Vestfirðir - 11.01.2013, Page 8

Vestfirðir - 11.01.2013, Page 8
8 11 janúar 2013 ,,Við þurfum að selja þjóðinni og mörkuðum erlendis viðskiptamódelið umhverfisvæna og sjálfbæra Vestfirði” - segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Norðurvesturkjördæmis Nú þegar nýtt frumvarp ríkis-stjórnarinnar um fiskveiði-stjórnun, sem verið hefur eitt stærsta deilumál þjóðarinnar, bíður framlagningar á Alþingi er brýnt að niðurstaða náist sem fyrst sem full- nægi grundvallarsjónarmiðum um þjóðareign auðlindarinnar, jafnræði, nýliðunarmöguleika og bætt búset- uskilyrði í landinu. Þetta segja tveir þingmenn Norðvestur kjördæmis, Vestfirðingarnir og kjarnakonurnar þær Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólína Þorvarðardóttir. ,,Undan þeim hótunum og hræðslu- áróðri sem dunið hefur á þjóðinni frá hagsmunasamtökum útvegsmanna geta rétt kjörin stjórnvöld ekki látið. Þau mega heldur ekki missa kjarkinn, nú þegar stundin er runnin upp til þess að gera varanlegar breytingar til bóta, í átt til frekari opnunar á óréttlátu kerfi. Ég tel að með frumvarpinu séu stigin skref til þess að opna það lokaða kvótakerfi sem nú er við lýði með því að taka upp tímabundin nýtingarleyfi í anda tillagna að nýju auðlindaákvæði stjórnarskrár. Með opnum og vaxandi leigumarkaði með aflaheimildir, sem óháður er núverandi kvótahöfum, losna kvótalitlar og kvótalausar út- gerðir undan því leiguliðakerfi sem verið hefur við lýði og eiga þess kost að leigja til sín aflaheimildir á grundvelli frjálsra, opinna tilboða. Er þar með komið til móts við sjálfsagða kröfu um jafnræði, atvinnufrelsi og aukna nýliðun. Frumvarpið sem nú bíður er vissulega málamiðlun, en það er stórt skref í rétta átt – skref sem rétt er að stíga, fremur en una við óbreytt ástand. Eftir þriggja ára samráð með aðilum í sjávarútvegi, launþegahreyfingunni og öðrum þeim sem að greininni koma, er það skylda Alþingis og ríkisstjórnar að leiða málið nú til lykta á grundvelli fyrirheita sem stjórnarflokkarnir hafa fengið um lýðræðislegt umboð til að hrinda í framkvæmd. Því höfum við Ólína skorað á þingmenn og forystu beggja stjórnarflokka að sameinast um færar leiðir til lausnar á þessu langvar- andi deilumáli og leggja frumvarpið fram hið fyrsta. Afkoma sjávarútvegs er nú með besta móti, hún hækkaði um 26% milli áranna 2010/2011 og hreinn hagnaður var um 60 milljarðar króna á síðasta ári. Mikið er því í húfi fyrir byggðir landsins og þær tugþúsundir Íslendinga sem hafa beina og óbeina lífsafkomu af sjávarútvegi að gerð verði þessi kerfisbreyting sem tryggir stöð- ugleika í greininni og atvinnuöryggi fólks í sjávarbyggðunum.” Tímabundin nýtingaleyfi Lilja Rafney var spurð hvað væri sérstaklega átt við þegar talað væri um tímabundin nýtingaleyfi. ,,Með tímabundnum nýtingarleyfum er verið að skilgreina og lögfesta sam- eiginlega eign þjóðarinnar á sjávarauð- lindinni og að þeir sem fái nýtingarleifi til ákveðins tíma í senn geri það að uppfylltum skilyrðum sem felast í nýt- ingarleyfinu. Með þessari ráðstöfun leikur enginn vafi á að enginn getur gert eignarréttarkröfu til fiskveiðiauð- lindarinnar eins og margur hefur látið í veðri vaka því þjóðin á auðlindina og nýtur afraksturs af henni m.a. í gegnum veiðileyfagjaldið. Mikið öryggi er fyrir útgerðina að fá skilgreindan nýtinga- rétt til hæfilega langs tíma í senn til að skipuleggja sinn rekstur sem best og opnunar möguleikar eru