Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Side 20
Enra
en
hársnyrtislto-fa
SÍMI 481 3666
Rútuferðir • Bus TOURS
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
0) 481 1909/896 6810 • Fax 481 1927
•- imnhsnjsr
Viihjálmur Bergsteinsson
* 481-2943
® 897-1178
SEWaiPBBðAaiLL
Lúða var það heillin
HJÖRLEIFUR Sveinsson, skipstjóri og útgerðar-
maður á Gými VE, setti í feitt um daginn þegar hann
dró 65 kg lúðu og fékk aðra 25 kg. Hann er einn á
en lét sig ekki muna um að kippa þeim inn fyrir
borðstokkinn. Mynd: Óli Pétur.
Friðaðir skreiðarhjallar
Frágangur hálkastarins á Fjósa-
kletti er nú á lokastigi. Fyrir
nokkrum dögum hugðust
brennumenn sækja sér spírur úr
gömlum og löngu aflögðum
skreiðarhjöllum suður á eyju
fyrir uppistöður og árefti á
bálköstinn. Flefur sá háttur verið
á hafður mörg undanfarin ár. En
nú brá svo við að brennumenn
voru stöðvaðir af garðyrkjustjóra
bæjarins sem tjáði þeim að þessi
mannvirki, skreiðarhjallarnir,
væru friðuð sem menningarminj-
ar. Urðu brennumenn því frá að
hverfa en brugðu á það ráð að fá
sendar með Herjólti 20 spírur frá
Þorlákshöfn, spírur sem ekki
munu fiokkast sem menningar-
verðmæti.
Umræddir skreiðarhjallar voru
settir upp fyrir rúmum tveimur ára-
tugum, bæði suður á eyju, skammt
ofan við Hamarinn, suður og vestur
af Breiðabakka. Um svipað leyti
voru einnig settir upp hjallar á
Haugasvæðinu. Ekki þótti sérstök
prýði að þessum hjöllum og eftir að
hætt var að nota þá, sættu eigendur
þeirra ámæli fyrir að fjarlægja þá
ekki. Gott ef ekki voru birtar
auglýsingar frá bænum þar sem því
var hótað að hjallamir yrðu fjar-
lægðir á kostnað eigenda. Áfram
stóðu þeir þó og grotnuðu smám
saman niður auk þess sem menn
sóttu sér í þá spíru og spíru, þ.á.m.
brennumenn fyrir þjóðhátíðir. Nú
ber hins vegar svo við að það sem
áður átti að rífa er orðið friðhelgt.
Kristján Bjarnason, garðyrkju-
stjóri Vestmannaeyja, segir það rétt
vera að brennumenn hafi verið
stöðvaðir. Ákveðið hafi verið að
varðveita nyrsta hluta þessa svæðis
sem hluta af atvinnusögu Vest-
mannaeyja og friða svæðið.
En hvaða nefnd ákvað að friða
umrætt svæði?
„Þessi hugmynd er komin frá mér
og tæknifræðingi bæjarins,“ segir
Kristján. „Ég held að þetta hafi
ekki verið formlega afgreitt en í
aðalskipulagi er talað um svæðið
sem verndaða landræmu, 200 m
breiða og grasi gróna. Ég þekki
þess dæmi annars staðar af landinu,
t.d. frá Akranesi, að slíkar minjar
um atvinnuhætti hafi verið frið-
aðar,“ sagði Kristján.
Arni verður með brekkusönginn
-segir Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhótíðarnefndar
Birgir Guðjónsson, formaður
þjóðhátíðarnefndar, segir að allur
undirbúningur fyrir þjóðhátíð sé
eftir áætlun. Góða veðrið í júlí
hafi einnig létt verulega undir í
undirbúningi, ekki síst í máln-
ingarvinnunni.
