Vesturland - 23.10.2014, Blaðsíða 8

Vesturland - 23.10.2014, Blaðsíða 8
8 23. Október 2014 „Losun flúors langt undir viðmiðunarmörkum“ - segir m.a. í svari Norðuráls á Grundartanga við bréfi Umhverfisvaktarinnar Í júlímánuði sendi Umhverfis-vaktin við Hvalfjörð opið bréf með 10 spurningum til Norðuráls á Grundartanga. Bréfið birtist í VEST- URLANDI. Í svari Norðuráls við bréfi Umhverfisvaktarinnar segir m.a. að Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð velti fyrir sér kynningu Norðuráls á góðum árangri í umhverfismálum og hvort það sé rétt að álverið á Grundar- tanga sé á heimsmælikvarða. Svarið við þessari spurningu er já, álverið á Grundartanga er á heimsmælikvarða, það eigi við um umhverfismál og það eigi einnig við um öryggismál, gæði framleiðslu og rekstur álversins al- mennt. Þessi góði árangur sé hvorki sjálfgefinn né tilviljun. Hann hafi náðst með þjálfuðu og góðu starfsfólki, mark- vissum vinnuferlum, fjárfestingum í búnaði og hópi íslenskra sérfræðinga á sviði álframleiðslu sem hafa vakið alþjóðlega athygli fyrir árangur sinn. „Starfsfólk Norðuráls er stolt af þeim góða árangri sem hefur náðst í um- hverfismálum á Grundartanga,“ segir í svari Norðuráls. „Hann er staðfestur í niðurstöðum umhverfisvöktunar og græns bókhalds sem sýnir að áhrif Norðuráls á lífríkið eru óveruleg og losun efna er vel innan settra marka.“ Spurningar Umhverfis- vaktarinnar við Hvalfjörð og svör Norðuráls - Er frammistaða Norðuráls á heimsmælikvarða ef iðjuverið þarf heimild til að losa ríflega 40% meira af flúor á hvert tonn áls heldur en Alcoa Fjarðaál? „Álver Norðuráls á Grundartanga fylgir reglugerðum og ákvæðum í starfsleyfi sem sett eru af Umhverfis- stofnun. Við útgáfu starfsleyfis er stuðst við lög og reglur og einnig aðstæður á hverjum stað. Hvorki Norðurál né sam- bærileg fyrirtæki ákvarða sjálf heim- ildir eða viðmiðunarmörk. Reynslan sýnir að Norðurál hefur staðist vel öll skilyrði sem sett hafa verið og t.d. er losun flúors á síðasta ári langt undir leyfilegum mörkum í starfsleyfi.“ - Finnst Norðuráli rétt að miða „ár- angur“ sinn við s.l. ár þar sem veður- skilyrði voru allt önnur en árin á undan og flúor rigndi jafnt og þétt af gróðri? „Hér gætir þess misskilnings að veð- urfar hafi áhrif á losun. Það er ekki rétt. Myndin, sem vísað er til, sýnir hvað ál- verið losar af flúor við framleiðslu sína. Veðurfar hefur engin áhrif á það. Veð- urfar hefur hins vegar augljóslega áhrif á dreifingu útblásturs. Ítarlega er fjallað um það á hverju ári í umhverfisvöktun- arskýrslum fyrir Grundartangasvæðið. Eins og áður sagði hafa þær staðfest að frá upphafi starfsemi Norðuráls, árið 1998, hafa engin neikvæð áhrif fundist á lífríki svæðisins. Eins og sést er losun flúors langt undir viðmiðunarmörkum. Einnig að losun á hvert framleitt tonn af áli hefur minnkað verulega. Þetta er eftirtektar- verður árangur og reyndar svo góður að þrátt fyrir að álverið á Grundartanga framleiði nú nærri 30 þúsund tonnum meira af áli á ári en fyrir nokkrum árum síðan þá er heildarlosun flúors minni. Ekkert bendir til annars en að svo verði áfram við frekari framleiðslu- aukningu.