Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Qupperneq 6
Fréttir
Fimmtudagur 6. desember 2001
Bergur-Huginn efh. tapar máli í Hæstarétti vegna
uppsagnar áhafnar Valdimars Sveinssonar VE 22:
Bótagreiðslur nema
5,9 miljónum króna
-Frjálsa framsalið á aflaheimildum hækkuðu bæturnar
Fjórir fyrrverandi skipverjar á
Valdimar Sveinssyni VE 22, þeir
Oskar Orn Olafsson, skipstjóri,
Engilberg Omar Steinsson, stýri-
maður, Gísli Ingólfsson, vélstjóri og
Gunnar Ingi Gíslason, húseti, unnu
í síðustu viku múl fyrir Hæstarétti,
gegn útgerðarfyrirtækinu Bergur-
Huginn efh.
Bergur-Huginn ehf. keypti öll
hiutabréf útgerðar Valdimars Sveins-
sonar VE 22, 18. mars 2000 og gerði
út um tíma. Nokkrum dögum seinna
var öllum skipverjum skipsins sagt
upp störfum. Utgerð skipsins var hætt
31. mars 2000 og það síðan selt 7.
apríl sama ár.
Fjórmenningarnir kröfðu Bergu-
Huginn ehf. um bætur vegna
ráðningarslitanna sem námu þriggja
mánaða launum miðað við aflahlut.
Hæstiréttur taldi að þeir ættu rétt á
launum í þrjá mánuði frá því að þeim
var sagt upp störfum 24. mars 2000.
Með vísan til dóms réttarins 29. mars
2001 í máli nr. 326/2000 var fallist á
að þeir ættu rétt á aflahlul í upp-
sagnarfresti sínum, en ekki aðeins
kauptryggingu.
Af hálfu Bergs-Hugins ehf. var
byggt á því að við ákvörðun um
allahlutar þeirra bæri ekki að taka mið
af aflareynslu skipsins síðustu mán-
uðina, sem það var gert út, heldur
leggja til grundvallar það, sem eftir
stóð af aflaheimildum skipsins fyrir
yfirstandandi fiskveiðitímabil þegar
því var lagt.
í dómi Hæstiréttar kemur fram að í
dómum réttarins þar sem bótareglu
25. gr., sbr. 45. gr. sjómannalaga hafl
verið beitt við líkar aðstæður og séu
fyrir hendi í rnálinu, hafl jafnan verið
litið til launa sjómanna næstu
mánuðina fyrir starfslok. Ef breyta
eigi frá þeirri framkvæmd hefði það í
för með sér verulega óvissu, meðal
annars vegna þess að aflaheimildir séu
framseljanlegar.
Verði bætur til fjórmenninganna
því ákveðnar með hliðsjón af launum
hans síðustu mánuðina í starfi. Um
ákvörðun bótanna kemur fram að
tekjur skipverja haii augljóslega ekki
fallið jafnt til yfir árið og tilefni hefði
verið til að miða við lengra tímabil en
þrjá síðustu nránuðina fyrir starfslok.
Bergur-Huginn ehf. hafi hins vegar
ekki lagt fram nein gögn til að sýna
fram á að meðaltal launa yfir lengra
tímabil hefði leitt til annarrar
niðurstöðu. Var Bergur-Huginn ehf.
því gert að greiða fjórmenningunum
bætur með hliðsjón af launum þeirra
síðustu mánuðina í starfi að frá-
dreginni kauptryggingu og launum
sem þeir höfðu fengið greidd eftir að
þeim hafði verið sagt upp störfum.
r
Agæt sala hjá
Breka VE í
Bremerhaven
Breki VE átti bókaða söludaga í
Bremerhaven nú í byrjun
vikunnar.
Alls voru seld um 123 tonn af fiski
úr skipinu á markaðnum í Bremer-
haven í dag og í gær og var með-
alverðið tæpar 170 krónur fyrir kílóið.
Samúel Hreinsson hjá fiskmark-
aðnum í Bremerhaven segir í samtali
við fréttavef InterSeafood.com að
uppistaða aflans hjá Breka VE hafi
verið góður karfi en 12 til 13 tonn af
blálöngu og þar af ein sjö til átta tonn
af mjög smáum fiski hafi dregið
meðalverðið niður.
Sigríður Sigmarsdóttir fyrrum um-
boðsmaður Samvinnuferða/Landsýnar:
Enginn Eyjamaður í
vandræðum vegna
gjaldþrots ferða-
skrifstofunnar
I síðustu viku ákvað stjórn
ferðaskrifstofunnar Samvinnu-
ferða-Landsýnar að óska eftir
gjaldþrotaskiptum.
