Vesturland - 18.12.2014, Page 1
Gastækin frá AGA og
HARRIS hafa þjóna›
Íslendingum um árabil
G A S V Ö R U R • R A F S U ‹ U V Ö R U R • Ö R Y G G I S V Ö R U R • S L Í P I V Ö R U R
BÍLDSHÖF‹A 14 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 7000 • WWW.GASTEC.IS
OERLIKON er einn
stærsti rafsu›uvíra-
framlei›andi í Evrópu.
Gæ›i og gott ver›.
ALLT TIL MÁLMSUÐU
OG MÁLMSKURÐAR
KITin 1900 HF TIG
KITin
320 MIG
PEARL 180 MIG/MAG
AÐEINS 10 KG
Úrval rafsuðuvéla
frá KUHTREIBER og GYS
NEOPULSE 270 MIG
Frystigámar / Sala og leiga / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum
og gerðum. Bjóðum sérlausnir, sniðnar að þörfum viðskiptavina.
Hafðu samband!
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
stolpi@stolpiehf.is | www.stolpiehf.is
ATHYGLI EHF.-01-13
18. Desember 2014
21. tölublað 3. árgangur UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
Stúfur heimsótti börn á öllum
aldri í Þjóðminjasafninu
Íslensku jólasveinarnir eru öldungis óskyldir hinum alþjóðlega rauð-klædda Santa Claus sem er kominn
af dýrlingnum Nikulási biskupi, verndara
barna og sæfarenda í kaþólskum sið. Þeir
eru af kyni trölla og voru upphaflega barna-
fælur. Þeir eru synir þeirra allra verstu
illvætta sem til eru á Íslandi, Grýlu og
Leppalúða. Fyrsta ritaða heimildin þar sem
minnst er á jólasveinana er frá 17. öld en
það er Grýlukvæði séra Stefáns Ólafssonar
frá Vallanesi. Þar segir um þau skötuhjú
Grýlu og Leppalúða:
Börnin eiga þau bæði saman
brjósthörð og þrá,
af þeim eru jólasveinar,
börn þekkja þá.
Af þeim eru jólasveinar
jötnar á hæð,
öll er þessi illskuþjóðin
ungbörnum skæð.
Flest börn myndu sjálfsagt vilja forðast þá
jólasveina sem hér er minnst á enda var það
svo að jólasveinarnir voru upphaflega, líkt
og Grýla og Leppalúði eru enn, barnafælur
sem foreldrar notuðu til að hræða börn sín
til hlýðni. Yfirvöldum hefur greinilega ekki
litist á blikuna vegna þess að með Húsaga-
tilskipun frá árinu 1746 var tekið fram að
bannað væri að hræða börn með óvættum
á borð við jólasveinana. Hvort sem það var
Húsagatilskipuninni fyrir að þakka eða ein-
hverju öðru tóku jólasveinarnir að mildast
með árunum og hættu að vera börnum
lífshættulegir, þó þeir væru enn hrekkjóttir
þjófar. Þegar líða tók á 20. öldina urðu hinir
íslensku jólasveinar fyrir miklum áhrifum
frá erlendum starfsbræðrum sínum bæði
varðandi hegðun og tísku. Þeir fóru að taka
upp á því til hátíðabrigða að klæða sig upp
í rauð spariföt í líkingu við þau sem sjást á
hinum alþjóðlega Santa Claus og dönskum
jólanissum. Þá fóru þeir einnig að vera
góðir við börn og gefa þeim gjafir í skó.
Jólasveinar koma í Þjóðminjasafnið kl.
11.00 alla daga hér eftir til jóla. Síðasta
sunnudag var það Stúfur sem heimsótti
börn á öllum aldri. Stúfur er heldur lágur
til hnésins, Hann er líka stundum kallaður
Pönnuskefill, því í gamla daga reyndi hann
að hnupla matarögnum af steikarpönnunni.
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Á morgun, 19. desember, kemur
Skyrgámur, laugardaginn 20. desember
Bjúgnakrækir, sunnudaginn 21. desember
Gluggagægir, mánudaginn 22. desember
Gáttaþefur, þriðjudaginn 23. desember
Ketkrókur og á aðfangadag jóla, miðviku-
daginn 24. desember kemur Kertasníkir,
síðastur að vanda.
stúfur í Þjóðminjasafninu sl. sunnudag
og börnin hlusta opinmynt á hann.
mörg börn vildu hitta hann, sum þeirra
utan af landi, en margir foreldrar voru
komnir i bæinn til að verslan fyrir jólin.
Þjóðminjasafnið er safn allra landsmanna,
og gaman að koma þar í heimsókn, ekki
bara á aðventunni.