Vestfirðir - 11.01.2013, Blaðsíða 10

Vestfirðir - 11.01.2013, Blaðsíða 10
10 11 janúar 2013 10 | SÓKNARFÆRI Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður Símar: 467 1205 - 467 1203 - 692 5060 - 869 4441 „Þróun á veiðarfærum er mikilvægur þáttur í starfi netaverkstæða Ísnets. Þegar veiðarfæri er þróað, annað- hvort frá grunni eða eldri gerðir veiðarfæra endurbættar, þá er í öll- um tilfellum unnið með skipstjórum fiskiskipa annars vegar og birgjum félagsins hins vegar. Það er megin markmið okkar að prófa þau veiðar- færi sem við þróum í tilraunatanki til að fá sem bestar niðurstöður um veiðarfærin áður en þau eru fram- leidd í raunstærð,“ segja þeir Birkir Agnarsson framleiðslustjóri og Kári Páll Jónasson rekstrarstjóri hjá Ísneti en í október fór um 50 manna hóp- ur frá Ísfelli til Hirtshals í Dan- mörku þar sem ný dragnót og rækjutroll frá fyrirtækinu voru kynnt. Í hópnum voru innlendir og erlendir viðskiptamenn félagsins, ásamt fulltrúum frá Selstad, Mor- gére og Garware Wall-Ropes og starfsmönnum Ísfells. Hægt er að segja að hópurinn hafi verið fjöl- þjóðlegur þar sem gestir voru frá Ís- landi, Grænlandi, Færeyjum, Dan- mörku, Noregi, Frakklandi, Þýska- landi, Kanada og Indlandi. Ný dragnót lítur dagsins ljós Starfsfólk Ísnets hefur undanfarna mánuði þróað nýja gerð dragnótar. Á meðan á þróunarferlinu stóð var verkefnið unnið í samstarfi við skip- stjóra á dragnótabátum. Megin markmiðið var að hanna alhliða dragnót sem væri létt í drætti og fari vel í sjó. „Í hönnuninni var lögð áhersla á góða lárétta og lóðrétta opnun, styrk og góða endingu sem og einfaldleika í allri meðhöndlun. Meðal nýjunga í dragnótinni er ný gerð af neti frá Garware sem heitir SNG. Netið er ný kynslóð af Safír neti sem er mun sterkara og nún- ingsþolnara en hefðbundið PE net. Með þessu neti er hægt að hafa efnið grennra án þess að skerða styrk og endingu. Þá var möskvastærð einnig breytt frá hefðbundnum dragnótum til þess að létta hana í drætti og gera hana fisknari,“ segir Birkir en meðal annarra nýjunga má nefna breyting- ar á lögun á dragnótinni, fiskilínu, höfuðlínu og fótreipi. „Viðbrögð skipstjóra, sem voru viðstaddir tankprófun á dragnótinni, voru strax jákvæð og nú þegar er bú- ið að panta hjá okkur dragnætur af þessari gerð. Það var samdóma álit viðstaddra að um vel heppnaða hönnun væri um að ræða sem von- andi á eftir að skila sér í auknu og hagkvæmara fiskiríi,“ segir Birkir. Ísnet 2967 Lukkutroll Á undanförnum árum hefur Ísnet unnið að þróun á svokölluðu Luk- kutrolli til rækjuveiða í samstarfi við Ómar Þorleifsson, skipstjóra á Sig- urborgu SH frá Grundarfirði. Sigur- borgin hefur notað Lukkutroll frá árinu 2005 með ýmsum breytingum sem gerðar hafa verið frá upphaflega trollinu sem var 2512 möskva. Nýjasta útfærslan af trollinu var svo skoðuð í áðurnefndri tankferð til Hirtshals en um er að ræða 2967 möskva troll og segja þeir Birkir og Kári að mönnum hafi borið saman um að trollið liti mjög vel út í tanknum. Lukkutrollið hefur lengst af verið eingöngu úr Safírneti, en í nýja trollinu er auk þess notað hnútalaust Dyneema net til að létta það enn frekar í drætti. Í upphafi var Lukkutrollið tveggja grandara og er það ennþá valmöguleiki þó nýjasta útgáfan sé þriggja grandara. „Ísnet kynnti þetta troll á síðasta ári fyrir öðrum viðskiptavinum og hafa nokkur slík verið afhent undan- farið, bæði úr Safírneti, Dyneema og einnig venjulegu PE neti. Kúlurnar, sem við mælum með á trollið, eru svokallaðar Hydro kúlur frá Castro á Spáni sem er nýjung hjá Ísneti. Þær líta út eins og golfkúlur á yfirborð- inu og eru hannaðar til að veita minna togviðnám. Þess má geta að trollið hefur ekki einungis gefist vel við rækjuveiðar heldur veiðir það grálúðu einnig vel en núorðið má hirða þann fisk sem