“ Á annað þúsund fjár á svæðinu hefur verið rann- sakað - Finnst forsvarsmönnum Norðuráls það óveruleg umhverfisáhrif að á meirihluta vöktunarbæja skuli ár eftir ár mælast svo hátt flúor í kjálkum sauðfjár að hætta sé á tannskemmdum og að tann- skemmdir hafi orðið í sauðfé nú þegar? „Bein og tennur í á annað þúsund fjár á svæðinu hafa verið rannsökuð og dýralæknar hafa skoðað mun fleiri ær með reglubundnu eftirliti. Í þeim rannsóknum hafa aldrei fundist dæmi um neikvæð áhrif flúors á fé eða aðrar skepnur. Engar tannskemmdir, engar beinskemmdir né önnur neikvæð áhrif, sem tengja má við starfsemi Norður- áls með nokkrum hætti. Samkvæmt Sigurði Sigurðarsyni dýralækni hefur tannheilsa sauðfjár í Hvalfirði lengi verið frekar léleg. Sú heilsufarssaga hefst löngu fyrir iðnaðaruppbyggingu í firðinum. Því er ekki óþekkt að blettir sjáist á tönnum. Ef grunsemdir um áhrif flúors á tennur hafa verið til- kynntar, hefur Norðurál ávallt farið fram á að slíkt sé skoðað frekar og dýralæknar hafa farið á staðinn. Í þeim skoðunum hafa aldrei fundist merki þess að um áhrif af flúor sé að ræða.“ - Í ljósi þess að austlægar vindáttir ríkja á svæðinu: Finnst forsvarsmönnum Norðuráls það óveruleg umhverfisáhrif að afföll sauðfjár vestan við iðjuverið skuli vera marktækt meiri og frjósemi minni heldur en í öðru sauðfé? „Hér er vísað til meistararitgerðar Gyðu Björnsdóttur, stjórnarmanns í Umhverfisvaktinni. Engin ástæða er í sjálfu sér til að efast um þá niður- stöðu Gyðu að frjósemi sé lægri og af- föll meiri á svæðinu. Hins vegar sýnir skýrslan að nánast engar líkur eru á því að þetta sé vegna mengunar frá Grundartanga. Í ritgerðinni er veigamikil ástæða aukinna affalla tilgreind. Á bls. 40 í ritgerðinni er vísað í viðtal við bónda á því svæði sem um er rætt. Þar segir: „Í viðtalinu leggur hann áherslu á að ýmsir sjúkdómar sem hann nefnir, s.s. hósti og kregða, liðbólga, vörtur í munnvikum og svöðusár á klaufum hafi borist á bæinn með fé sem hann hafi keypt. Hann hefur misst um 14,3% af fé á bænum á síðastliðnu ári (nóv. 2012 - des. 2013) en nefnir að það sé einsdæmi að svo margt fé hafi drep- ist á einu ári.“ Ljóst er að umræddir sjúkdómar hafa ekkert með flúor eða mengun að gera. Á bls. 44 er fjallað um lægri frjósemi fjár á þessu sama svæði. Þar kemur fram miðað við fyrirliggj- andi rannsóknir sé ekkert sem bendi til þess að lægri frjósemi á svæðinu sé vegna flúors. Orðrétt segir: „Ólíklegt er að sauðfé í nágrenni iðjuveranna á Grundartanga fái fóður sem inni- heldur flúor í því magni sem NRC tilgreinir að þurfi til þess að hafa áhrif á frjósemi.“ Sérfræðingar Norðuráls benda á að ekki sé ólíklegt að sjúk- dómar í aðfluttu fé (sbr. tilvitnun hér að framan) séu megin ástæða þessara frávika. Þá er ánægjulegt að lesa það úr ritgerð Gyðu að bændur í Hvalfirði eru almennt ánægðari með heilsufar sauðfjár síns en bændur fjær Grundar- tanga. Þetta kemur skýrt fram á bls. 43 í ritgerðinni: „Niðurstöður spurn- ingakönnunarinnar benda til þess að bændur séu almennt ánægðir með heilsufar sauðfjár á bæjum sínum . . . . . Þá eru marktækt fleiri bændur nær iðjuverunum á Grundartanga sem telja heilsufar mjög gott eða frekar gott en fjær.