Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Síða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Síða 1
28. árg. • 49. tbl. • Vestmannaeyjum 6. desember 2001 * Verð kr. 150 » Sími 481 1300 « Fax 481 1293 • www.eyjafrettir.is FANNEY, Regína, Ólöf og Jóna eiga allar menn sem vinna hjá ísfélaginu og að sjálfsögðu voru þær allar í fanta stuði á 100 ára afmælinu á laugardagskvöldið. Aflaverð- mæti upp á tæpar 17 milljónir króna Sighvatur VE landaöi 930 tonn- um af' síld sl. sunnudagskvöld. Síldin var væn og góð og fóru niilli 80%-90% til nianneldis hjá Vinnslustööinni. Aætlað að vinna við aflann klárist í dag limmtu- dag, en aflaverðmætið er á milli 16 og 17 milljónir. Sighvatur var komin á miðin aftur um miðnætti á þriðjudag. ísleifur VE hélt einnig tii síldveiða á þriðjudagskvöld fyrir Vinnslu- stþðina. I gær miðvikudag voru Harpa VE og Antares VE á miðunum í Víkur- ál og voru hvor um sig komin með eitthvað á þriðja hundrað tonn af síld. Vonast er til að þeir landi í kvöld fimmtudag. Síldarvinnsla var hjá íslfélaginu sl. mánudag og fram á þriðjudag en þá var voru unnin um 540 tonn úr Antares VE og Gullbergi VE. Nú bíða menn hins vegar eftir meiri síld. Ejns manns er saknað eftir að Ófeigur VE sökk út af Vík í Mýrdal: Átta björguðust giftusamlega -um borð í Danska Pétur VE - Víðtæk leit hefur ekki borið Eins manns er saknað eftir að Ófeigur VE 325 fórst út af Vík í Mýrdal rétt eftir miðnætti í fyrrinótt en átta var bjargað og eru þeir heilir á húfi. Mikil mildi er að ekki fór ver því slysið bar mjög brátt að og voru aðstæður erfiðar, hvasst og töluverður sjór. Ahöfn Ófeigs komst öll upp og í björgunarbúninga og tókst skip- stjóranum að senda út neyðarkall áður en báturinn sökk. Skipverj- unum átta tókst að komast í tvo gúmmfbjörgunarbáta og eftir hálf- tíma var þeim bjargað um borð í Danska Pétur VE sem kom með þá til Vestmannaeyja um klukkan hálf fimm í gær. Hilmar Stefánsson skipstjóri á Danska Pétri sagðist hafa verið að koma upp á Víkina þegar Ófeigur sendi út neyðarkall. Hann sagði að veður hefði þá verið vest-suð-vest- an átta vindstig, gekk hann á með éljum og var töluverður sjór. „Við vorum nýbúnir að taka trollið inn- fyrir og héldum upp í á meðan var verið að ganga frá á dekkinu. Þá var Ófeigur að toga á Víkinni," sagði Hilmar. Þeir á Danska Pétri heyrðu neyðar- kall frá Ófeigi rétt eftir miðnætti og fengu nákvæma staðsetningu. „Þetta gerðist mjög hratt en áhöfnin á Ófeigi komst öli upp í brú. Við héldum þegar áleiðis á slysstað og komum að tveimur gúmmíbjörunarbátum eftir um hálftíma. Þar voru átta af níu manna áhöfn Ófeigs og gekk vel að koma þeim um borð,“ sagði Hilmar. Þeir hófu þegar leit að níunda manninum og fljótlega bættust í hópinn Gjafar VE, Brynjólfur ÁR og Hafnarröst ÁR. Seinna komu Glófaxi VE. Bylgja VE og Jón á Hofi ÁR og tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu og Fokkerflugvél Landhelgisgæslunnar og einnig voru gengnar íjörur. árangur Hilmar sagði að slysið hafi borið mjög brátt að og hafi öll áhöfn Ófeigs verið í bráðri lífshættu. „Þeir voru að toga þegar trollið festist með þessum afleiðingum og bátur- inn sekkur bara einn tveir og þrír,“ sagði Hilmar.’ Margt var á bryggjunni þegar Danski Pétur kom til Eyja um klukkan 16.30 í gær, voru þar samankomnir ættingjar aðstand- endur skipverja, lögregla. prestur og fjölmiðlafólk. Einn úr áhöfn Ófeigs hafði slasast á fæti og var hann fiuttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Ekki er vitað um orsakir slyssins en trollið mun hafa festst í botni og í framhaldi af því sökk báturinn. Að sögn lögreglu var maður vænt- anlegur frá sjóslysanefnd í gær. AÐSTANDENDUR voru mættir á bryggjuna til að taka á móti að sínum mönnum af Ófeigi. TM-ÖRYGGI fyrir fjölskylduna sameinar öll tryggingamálin á einfaldan og hagkvæman hátt Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 Rettingar og sprautun Sími 481 1535 VETRARAÆTLUN HERJOLFS Frá Vestmannaeyjum 4. sept. - 15. maí Mánudaga til laugardaga . . . 8.15 Sunnudaga.............. 14.00 Aukaferð föstudaga *.......15.30 * 7/7 og með 21. des. Frá Þorlákshöfn Nánari upplýsingar: Vestmannaeyjar: Sími 481-2800 • Fax 481 2991 Þorlákshöfn: Sími 483-3413 *Fax 483 3924 12.00 18.00 19.00 HERJÓLFUR t wdflutningw - a cillum si iöum!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.