fyrir nýliða að geta fengið samskonar nýtingarleyfi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.” - Er það skoðun þín að réttur vestfirskra sjómanna og útgerðarmanna hafa verið meira fyrir borð borinn í núg- ildandi fiskveiðistjórnarkerfi en réttur sjómanna og útgerðarmanna í öðrum landshlutum? ,,Ég vil svara því með þeim hætti að landshlutar hafa farið mismunandi vel eða illa út út núverandi kvótakerfi. En enginn er í raun varinn fyrir því að gallar kerfisins geti ekki bitnað á þeirra sjávarbyggð. Það hafa stórir staðir eins og Vestmannaeyjar og Akranes fengið að kenna á ásamt fleiri sjávarbyggðum um allt land. Vestfirskar byggðir hafa farið sérstaklega illa út úr þessu kerfi þar sem við eigum svo mikið undir sjávar- útvegi og reynslan hefur sýnt okkur að ekkert atvinnuöryggi er í raun fyrir þá sem beint og óbeint eiga allt sitt undir því að fyritækin starfi áfram og flytji ekki annað eða selji allan kvótan út af svæðinu og taki þar með lífsbjörgina frá þeim sem eftir sitja. Ég hef verið gagnrýnust á þetta óhefta framsal sem verið hefur við líði og skapar óþolandi óöryggi fyrir atvinnuöryggi fólks og barist fyrir því að takmarka framsalið og tel mig hafa náð árangri þar. Mér finnst veiðigjaldaumræðan vera allt annar handleggur og þar eins og í almenna skattkerfinu eigi menn að greiða eftir efnum og aðstæðum hverju sinni. Þar er vissulega munur eftir út- gerðarflokkum sem taka þarf tillit til í vinnu þeirrar nefndar sem er starfandi um útfærslu veiðileyfagjaldsins og ég á sæti í fyrir Vinstri græn. Stórauknir nýliðunarmöguleikar og aukið aðgengi í gegnum sterkan leigupott ríkisins og takmarkað framsal aflaheimilda eru þeir þættir í nýju frumvarpi sem ég er hvað ánægðust með.” - Verður þetta mál til lykta leitt fyrir alþingiskosningarnar 27. apríl nk.? ,,Það ætla ég rétt að vona því þetta er risastórt hagsmunamál fyrir þjóðina til langs tíma ef við ætlum að snúa af þeirri ógæfu braut sem óréttlátt kvóta- kerfi er. Vestfirðingar hafa hvað harðast orðið fyrir barðinu á því en vissulega líka margar aðrar sjávarbyggðir og dæmin sanna að það veit enginn hver verður næstur. Steingrímur J Sigfús- son þáverandi sjávarútvegsráðherra í minnihlutastjórninni útmánuðina 2009 lagði grunninn að nýju kerfi, strandveiðum, sem hófust sumarið 2009 og hafa hleypt miklu lífi í margar sjávarbyggðir. Nú liggja fyrir Alþingi tillögur til ennfrekari styrkingar á Strandveiðum sem nauðsynlegt er að afgreiða sem fyrst en stjórnarandstaðan hefur tafið með málþófi eins og svo mörg önnur brýn mál sem liggja fyrir þinginu. Ég vona að honum og okkur öllum takist að koma í gegn kerfis- breytingum sem skipta sköpum og ég mun ekki gefast upp fyrr en í fulla hnef- ana fyrir þessu verkefni en ljónin hafa vissulega verið mörg í veginum. Þar á ég sérstaklega við sérhagsmunaöflin sem hafa farið offari í umræðunni og svo eru það líka þeir sem hafa viljað umbylta öllu kerfinu frá grunni og hafa gefið lítið fyrir þá vinnu og tillögur sem liggja fyrir en eru þar með í raun að koma í veg fyrir að gerðar verði neinar breytingar til langrar framtíðar. Mitt mat er að það sé betra og raunsærra að ná áfangasigrum þó ýtrustu kröfum sé ekki náð frekar en að spóla sig niður í sama farinu endalaust og ná engum árangri.” Ferjusiglingar milli Hrafns- eyrar og Bíldudals - Þú ert fyrsti flutningsmaður ásamt fleiri þingmönnum að tillögu á Alþingi um greiningu og fýsileikamat á