Menn hafa verið að velta því fyrir
sér hvort Árni Johnsen yrði áfram
kynnir á þjóðhátíð og með
brekkusönginn, eftir allt það umrót
sem verið hefur í kringum hann, eða
hvort hann hefði ákveðið að hætta
þar líka eins og á ýmsum öðrum
stöðum.
„Já, auðvitað verður Árni áfram,"
segir Birgir. „Þar verður engin
breyting á enda sé ég ekki hvað sá
þáttur kemur við öðrum málum sem
Arni kann að tengjast. Brekku-
söngurinn hefur verið eitt vinsæl-
asta atriðið á þjóðhátíð ef ekki það
alvinsælasta og við höfum aldrei
fengið neinar kvartanir vegna hans.
Eg sé því ekki nokkra ástæðu til
þess að fara að breyta einhverju í
sambandi við brekkusönginn vegna
einhverra mála sent koma þjóð-
hátíðinni lítið við.“
Fyrir tveimur árum var ákveðið,
fyrir atbeina þiingmannanna Árna
Johnsen og Isólfs Gylfa Pálma-
sonar, að fella niður svonefnt lög-
gæslugjald á þjóðhátíð, greiðslu
sem þjóðhátíðarnefnd þurfti að inna
af hendi til löggæslunnar vegna
starfa lögreglumanna á þjóðhátíð.
Þetta hafði mikið að segja þar sem
þarna var um milljónir að ræða.
Birgir segir að nú séu uppi áform
um að setja þetta gjald á að nýju.
„Það er slæmt ef svo verður og við
erum þessa dagana að berjast við
kerfið sem vill koma gjaldinu á að
nýju. Þetta var á sínum tfma bar-
áttumál okkar að losna við þessa
kvöð, það tókst í hitteðfyrra og við
munum spyrna við fótum ef til
stendur að koma þessu gjaldi á
aftur. Þarna er um að ræða skatt-
lagningu sem gæti numið hátt í tvær
milljónir og okkur munar um það
fé.“ Karl Gauti Hjaltason, sýs-
lumaður, er í fríi og fulltrúi sýslu-
mannsembættisins, Viktor Pálsson,
sagðist ekki vera nógu kunnugur
þessu löggæslugjaldsmáli til að tjá
sig um það. Hann sagði að í fyrra
hefði þjóðhátíðarnefnd tekið þátt í
kostnaði við löggæslu á þjóðhátíð
þótt hann vissi ekki hve stór sá hluti
hefði verið né heldur hvort nefndin
hefði fengið hann endurgreiddan.
Þjóðhátíðartilboð 26. júlí - 6. ágúst
Steiktur laukur, 200 gr. ......
co Lr 110 tioby s tumatsosa,
00 Kí.- aður 113- 6S0gr.
Steiktur laukur, 100gr. Jjjg jjm .tfur jgg.
54 kr.- áður 69-
Fairy uppþvottalogur,
0,5 Itr.
158 kí.- áður235-
Pepsi/1 up, 6x2 Itr. 999 kf '.-
Sorppokar, 10 stk.
199 kr.-áður 256
Hlestispokar stærri
159kr.-áður202
B.K.I. kaffigyllt, 500 gr.
329kr.-áður368-
B.K.I. kaffirauður, 400 gr.
258kr.-áður284-
Pringles snakk
179 kr.- áður 279 -
Bahlsen, saltstangir og kringlur
98kr.-áður132
Cluh saltkex
59kr.-áður76
Okey eldhúsrúllur, 2 stk.
189 kr.- áður226-
Kodak einnota myndavél,
39 mynda
1198 kr.-áður 1798-
tinnota vörurá einsföku nrífi
S.S. pylsur, 1 kg + geisladiskur
með þjóðhátíðarlögum m.a. 2000 og 2001
1799, - kr.
Súpukjöt, ca. 3 kg í poka. 449 kr/kg áður 576
Lundi - allar útfærslur, reyktur, nýr og reyttur.
í Finnsson remófaði
119 kr.- áður 143