Vestfirðir - 11.01.2013, Page 6
6 11 janúar 2013
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is
Iðnaðarvélar fyrir fagmenn
Bandsagir
frá kr. 115.000.-
Slípibelti 75x2000 3 ph
kr. 168.800.-
Framboð Dögunar í Norðvesturkjördæmi:
Kristinn H. Gunnarsson
sagður líklegur að leiða listann
Framkvæmdaráð stjórnmála-flokksins Dögunar hefur til-kynnt þeim sem hyggjast leita
setu á framboðslistum Dögunar að
frambjóðendur verði lögum flokksins
samkvæmt að styðja samþykkta stefnu
hans, m.a. um afnnám verðtryggingar
lána. Friðrik Þór Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Dögunar segir að líkt
og nafnið bendir til sé flokkurinn lýð-
ræðislegt og opið félag. Af því leiði að
áhugasömu og umbótasinnuðu fólki
er tekið fagnandi og boðið að vera
með í félagsstarfi og stefnumótun.
Nú þegar eru 2.275 einstaklingar víðs
vegar af landinu í Dögun. Kjarnastefna
Dögunar var samþykkt á stofnfundi
18. mars 2012. Í henni felast öflugar
aðgerðir í þágu heimila, s.s. afnám
verðtryggingar á neytendalánum (hús-
næðislán þar með talin) og almenn
leiðrétting húsnæðislána, breyting á
skipan auðlindamála og uppstokkun
á stjórn fiskveiða auk nýrrar stjórnar-
skrár að forskrift stjórnlagaráðs sem
kjósendur hafa samþykkt. Dögun mun
bjóða fram í öllum kjördæmum og er
vinna við framboðslistana hafin. Meðal
þeirra sem formlega hafa gefið kost á
sér eru tveir fulltrúar úr stjórnlagaráði,
þeir Gísli Tryggvason og Lýður Árna-
son, tveir fyrrverandi formenn Hags-
munasamtaka heimilanna, þau Andrea
J. Ólafsdóttir og Þórður B. Sigurðsson
og tveir sitjandi þingmenn, Margrét
Tryggvadóttir og Þór Saari.
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi
þingmaður hefur verið að vinna með
Dögun og hefur sýnt áhuga á að leiða
lista Dögunar i Norðvesturkjördæmi.
Farin verður svokölluð uppstillingaleið
en það er uppstillinganefnd á landsvísu
sem kemur með tillögu um framboðs-
lista allra kjördæma og þar munu full-
trúar hvers kjördæmis vitaskuld vera
með skilaboð úr sínum kjördæmum.
Hluti Hólmavíkurhafnar
gekk í endurnýjun lífdaga
Í haust lauk frágangi á þekju og lögnum í Hólmavíkurhöfn sem auglýst var til útboðs sl. vor. Er þar
með lokið endurbyggingu sem hófst
í fyrra þegar boðinn var út rekstur á
stálþili utan um bryggjuhausinn. Verk-
taki við fráganginn var Stálborg ehf. í
Hafnarfirði sem átti lægra boð af þeim
tveimur sem bárust. Örlítið bættist við
verkhlutann en því lauk innan tíma-
marka.
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi
þingmaður.
Óheillaþróun sem verður að stöðva:
Vestfirðingar liðlega
7.000 sem er aðeins
um 2,3% landsmanna
Vestfirðir eru norðvesturhluti Íslands eða svæðið sem nær frá Gilsfirði, um Reykhóla-
sveit, Barðaströnd og Patreksfjörð,
Tálknafjörð, Arnarfjörð, Dýrafjörð,
Önundarfjörð, Súgandafjörð og Ísa-
fjarðardjúp, Snæfjallaströnd, Jökul-
firði og Hornstrandir, niður Strandir
að botni Hrútafjarðar.
Norðurhluti Breiðafjarðar telst
einnig til Vestfjarða. Frá Bitrufirði
að botni Gilsfjarðar er stutt leið, og
svæðið er þannig vel landfræðilega
afmarkað. Svæðið einkennist af
djúpum fjörðum, miklu fuglalífi og
auðugum fiskimiðum. Þar bjuggu á
miðöldum helstu auðmenn Íslands.
Áður fyrr byggði afkoma fólks að
mestu leyti á sjósókn, hlunnindum
og hefðbundnum búskap. Á Vest-
fjörðum eru margir bæir og þorp
þar sem afkoman byggir að stærstum
hluta á sjávarútvegi og þjónustu.