ferju- siglingum yfir Arnarfjörð samhliða opnun jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Þið viljið að inn- anríkisráðherra verði falið það ver- kefni en framkvæmdin muni hraða samtengingu norður- og suðurhluta Vestfjarða allt árið og brúa þann tíma sem taki að ljúka varanlegum heilsárs- samgöngum um Dynjandisheiði milli norður- og suðurhluta Vestfjarða. Er þá ekki hugmyndin að þessar ferju- siglingar séu til frambúðar, þ.e. eftir að jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnar- fjarðar hafa verið opnuð? ,,Mér finnst rétt að skoða alla möguleika í stöðunni sem mættu verð til þess að flýta fyrir heilsárssam- göngum milli norður og suðurhluta Vestfjarða sem verið hefur baráttu- mál Vestfirðinga til fjölda ára. Það er fyrst og fremst verið að horfa til þess að brúa þann tíma sem tekur að ljúka varanlegri vegagerð um Dynjandis- heiði. Það er því mjög mikilvægt fyrir íbúa og fyrirtæki og þjóðarbúið allt að Dýrafjarðargöngin nýtist strax sem best fyrir atvinnuuppbyggingu á svæð- inu og allt samstarf og mannlíf innan Vestfirðingafjórðungs. Byggð á Vestfjörðum hefur átt mjög undir högg að sækja lengi og innbyrðis tenging Vestfjarða mun efla þjónustu- stigið og auka samstarf sveitarfélaga og byggja upp menntun og háskólastarf. Nú þegar uppgangur er í atvinnu- málum á sunnanverðum Vestfjörðum er mikilvægt að sem fyrst sjáist fyrir endan á því að Vestfirðir verði eitt þjón- ustu og atvinnusvæði. Og talandi um samgöngur þá sýndi nýafstaðinn óveð- urskafli að löngu er orðið tímabært að ræða gerð jarðgangna milli Álftafjarðar og Engidals og að þeim verði komið inná samgönguáætlun í framhaldi af Dýrafjarðargöngum.” - Í því óveðri sem geysaði á Vestfjörðum um áramótin tepptust allar samgöngur á landi, rafmagn fór víða af, snjóflóða- hættusvæði voru víðar en oft áður og símasamband fór víða af þar sem ekki var hægt að komast til viðgerða. Í ljósi þessarar reynslu, hvaða verkefni er nú brýnast að leysa til öryggis og þjón- ustu fyrir íbúa Vestfjarða og fyrirtæki á Vestfjörðum? ,,Þetta minnir okkur harkalega á að víða er pottur brotinn í öryggismálum fjórðungsins þegar Vetur konungur lætur minna á sig eins og hann gerði yfir jólahátíðirnar. Ég tel að nú eigi allir sem hlut eigi að máli, þar með talið Orkubúið, ríkisvaldið, vegagerðin, sveitarfélög, fjarskiptafyrirtæki, lög- reglan og samráðvettvangur Almanna- varna á svæðinu að fara yfir það sem fór úrskeiðis hvað tókst vel til og hvaða úrbætur séu brýnastar við þessar að- stæður sem geta alltaf komið upp þó við höfum búið við óvenju milt veð- urfar á Vestfjörðum í rúman áratug.” - Sjóflóðavarnir á svæðinu hafa sannað gildi sitt en enn eru svæði eins og við gangnamunna Vestfjarðagangna þar sem koma stór og hættuleg flóð sem skapa mikla hættu fyrir vegfarendur og loka leiðum sem annars mætti og ætti að halda opnum. ,,Þessi óveðurshvellur sýnir okkur að ef við eigum að geta treyst á það varaafl sem er á svæðinu þá verður öfl- ugt eftirlit og viðhald að vera til staðar ef varaaflið á að rísa undir því nafni. En það segir sig samt sjálft að allt getur bilað, líka þegar verst stendur á eins og raunin varð og við því er lítið hægt að gera. Ég tel að við megum ekkert gefa eftir í öryggismálum á svæði sem er svo einangrað þegar veður eru válynd Lilja rafney Magnúsdóttir þingmaður VG í norðvesturkjördæmi. Suðureyri.

x

Vestfirðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.