“ Áhrif flúors á búfénað ver- ið rannsökuð í tugi ára - Finnst Norðuráli það æskileg staða, að áhrif langtíma flúorálags á kindur og hross skuli ekki þekkt, en leyfilegt útsleppi flúors byggt á áætluðu þoli dýranna? „Áhrif flúors á búfénað hafa verið rannsökuð í tugi ára og eru vel þekkt. Á grundvelli þeirra rannsókna hafa viðmið um magn flúors í fóðri verið sett. Á Íslandi er alla jafna miðað við evrópsk viðmið sem eru 30 µg F/g[1]. Viðmið í Bandaríkjunum fyrir fóður eru að fyrir 12 mánaða tímabil á flúor að vera innan við 30-35 µg F/g, með- altal hvaða tveggja mánaða tímabils sem er má ekki fara yfir 60 µg F/g og meðaltal hvaða eins mánaðar tímabils sem er má ekki fara yfir 80 µg F/g. Í vöktunarskýrslum Norðuráls sést að styrkur flúors í grasi utan þynningar- svæðis á Grundartanga hefur aldrei mælst yfir 30 µg F/g, allt frá upphafi mælinga árið 1997. Hæsta gildi mæl- inga í grasi á síðasta ári var 7,9 µg F/g í Fannahlíð, sem er við mörk þynn- ingarsvæðis á Grundartanga. - Skýrslur sýna að heysýni voru ekki flúormæld fyrr en sex árum eftir meng- unarslysið í álveri Norðuráls 2006. Hverju sætir það? „Þessi fullyrðing er ekki rétt. Þann 24. ágúst 2006 fór rafmagn af einu hreinsivirki Norðuráls í um 20 klukkustundir. Atvikið var tilkynnt viðkomandi yfirvöldum. Stuttu síðar, í september 2006, voru tekin sýni á 5 bæjum utan þynningarsvæðis. Hæsta gildi flúors í grasi mældist í Fannahlíð, 15 µg F/g sem er um 50% undir við- miðunarmörkum. Fylgst hefur verið með gróðri á svæðinu á hverju ári frá 1997. Þar á meðal hefur verið fylgst með magni flúors í grasi. Grassýni eru tekin nærri túnum en ekki á ræktuðum túnum eða úr heyi af þeim. Fyrir því er sú einfalda ástæða að á tún eru bornar ýmsar tegundir af áburði. Ef sýnin væru tekin af túnum eða úr heyi myndu áhrif áburðargjafar blandast við áhrif af útblæstri iðjuvera. Áburður getur innihaldið ýmis efni, þar á meðal bæði brennistein og flúor.“ - Norðurál hefur á hendi umsýslan vöktunar vegna eigin mengunar. Telur Norðurál, í ljósi beinna fjárhagslegra og viðskiptalegra tengsla fyrirtækisins við rannsakendur, Umhverfisstofnun og höfunda vöktunarskýrslna, trúverð- ugleika mengunarmælinga nægilegan? „Álver Norðuráls á Grundartanga fylgir reglugerðum og ákvæðum í starfsleyfi sem sett eru af Um- hverfisstofnun. Hvorki Norðurál né sambærileg fyrirtæki ákvarða sjálf heimildir eða viðmiðunarmörk. Það sama á við um vöktun svæðisins. Lög og reglur segja til um að fyrirtækin skuli láta gera ákveðnar mælingar, greiningar og skýrslur. Frá því Norð- urál hóf rekstur á Grundartanga árið 1998 hefur farið fram ítarleg vöktun á áhrifum álversins á umhverfi sitt. Vöktunin felur í sér rannsóknir og eftirlit með 59 mæliþáttum í og við Hvalfjörð, s.s. loftgæðum, veðri, úr- komu, ferskvatni, kræklingi, sjávar- seti, grasi, laufi, barri, heyi, sauðfé og hrossum. Rannsóknirnar eru gerðar af Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Há- Álver Norðuráls á Grundar- tanga fylgir reglugerðum og ákvæðum í starfsleyfi sem sett eru af Umhverfis- stofnun. Hvorki Norðurál né sambærileg fyrirtæki ákvarða sjálf heimildir eða viðmiðunarmörk. Það sama á við um vöktun svæðisins. Lög og reglur segja til um að fyrirtækin skuli láta gera ákveðnar mælingar, grein- ingar og skýrslur. Norðurál á Grundartanga.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/989

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.