Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Page 18

Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Page 18
18 "Fréttir Fimmtudagur 26. júlí 2001 Landa- KIRKJA - Hjartanlega velkomin! Föstudagur 27. júlí Kl. 14:30. Helgistund á Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja, dagstofu 3. hæð. Heimsóknargestir velkomnir. Laugardagur 28. júlí Kl. 14:00. Útfararguðsþjónusta Guðjóns Kristins Matthíassonar, Heiðarvegi 51. Sunnudagur 29. júlí Kl. 11:00. Messa í Stafkirkjunni á kirkjudegi hennar, sem er næsti sunnudagur á undan þjóðhátíð. Kór Landakirkju og organisti, Guðmundur H. Guðjónsson. Altarisganga. Þetta er messa á vegum Landakirkju og því er ekki önnur messa þar þennan dag. Miðvikudagur 1. ágúst Kl. 20:00. Áfram ÍBV! Föstudagur 3. ágúst Kl. 15:00. Helgistund við setningu þjóðhátíðar í Herjólfs- dal. Kór Landakirkju. Sr. Kristján Björnsson llytur hugvekju. Sjá nánar í dagsrká þjóðhátíðarnefndar. Messa fellur niður í Landakirkju sunnudaginn 5. ágúst. Miðvikudagur 8. ágúst Kl. 11:00. Helgistund á Hraunbúðum. Allir velkomnir. Hvítasunnu KIRKJAN Finimtudagur 26. júlí Kl. 20:30 Biblíufræðsla. Föstudagur 27. júlí Kl. 20:30 Unglingakvöld. Laugardagur 28.júlí Kl. 20:30 Bænasamvera og brauðsbrotning. Sunnudagur 29. júlí Kl. 11:()() Samkoma. Hrönn Svansdóttir syngur, Hrund Snorradóttir talar og lifandi orð Guðs verður prédikað. Allir hjartanlega velkomnir! Aðventkirkjan Laugardagurinn 28. júlí Kl. 10.00 Biblíurannsókn Allir velkomnir Biblían talar Sími 481-1585 Golf: Meistaramótið Júlíus sisurvesari Meistaramót GV í golfi var haldið í síðustu viku, alls skráðu sig 54 keppendur til leiks og var keppt í 7 flokkum. Vestmannaeyjameistari varð Júlíus Hallgrímsson og sigraði hann í 6. sinn. Keppnin var þó hörð, Karl Haralds- son unglingalandsliðsmaður veitti kennara sínum harða keppni og hafði 2 högga forystu þegar mólið var hálfnað. En þegar upp var staðið sigraði Júlíus a 295 höggum en Karl endaði á 297. Júlíus var að vonum kátur eftir síðasta hring og sagði að mótið hefði gengið vel fyrir sig, veðrið gott mestallan tímann og keppnin hörð. „Það er fullt af efnilegum kylf- ingum að koma upp sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni," sagði Júlíus. Urslit urðu eftirfarandi: Meistaraílokkur: 1. Júlíus Hallgrímsson 295 h 2. Karl Haraldsson 297 h 3. Hörður Orri Grettisson 314 h 1. flokkur 1. Hlynur Stefánsson 306 h 2. Jóhann Pétur Andersen 314 h 3. Guðjón Grétarsson 321 h 2. flokkur 1. Grétar Þór Eyþórsson 323 h 2. Rúnar Þór Karlsson 332 h 3. Jón Valgarð Gústafsson 346 h 3. flokkur 1. Jón Andri Finnson 362 h 2. Ingibjörn Þórarinn Jónsson 367 h 3. Haraldur Bergvinsson 385 h Kvennaflokkur 1. Erla Adolfsdóttir 327 h 2. Elsa Valgeirsdóttir 436 h 3. Magnúsína Ágústsdóttir 460 h Unglingaflokkur 1. Grétar Þór Eyþórsson 243 h 2. Valur Smári Heimisson 259 h 3. Sæþór Öm Garðarsson 288 h Öldungaflokkur 1. Atli Aðalsteinsson 230 h 2. Jóhann Pétur Andersen 237 h 3. Sigmar Pálmason 260 h ÞEIR voru efstir í meistaraflokki. Karl, Júlíus og Hörður Orri. VERÐLAUNAHAFAR á meistaramóti GV 2001. Umhverfisverðlaun Umhverfisnefndar og Rotary: Komu í hlut Eyjaíss, Búhamars 42, Dverghamars 36 og Hólagötu 37 FRÁ afhendingunni, Guðmundur Jóhannsson framkvæmdastjóri Eyjaíss, Hrefna og Kristinn Hólagötu 37, Sigríður Dverghamri 36 og Þór og Ingunn eigendur Búhamars 42. Viðurkenningar voru veittar af Umhverfisnefnd og Rotaryklúbbi Vestmannaeyja sl. fimmtudag. Veitt voru verðlaun fyrir fegursta garðinn, skemmtilegasta garðinn, snyrtilegustu húseign og garð og snyrtilegasta fyrirtækið. I byrjun júlí völdu félagar í Rotaryklúbbnum þá garða í bænum sem til greina komu til verðlauna. Einnig mátu og skoðuðu nemendur og flokks- stjórar Vinnuskólans fjölda fyrirtækja og voru niðurstöður hafðar til hliðsjónar við lokaskoðun og ákvarðanir. Eftirtaldir aðilar lentu í úrvali: Austurvegur 4, Búhamar 42, Dverghamar 36, Dverghamar 40, Heiðarvegur 31, Herjólfsgata 11, Hólagata 37, Hrauntún 47, Höfðavegur 37, Kirkjuvegur 80. Fyrirtæki: Eyjabústaðir, Eyjaís, Gistihúsið Hamar, Herjólfur Básaskersbryggju, Lífeyris- sjóður Vestmannaeyja, Sæhamar. Umhverfisverðlaun 2001 hlutu fyrir snyrtilegustu húseign og garð Búhamar 42, eigendur Valtýr Þór Valtýsson og Ingunn Lísa Jóhannesdóttir. Fegursti garðurinn var valinn Dverghamar 36, eigendur Guðmann Magnússon og Sigríður Hreinsdóttir. Skemmtilegasti garður- inn var valinn Hólagata 37, eigendur Kristinn Viðar Pálsson og Hrefna Tómasdóttir og snyrtiiegasta fyrirtækið Eyjaís hf, Eiði.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.