Látrabjarg vestasti oddi Íslands er á
Vestfjörðum.
Vestfirðir skiptust áður í fimm
sýslur: Austur-Barðastrandarsýslu,
Vestur-Barðastrandarsýslu, Vestur-
Ísafjarðarsýslu, Norður-Ísafjarðar-
sýslu og Strandasýslu, en nú er venja
að tala fremur um Barðastrandar-
sýslur, Ísafjarðarsýslur og Strandir.
Vestfirðir eru frá 2003 hluti af Norð-
vesturkjördæmi, áður, frá 1959 voru
Vestfirðir, Vestfjarðakjördæmi.
Fyrsti þingmaður kjördæmisins
er Ásbjörn Óttarsson sem situr á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, 2.
þingmaður kjördæmisins er Jón
Bjarnason Vinstri-grænum, 3. þing-
maður er Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra í Samfylkingunni, 4.
þingmaður er Gunnar Bragi Sveins-
son Framsóknarflokki, 5. þingmaður
er Einar Kr. Guðfinnsson Sjálfstæð-
isflokki, 6. þingmaður er Lilja Raf-
ney Magnúsdóttir Vinstri-grænum,
7.þingmaður er Ólína Þorvarðar-
dóttir Samfylkingu, 8. þingmaður
er Guðmundur Steingrímsson sem
er utan flokka og 9. þingmaður
kjördæmisins er Ásmundur Einar
Daðason Framsóknarflokki. Þrír
af þessum þingmönnum eru Vest-
firðingar eða hafa búið þar, Einar
Kr. Guðfinnsson á Bolungarvík, Lilja
Rafney Magnúsdóttir á Suðureyri og
Ólína Þorvarðardóttir á Ísafirði.
Sameining sveitarfélaga
Árið 2003 hófst verkefnið „Átak
um eflingu sveitarstjórnarstigsins“
á vegum Félagsmálaráðuneytisins.
Sérstök sameiningarnefnd var sett á
laggirnar af því tilefni, hennar hlut-
verk var að gera tillögur um mögule-
gar sameiningar íslenskra sveitar-
félaga. Hvað varðaði Vestfirði, lagði
sameiningarnefndin upphaflega til að
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur
sameinist og að Ísafjarðarbær, Bolun-
garvík og Súðavíkurhreppur sameinist
í eitt sveitarfélag. Einnig lagði hún til
að öll sveitarfélög á Ströndum samein-
ist í eitt sveitarfélag, utan Bæjarhrep-
pur sem sameinist Húnaþingi vestra
austur yfir Hrútafjörð. Þá var einnig
lagt til að Reykhólahreppur sameinist
Dalabyggð og Saurbæjarhreppi. Síðar
var fallið frá hugmyndum um samein-
ingu Bolungarvíkur, Ísafjarðarbæjar
og Súðavíkurhrepps vegna andstöðu
viðkomandi sveitarstjórna. Kosið
var um hinar tillögurnar í öllum
viðkomandi sveitarfélögum þann 8.
október 2005 en sameiningartillögur
voru alls staðar felldar á Vestfjörðum
nema í Broddaneshreppi. Broddane-
shreppur og Hólmavíkurhreppur
héldu þó aðra atkvæðagreiðlu í apríl
2006 þar sem sameining þeirra var
samþykkt, nýja sveitarfélagið hlaut
nafnið Strandabyggð og tók til starfa
10. júní 2006.
Árið 1920 búa 13.443 manns á
Vestfjörðum sem var þá 14,24%
landsmanna. Árið 1940 er íbúatalan
svipuð, eða 13.130 en hins vegar
10,80% landsmanna. Árið 1960 er
íbúafjöldinn 10.507 manns en 5,86%
landsmanna, árið 1980 er íbúatalan
komin niður í 10.479 manns eða
4,53% landsmanna eða og 2010 er
íbúafjöldinn 7.362 eða aðeins 2,32%
landsmanna og þeim hefur aðeins
fækkað síðan þá. Hversu lengi þessi
þróun heldur áfram er hins vegar
erfitt að spá, það ræðst ekki síst af
þróun atvinnumála í fjórðungnum
og hvort Vestfirðingum verður
boðið upp á sambærilegt vegakerfi
og öðrum landsmönnum.
Þekjan lögð eftir endurbyggingu.
Ásbjörn Óttarsson er 1. þingmaður norðvesturkjördæmis og þar með
Vestfirðinga.