kemur í rækjutroll með svokölluð- um yfirpoka. Það má því segja að Lukkutrollið sé alhliða troll sem tek- ur bæði hátt og breitt og hægt er að fá í öllum stærðum,“ segir Kári. Ísnet 4200 Gigantus „breiðskafa“ til rækjuveiða Gigantus troll er einnig nýjung frá Ísneti og var það hannað í samstarfi við Selstad í Noregi. Meginmark- miðið við hönnunina segja Birkir og Kári að hafi verið hönnun á trolli sem væri fyrst og fremst breitt og létt í drætti en þyrfti ekki að taka neitt sérstaklega hátt. „Ísnet hefur þegar framleitt tvö Gigantus troll fyrir grænlenska rækjutrogarann Qaqqatsiaq og þau voru að stærstum hluta gerð úr Saf- írneti en þó var notað hnútalaust Dyneema í hluta af yfir- og hliðar- byrðum. Qaqqatsiag hefur náð góð- um árangri með þessi troll og en skipið dregur tvö 3960 möskva troll. Við veiðarnar hafa bæði verið notað- ir hefðbundnir botntrollshlerar eða flottrollshlerum.“ isfell.is Fylgst með prófunum á Lukkutrolli í tanknum í Hirtshals og áhuginn leynir sér ekki. Rækjutroll Gigantus, 4200 möska. Dragnót, 38 faðma. Rækjutroll (Lukkutroll), 2967 möskva. Dragnót, 38 fm í köstun. Ísnet: Ný hönnun á dragnót og Lukkutroll SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Háþrýstidælur Vinnuþjarkar ætlaðir til daglegra nota HD 10/25-4 S ■ Vinnuþrýstingur 30-250 bör ■ 500-1000 ltr/klst ■ Stillanlegur úði ■ Sápuskammtari ■ Túrbóstútur + 50% HD 6/16-4 M HD 6/16-4 MX ■ Vinnuþrýstingur 30-160 bör ■ 230-600 ltr/klst ■ 15 m slönguhjól ■ Stillanlegur úði ■ Sápuskammtari ■ Túrbóstútur + 50% Rafmagns- og loft rótorar Fyrir spjald- og kúlulok Hjallabrekka 1 • 200 Kópavogur • Símar: 564 3000 – 564 0030 Fax: 564 0030 • www.loft.is • loft@loft.is Síur í allar loftpressur Hagstætt verð Hjallabrekka 1 • 200 Kópavogur • Símar: 564 3000 – 564 0030 Fax: 564 0030 • www.loft.is • loft@loft.is Áhrif þess ef miðstöð innanlandsflugs flyst til Keflavíkur: Flug til Ís fj rðar leggst af í núverandi mynd Skýrsla um áhrif þess að miðstöð innanlandsflugs flyst af Reykja-víkurflugvelli til Keflavíkurflug- vallar var nýleg unninn af endur- skoðunarfyrirtækinu KPMG fyrir sex sveitarfélög á landsbyggðinni; Vest- urbyggð, Ísafjarðarbæ, Akureyrarbæ, Fljótsdalshéraðs, Fjarðabyggð, Horna- fjörð og Vestmannaeyjabæ. Með því vilja sveitarfélögin stuðla að vandaðri umræðu um málefni innanlands- flugsins en umræðan hefur oft snúist um skipulagsmál í Reykjavík. Vegna kostnaðar eða annara þátta hafa aðrir- flugvallarkostir sem nefndir hafa verið til sögunnar verið lagðir til hliðar af þeim sem um málið fjalla.Þess vegna er í skýrslunni eingöngu fjallað um flutning til Keflavíkur en auðvitað geta komið fram aðrir kostir eða hug- myndir. KPMG hefur byggst vinnu sína á opinberum gögnum og öðrum upp- lýsingu sem sérstaklega hefur verið aflað hjá viðeigandi aðilum, en aðilar að flugrekstri hafa ekki komið að gerð skýrslunnar. Í skýrslunni segir m.a. að fækkun farþega á einstökum leiðum inn- anlands verður 20 – 40% og er sú niðurstaða byggð á viðhorfskönnun meðal flugfarþega. Auk þess leggð- ist við 3.500 króna fargjald með rútu frá Reykjavík til Keflavíkur. Innan- landsflug í núverandi mynd mundi leggjast af til Ísafjarðar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja þar sem fækkun farþega er það mikil að ekki er lengur rekstrargrundvöllur fyrir hendi. Tíðni flugferða dregst saman um 50%, eða úr 37 ferðum í 18. Farþegafjöldi til Ísafjarðar árið 2011 var 21.131 far- þegi og þeir þyrftu allir að velja annan ferðamáta, t.d. að aka ef flug legðist af. Sex til sjö milljarða króna viðbótar ferðakostnaður mundi falla á íbúa landsbyggðarinnar Einhæfara atvinnulíf og lakari lífsgæði Kostnaður við sjúkraflug eykst og öryggi sjúklinga minnkar. Endur- skoða þarf núverandi fyrirkomulag stjórnsýslu með miðstöð í Reykjavík á