1 ljósi þessa vildi samgöngu-
ráðuneytið koma því á framfæri að
þeir sem greitt hafa inn á eða að
fullu, alferðir hjá Samvinnuferðum
Landsýn hfi, en hafa ekki hafið ferð.
skuli senda skriflegar kröfulýsingar
til samgönguráðuneytisins. Einnig
kemur það í hlut ráðuneytisins að
borga undir ferðamenn sem eru
staddir erlendis á vegurn SL.
Ekki var Sigríði Sigmarsdóttur,
fyrrum umboðsmanni SL í Vest-
mannaeyjum, kunnugt um Vest-
mannaeyinga sem lent hefðu í
vandræðum vegna gjaldþrotsins.
„Eg vissi ekkert af þessu fyrr en ég
las frétt um gjaldþrotið á Texta-
varpinu." segir Sigríður. ,,Ég hef lítið
beitt mér í sölu ferða undanfarið sem
er vegna slyss sem ég lenti í sumar.
Það má því segja að það hafi verið
lán í óláni því enginn á mínum
vegum er erlendis núna. Ég hef selt
nokkra farmiða með Flugleiðum
sem eru í fullu gildi þó þeir liafi farið
í gegnum SL. Það er heldur enginn
frá mér sem átti pantað í ferðina til
Dublin um helgina sem Samvinnu-
ferðir áætluðu að fara,“ sagði
Sigríður að lokum.
Gandi VE leigður til
Patreksfjarðar
Nýi Gandí VE, sem er í eigu Vinnslustöðvarinnar, hefur verið leigður
útgerðarfyrirtækinu Odda á Patreksfirði til næstu 3ja mánaöa.
Oddi gerði út Núp BA, sem strandaði í Patreksfírði fyrir hálfum mánuði og
er Gandí ætlað að koma f stað hans meðan gert verður við skipið. Gandi er þegar
farinn frá Eyjum og er nú í vélarklössun í Reykjavfk. Gandí VE hefur að mestu
legið bundinn við bryggju, eftir að útgerðin sameinaðist Vinnnslustöðinni, utan
þess að hann var leigður Keikósamtökunum í sumar.
Aðeins...
220 á hrónur á mánuði fyrir hverja rás
Afruglari Fjölsýnar hefur þann eiginleiha umfram suma aðra
að hann getur opnað allt að 32 rásir í einu.
- Hjá Fjölsýn er þvi ehhi nauðsynlegt að allir á heimilinu horfi á sömu stöðina
Efni Fjölsýnar er vandað og fjölbreytt og allir ættu að geta fundið sér eitthvað skemmtilegt og fræðandi efni.
Ef enskukunnáttunni er ábótavant, er Fjölsýn góð leið til að bæta úr því.
Til að geta séð efni Fjölsýnar þarf örbylgjuloftnet og afruglara.
Örbylgjuloftnet fást í Verslun Geisla við Flatir og kostar 9 þúsund krónur
- afruglarann færðu lánaðan hjá Fjölsýn.
- allar stöðvarnar eru stafrænar (digital) sem þýðir að gæðin eru mikil
Áshrlftargjald á mánuðl er Hr. 2.200,- en 2.050, ef greltt er með grelðsluHortl.
Það býður englnn betur
3 kvikmyndarásir - og gamlar sígiidar kvikmyndir á TCM
Fjölbreytt íþróttaefni, bara að nefna það
Endalaus tónlist frá MTV í steríó
Heimsfréttirnar á Sky news
Barnaefni allan daginn frá Cartoon network
Framhaldsþættir, viðtalsþættir
og sápur fyrir unga sem aldna
Kristlegt efni frá bandarísku sjónvarpsstöðinni 3ABN
Fræðsluþættir í hágæðaklassa frá Discovery
- og vestmannaeyskt efni af ýmsum toga
ÞITT ER VALID!
Rásir Fjölsýnar eru á
eftirtöldum tíðnum:
223.25 Mhx = CHl 1 til 12
231.25 Mhz = S11
239.25 Mhz = S12
247.25 Mhz = S13
255.25 Mhz = S14
263.25 Mhz = S15
271.25 Mhz = S16
279.25 Mhz = S17
287.25 Mhz = S18
295.25 Mhz = S19
FJ Ö LSÝN
Vestmannaeyjum
Þjónustusíminn er 481 1300