u.þ.b. 1
1/2 tíma kvöldið fyrir notkun. Látinn
standa í pottinum og síðan soðinn
aftur í I 1/2 tíma. (Tvísoðinn)
Skýring á af hveiju þetta er gert svona,
er að eftir að fuglinn er hamflettur er
kjötvöðvinn heldur þurrari miðað við
fugl í hamnum sem er reyttur. Fita
kom þá úr fyllunni í kjötvöðvann eins
og gerist með flotinu sem fuglinn er í
og verður þvf kjötið ekki eins þurrt.
Að auki má bæta svo sem hálfri
maltdós út í pottinn ef óskað er eftir
smávegis sætukeim.
ÁLSEYINGAR hamfletta lunda afmiklum móð.
Mynd Sigurgeir Jónasson.
Grafinn lundi
Forrétturfyrirfjóra
Bringur af fjórum lundum úrbeinaðar.
Gróft salt, nóg til að hylja öll Ilökin.
I msk. sinnepsfræ
1 msk. timian
1 msk. dill
2 msk. svartur pipar, nýmulinn
1 msk. salt
1 msk. basilika
1/2 msk. oregano
Sósa:
2 msk. púðursykur
1 msk. sojasósa
2 msk. hvítvínsedik
1 msk. dijon sinnep
1 dl ólífuolía
salt og pipar
Aðferð:
Hyljið lundabringurnar með grófu
salti og látið bíða í 3 tíma. Skolið
saltið af. Blandið saman kryddi og
látið bringumar liggja í því í 24 tíma.
Sósa:
Blandið saman sykri, sojasósu, ediki
og sinnepi og hrærið olíuna saman
við, fyrst í dropatali og svo í mjórri
bunu. Kryddið svo með salti og pipar.
Berið bringurnar fram mjög þunnt
sneiddar með ristuðu brauði, sósunni
inni í rauðlaukshring og smá salati t.d.
úr blaðlauk, graslauk, iceberg.
Úrslit keppninnar verða birt í næsta
blaði.
Fréttatilkynning:
Bíóið
fer í
fríið
-Stefnt að því að fá hing-
að leikritið „Með fulla
vasa af grjóti"
Almennar kvikmyndasýningar
munu falla niður í Bíóinu til
ágústloka, þó með þeirri
undantekningu að berist Bíóinu
góðar barnamyndir verður
reynt að bregðast við því.
Leikhús Eyjamynda hefur haft
samband við Stefán Baldursson
Þjóðleikhússt jóra með það í
huga að fá hingað leikritið
„Með fulla vasa af grjóti“ og þá
félaga Hilmi Snæ Guðnason og
Stefán Karl Stefánsson til að
flytja það. Árangur af þeim
viðræðum kcmur í Ijós í
september.
Ferðamannabíóiö mun starfa af
fullum krafti með finim
sýningar á dag á íslensku,
ensku og þýsku.
Aðsókn hefur aldrei verið meiri.
Sveinn Magnússon áttræður:
Bauð til golfkeppni á afmælisdaginn
AFMÆLISBARNIÐ var hið ánægðasta með þátttökuna í mótinu en
alls voru keppendur 72 og er þetta eitthvert fjölmennasta mótið í
Eyjum í sumar. Sveinn smíðaði sjálfur alla verðlaunagripi
keppninnar.
SISSA og Sveinn ásamt son-
unum, Birgi, Sigurði, Magnúsi
og Steini. Allir tóku þeir þátt í
mótinu nenia Birgir sem ekki
hefur enn ánetjast golfí])róttinni
en rölti hringinn með þeim
fjórum, þeim til halds og trausts.
Að mótinu loknu buðu þau hjón
til veglegrar afmælisveislu í
Golfskálanum. Synirnir sögðu
að þeir væru þegar byrjaðir að
undirbúa golfmótið á 90 ára
afmælinu og yrði það ekki
minna í sniðum en þetta.
Myndir Sigurgeir Jónasson.
SVARTA gengið hefur marga fjöruna sopið og löngu landsþekktar
(sumir segja alræmdar) goltt'erðir þeirra upp á land í kringum 17.
júní ár hvert. F.v. Leifur Ársælsson, Gísli Jónasson, Sveinn Magn-
ússon, Gunnar Stefánsson, liinar Erlendsson og Einar Ólafsson.