ýmsum sviðum því verði af flut- ningum miðstöðvar innanlandsflugs frá Reykjavík er í raun kominn fors- endubrestur í núverandi skipulagi og nauðsynlegt kann að gera opinbera þjó- nustu aðgengilegri á landsbyggðinni. Erfiðara verður að standa undir met- naðarfullu og skapandi menningarlífi á landsbyggðinni án góðra samgangna og atvinnulíf verður einhæfara, einfald- lega vegna þess að stór fyrirtæki með höfuðstöðvar úti á landi treysta mikið á flug. Möguleikar manna til að búa fjarri höfuðborgarsvæðinu en sækja þangað vinnu minnka. Landsbyggðin í heild sinni verður afskekktari þegar innanlandsflug dregst saman segir í skýrslu KPMG. Gott aðgengi að menningu, menntun og þjónustu í víðasta skilningi er einn af meginþáttum sem áhrif hafa á bú- setuval fólks. Verri samgöngur skapa tilfinningu fyrir einangrun, valda öryggisleysi og draga úr almennum lísgæðum. Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar: Efling tónlistarnáms og mat á leikskólum Á fundi fræðslunefndar Ísa-fjarðarbæjar 12. desember sl. var lagt fram bréf frá Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga þar sem greint er frá stöð mála hvað varðar framgang samkomulags ríkis og v itarfélaga um flingu tónlistarnáms og jöfnun á að- stöðumun nemenda til námsins. Fyrir liggur bráðabirgðaúthlutun fyrir skóla- árið 2012-2013. Málið var lagt fram til kynningar. Lagt var fram minnisblað frá Sig- urlínu Jónasdóttur, skóla- og sér- kennslufulltrúa á skóla- og tómstunda- sviði, þar sem óskað er eftir að 3. lið í innritunarreglum leikskóla verði breytt. Í 3. lið segir, ,, Í forgangshópi um heil agspláss, geta rið börn sem búa við fötlun og/eða veikindi og börn sem búa við félags - og fjárhagsörð- ugleika. Með umsókn þeirra skal skila vottorði um sambúðarslit eða umsögn frá Skóla- og fjölskylduskrifstofu og/ eða svæðisskrifstofu fatlaðra, eftir því sem við á.“ Óskað var eftir að reglunum væri breytt þannig að þar kæmi: ,,Sækja má um forgang fyrir barn ef sérstakar aðstæður mæla með því. Umsóknum um forgang skal kila til skóla- og tómstundasviðs. Sækja má um forgang vegna barna með sérþarfir og vegna barna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður.“ Fræðslunefnd samþykkti breytingarnar á 3. lið innritunarreglna leikskóla, með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum, þannig að 3.liðurinn hljómi þá þannig: ,,Sækja má um forgang fyrir barn ef sérstakar aðstæður mæla með því. Umsóknum um forgang skal skila til skóla- og tómstundasviðs. Sækja má um forgang vegna barna með sérþarfir og vegna barna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Barn getur haldist inni á biðlista eftir leikskólaplássi sem næst lögheimili sín , óski foreldrar eftir þ í.“ Lagt var fram á fundi fræðslunefndar tölvubréf frá Svandísi Ingimundar- dóttur, skólamálafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem kynnt er, að frá og með 1. janúar 2013 flyst yfirumsjón og framkvæmd ytra mats á leikskólum frá mennta - og menningar- málaráðuneytinu til Námsmatsstofn- unar. Á vormisseri verða gerðar úttektir á þremur leikskólum og er auglýst eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á því að fram fari úttekt á þeirra leikskólum. Umsóknir skulu berast fyrir 31. des- ember 2012. Fræðslunefnd lagði til að sótt verði um fyrir alla leikskóla sveitarfélagsins. Fokkervél Flugfélagsins á Ísafjarðarflugvelli. Þessi sjón tilheyrir sögunni ef miðstöð innanlandsflugs flyst til Keflavíkurflugvallar. Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði. w w w . v e s t u r l a n d b l a d . i s w w w . r e y k j a v i k b l a d . i s w w w . h a f n a r f j o r d u r b l a d . i s w w w . r e y k j a n e s b l a d . i s w w w . a k u r e y r i v i k u b l a d . i s

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.