Vestfirðir - 11.01.2013, Qupperneq 2

Vestfirðir - 11.01.2013, Qupperneq 2
2 11 janúar 2013 Fasteignagjöld hafa hækkað mest á Patreksfirði - eru hæst á Ísafirði Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu fasteigninni á nokkrum þétt- býlisstöðum á landinu. Viðmiðunar- eignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og 351m3. Stærð lóðar er 808m2. Gjöldin eru reiknuð út sam- kvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2011 og sam- kvæmt álagningarreglum ársins 2012 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Til að forðast skekkjur var útreikn- ingur fasteignagjaldanna sendur á við- komandi sveitarfélag og óskað eftir að athugasemdir yrðu gerðar ef um skekkjur er að ræða. Tekið hefur verið tillit til þeirra ábendinga sem bárust. Fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu er. Fasteigna- mat húss og lóðar á höfuðborgarsvæð- inu, miðað við meðaltal, er 34 millj- ónir króna og hefur hækkað úr 30,1 milljón króna. Hefur lækkun matsins frá árinu á undan því gengið nær alveg til baka. Af þeim þéttbýlisstöðum sem skoðaðir voru utan höfuðborgarsvæð- isins er matið hæst á Akureyri, 27,4 milljónir króna, og í Keflavík 24,4 milljónir króna. Lægst er matið eins og áður á Patreksfirði, 9,2 milljónir króna, í Bolungarvík 10,6 milljónir króna og á Siglufirði, 10,8 milljónir króna. Eins og áður er fasteignamatið er mjög mishátt þó ögn hafi dregið saman í prósentum. Á það bæði við um lóðarmat og húsamat. Ástæða þess að saman dregur er sú að matið hækkar meira þar sem það var lægst en þar sem það var hæst. Nú er lægsta mat 27% af hæsta mati en í fyrra var það 26% af hæsta mati. Þegar horft er á fasteignagjöldin breytist myndin verulega. Tekið skal fram að hér er horft til allra svo- kallaðra fasteignagjalda, það er fast- eignaskatts, lóðarleigu, fráveitugjalds, vatnsgjalds og sorpgjalda. Meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu gefur ekki hæstu fasteignagjöldin. Því valda álagn- ingarreglur einstakara sveitarfélaga. Gjöldin eru áfram hæst á Ísafirði, 291 þúsund króna en nú eru lægstu gjöldin á Vopnafirði, 156 þúsund krónur. Áður voru gjöldin lægst á Patreksfirði. Gjöldin á Vopnafirði eru því tæplega 54% af gjöldunum á Ísafirði. Þarna hefur líka dregið saman með hæstu og lægstu gjöldum. Hástökkvari ársins hvað fasteigna- gjöldin varðar er Patreksfjörður ef horft er á prósentuhækkun en þar hækka gjöldin milli ára um 32% eða tæplega 44 þúsund krónur. Sé hins vegar horft á krónutöluna hefur Húsavík vinninginn en þar hækka gjöldin milli ára um rúmar 50 þús- undir króna eða 23%. Mest lækka gjöldin í Reykjanesbæ, hvort heldur horft er á prósentu eða krónutölu. Lækkunin er tæpar 20 þúsundir króna eða 8%. Rétt er að taka fram að sveitarfélög veita mismunandi þjónustu til dæmis hvað varðar sorpurðun og förgun og sums staðar er rukkað fyrir þjónustu sem er innifalin í gjöldum annars staðar. Höfuðhandklæðin frá Sif eru saumuð úr gæðabómull. Létt og þægileg í notkun og henta jafnt síðu sem stuttu hári og dömum á öllum aldri. Nánar um Sif höfuð- handklæði á facebook Fáanleg í 10 litum Ásmundur Einar Daðason alþingismaður: Norsk byggðastefna og jöfnun hús- hitunarkostnaðar á köldum svæðum Rafmagnskostnaður í dreifbýli og á köldum svæðum hérlendis er gríðarlega hár sé miðað við önnur svæði. Þetta er mjög óréttlátt í ljósi þess að rafmagn og húshitun á að flokkast sem sjálfsögð grunnþjón- usta. Í Noregi greiða íbúar á dreifbýlum svæðum mun lægra rafmagnsverð heldur en í stórborgum. