Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Síða 17
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Fréttir
17
ÞAU börðust um efstu sætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi fyrir síðustu kosningar.
F.v. Kjartan, Olafur, Drífa og Arni.
Ljóst er að vægi Guðjóns bæjar-
stjóra eykst með brotthvarfi Arna og
þeir eru til sem benda á hann sem
vænlegan kost í alþingiskosningunum
2003. Ekki er ótrúlegt að Guðjón
renni hýru auga til þingsætis en hann
þarf að hafa sigur á nokkrum ljónum
sem verða á vegi Itans og hann verður
líka að ákveða hvað hann ætlar að
gera í bæjarstjómarkosningum að ári.
Hefði hann sigur í bæjarstjómar-
kosningunum og tryggði Sjálfstæðis-
flokknum áfram meirihluta í bæjar-
stjóm Vestmannaeyja 4. kjörtímabilið
í röð yrði erfitt fyrir ílokksmenn að
ganga fram hjá honum. Á móti koma
hugsanlegar blokkamyndanir í nýju
kjördæmi þar sem Vestmannaeyjar
gætu lent á milli laga. Selfyssingar og
aðrir Árborgarar töldu sig hlunnfarna
í síðasta prófkjöri. þar sem atkvæðin
dreifðust á þá Kjartan og Ólaf. og láta
slíkt ekki endurtaka sig. Við slíkar
aðstæður gæti konan og bóndinn Drífa
orðið betri kostur en karl úti í Eyjum.
Það hillir því ekki undir þingmann frá
Eyjum í nánustu framtíð og maður
með sömu þungavigt og Árni hafði á
þingi er ekki í sjónmáli. Eins og er er
mesta vigtin í framsóknarþing-
mönnunum og þeir hafa líka sýnt
Eyjamönnum og málefnum þeina
mestan áhuga og gæti því verið
skynsamlegt að snúa sér að þeim til að
fylgja þeim málum eftir sem við
teljum brýnust. Nema það gerðist að
þingmenn kjördæmisins fæm að vinna
saman.
Óma'r Garðarsson ritstjóri.
Mikill hamileikur
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra og þingmaður Framsóknar í
Suðurlandskjördæmi, sagði að vissu-
lega væri það mikill harmleikur sem
hent hefði Áma Johnsen og þetta væri
mikil sorgarsaga, þegar hann var
beðinn um að segja álit sitt á breyttu
mynstri í pólitfkinni með brotthvarfí
Áma.
„Hvað pólitíkina varðar er skarð
þegar svo fjörmikill maður hverfur af
pólitískum vettvangi. Og áhugamaður
um málefni kjördæmisins og ekki síst
Vestmannaeyja," sagði Guðni.
„Við framsóknarmenn erum að
leggja línumar í því hvemig við getum
unnið fyrir umbjóðendur okkar í nýju
og stærra kjördæmi sem hefur gífur-
lega möguleika. Við leggjum áherslu
á samtakamáttinn í samstarfi við
fólkið í kjördæminu til að ná árangri.“
Maður kemur í manns stað
Isólfur Gylti sagði of fljótt að segja til
um áhrifin af brotthvarli Áma og alltaf
kænii maður í manns stað.
„Pólitík er starf sem tekur engan
enda en það hlýtur að vera erfitt að
koma inn við þessar aðstæður. Þetta
mál er slæmt fyrir alla, ekki einungis
fyrir Árna og fjölskyldu hans, það
hlýtur líka að vera erfitt fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. forystu hans og
stuðningsmenn og einnig fyrir aðra
sem starfa í pólitík. En gleymum ekki
að fólk er saklaust þar til sekt þess er
sönnuð. Því hlýtur að vera brýnt að
hraða rannsókn þessa máls eins og
kostur er. En eins og ég hef sagt áður í
viðtali í Fréttum höfum við Árni átt
gott samstarf," sagði ísólfur Gylfi
Pálmason.
Áhrifin verða lítil
Lúðvík Bergvinsson segirað til lengri
tíma litið verði áhrif af máli Árna lítil
en búast megi við einhverjum þreif-
ingum innan Sjálfstæðisflokksins á
meðan leitað er manns í staðinn fyrir
Áma.