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Norðvest- urkjördæmis segir að Framsóknar- flokkurinn hafi lagt til að við mótun almennrar byggðastefnu að gætt verði fullrar jöfnunar raforkuverðs. Allt að 35% lægra rafmagnsverð í Norður-Noregi ,,Norsk byggðastefna byggir á almen- num aðgerðum fremur en sértækum,” segir Ásmundur Einar. ,,Fyrirkomulag raforkumála er gott dæmi um hvernig almenn byggðastefna í Noregi virkar. Á dreifbýlum svæðum er sérstak dreif- býlisþak sett á rafmagnskostnað. Hei- mili á þessum svæðum greiða aldrei hærra verð fyrir raforku en sem nemur ákveðinni krónutölu á ári. Í Norður- Noregi greiða íbúar að jafnaði um 20% lægra verð fyrir raforku heldur en í Suður- Noregi. Dreifbýlisþakið lækkar síðan eftir því sem norðar dregur og íbúar Tromsfylki og Finnmörk sem eru nyrstu fylkin í Noregi búa síðan við dreifbýlisþak sem tryggir þeim að jafnaði 35% lægra raforkuverð. Stjórn- völd í Noregi hafa ákveðið að auka enn frekar við þennan stuðning enda he- fur reynsla undanfarinna ára sýnt að íbúum í Norður-Noregi fjölgar á ný eftir mikla fólksfækkun undanfarinna áratuga.” RARIK og OV skammt komin í byggðajafnrétti RARIK og Orkubú Vestfjarða skila hagnaði í ríkissjóð. Ásmundur Einar segir að Íslendingar séu ekki komnir jafn langt í byggðajafnrétti og Noregur og mikinn skilning skorti á málinu. ,,Þetta kemur vel fram í fjárlaga- frumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2013. Nái fjárlögin fram að ganga verður RARIK krafið um 310 millj- ónir króna og Orkubú Vestfjarða um 60 milljónir króna í arðgreiðslur til rík- issjóðs. Af þessari upphæð er einungis 175 milljónum króna varið til aukn- ingar á niðurgreiðslum til húshitunar á köldum svæðum og er sú tala um þrisvar sinnum lægri en þarf til að jafna húshitunarkostnað að fullu.” - Hvernig á koma þessum jöfnuði á hérlendis að þínu mati? ,,Framsóknarflokkurinn hefur ít- rekað lagt til fulla jöfnun. Fyrir skömmu skilaði starfshópur um breytingar á niðurgreiðslum til húshitunar skýrslu og lagði til breytingar á fyrirkomulagi til niðurgreiðslu húshitunar. Lagt var til að flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verði niður- greitt að fullu. Tillaga hópsins var að jöfnunargjald yrði sett á hverja fram- leidda kílóvattstund (kWst) sem nemi þeim kostnaði sem nauðsynlegur er á hverjum tíma til að niðurgreiða að fullu flutning og dreifingu raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis. Sérstakur orkuskattur var settur á árið 2009 og leggur ríkisstjórnin til að hann verði framlengdur í fjárlagafrum- varpi næsta árs. Fjárhæð skattsins af raforku er 0,12 krónur á hverja kWst af seldri raforku en 2% af smásöluverði á heitu vatni. Ekki skortir vilja til þess að innheimta orkuskatt en hinsvegar virðist ríkisstjórnina skorta póli- tískan vilja til að veita fjármununum beint til jöfnun húshitunarkostnaðar. Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram tillögu um að koma upp slíkum jöfn- unarsjóði. Við munum halda áfram að þrýsta á þetta mál og höfum ítrekað hvatt til þess að þingmenn vinni saman að því að koma upp slíku jöfnunarkerfi. - Viltu að tekin verði upp byggðastefna hérlendis að norskri fyrirmynd? ,,Allt þetta kjörtímabil höfum við lagt til á Alþingi að fulltrúar ríkisvalds og sveitarfélaga móti í sameiningu stefnu í byggðamálum sem byggir á norskri hugmyndafræði. Landinu verði skipt upp í ákveðin dreifbýlissvæði og á þeim grunni lagðar til almennar byggðajafn- réttisaðgerðir. Þessar aðgerðir byggja á því að t.d. skattar, gjöld á einstaklinga og fyrirtæki, afborgunarbirgði náms- lána, barnabætur, orkukostnaður er breytilegt eftir vegalengd frá þéttbýlli svæðum.” Ásmundur Daði segir að að með bættri umgjörð og almennum byggða- aðgerðum er mögulegt að nýta þau fjöl- mörgu sóknarfæri sem landsbyggðin býður upp á. ,,Slíkt er þó ekki einungis hugsað til að efla dreifbýl svæði lands- ins heldur fær ríkissjóður og þjóðin öll þetta margfalt til baka í aukinni verðmætasköpun og gjaldeyristekjum,” segir Ásmundur Einar Daðason, þing- maður. Ásmundur Einar Daðason þingmaður norðvesturkjördæmis. Patreksfjörður.

x

Vestfirðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.