„Áhrif Sjálfstæðisflokksins eru
sterk á landsvísu en auðvitað er erfitt
að sjá þetta fyrir. Það er ljóst að
fiokkurinn hefur gefið út að Árni
standi einn í þessu, hann hafi sjálfur
komið sér í þessi vandræði og hann
verði að takast á við þetta sjálfur.
Þegar maður horfir til síðustu
kosninga fór foringi flokksins í kjör-
dæminu, Þorsteinn Pálsson, frá með
stuttum fyrirvara án þess að það hefði
nokkur áhrif. Það er líka sennilegt að
kjördæmabreytingin dragi úr áhrifun-
um. Talandi um hagsmuni Vest-
mannaeyja þá held ég að fátt hafi
skaðað nteira en þröng hagsmuna-
gæsla. Við verðum að skoða hlutina í
víðara samhengi því stjómmál eiga að
taka á hagsmunum heildarinnar. Það
er líka öllum fyrir bestu þegar upp er
staðið," sagði Lúðvík.
Verðum að bregðast við
„Ámi hefur verið okkar besti tals-
maður á þingi og því er ljóst að það
getur orðið töluvert tómarúm út kjör-
tímabilið,“ sagði Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri.
„Við þessu þarf að bregðast.
Annars vegar hljótum við að gera þær
kröfur til annarra þingmanna í kjör-
dæminu. og að hlutur okkar verði
varinn og hins vegar munum við sem
erum í bæjarstjóm beita okkur enn
frekar á þeim stöðum sem sambönd
okkar liggja, með hagsmuni Eyjanna
að leiðarljósi. Við emm með mörg
járn í eldinum og flest þeirra eru í
ákveðnum farvegi, en þetta þarf
eftirfylgni eins og annað. Eg hef þegar
rætt við ráðamenn Sjálfstæðis-
flokksins um þessi mál og þeir em
allir af vilja gerðir til þess að leysa
þessi mál með okkur með tillti til
þessara tengsla sem rofna með því að
missa Áma út af þingi.“
Haft var samband við Kjartan
Olafsson en hann vildi ekki tjá sig um
málið á meðan Ámi hefurekki form-
lega sagt af sér þingmennsku.
Ó.G.
ÁRNI og Páll Óskar í hinni mestu friðsemd í veiðihúsinu í Álsey.
Friðurinn entist ekki lengi því á þjóðhátíð slettist upp á vinskapinn
þegar Árni greip inn í kossaflens Páls Óskars og kærasta hans
baksviðs í Herjólfsdal.
Bryggjijdagur kvennahandboltans:
Skemmtileg
nýbreytni í
bæjarlífinu
ÞAU sýndu mikla leikni við að flaka ýsu.
SVO var líka hægt að sleikja sólskinið.
ÞAU yngstu fengu að máta kajaka.
Handboltadeild ÍBV kvenna stóð
fyrir bryggjudegi sl. laugardag.
Þarna var um nýjung að ræða í
bæjarlílinu og ætlunin að skapa
markaðsstemningu sem tókst
ágætlega. Ymsir aðilar kynntu
starfsemi sína svo sem
Kútmagakot, Pizza 67, íslensk
matvæli og Veisluþjónustan og
fengu gestir að smakka á
framleiðslu þeirra svo sem sfld
og laxi. Nóg var snúast á
markaðnum og handflakarar
stóðu og fliikuðu lisk sem skapaði
ákveðna stemningu en hægt var
að kaupa fisk á vægu verði.
Gestum og gangandi var boðið
upp á grillaðar pylsur og einnig
mátti finna kaflihús þar sem m.a.
var hægt að fá vöfllur með rjóma.
Krakkar gátu verið með í
boltaleikjum eða skoðað kajaka á
hryggjunni.
Tónlistaratriði voru flutt afþeim
Bjarna Jónassyni, Þórúlti
Vilhjálmssyni og Einari
Guðnasyni. Bæjarbúar kunnu
vel að meta þetta framtak og
mættu vel. Ánægjulegt var
hversu vel tókst til í yndislegu
veðri og vonandi verður
framhald á.