Vestfirðir - 11.01.2013, Page 12

Vestfirðir - 11.01.2013, Page 12
11 janúar 2013 Neysluvatns-, sjó- og þrýstiloftslagnir Plast, hár brunastaðall, hentar sjávarútveginum Hjallabrekka 1 • 200 Kópavogur • Símar: 564 3000 – 564 0030 Fax: 564 0030 • www.loft.is • loft@loft.is Fjórhjólalagerinn Stapahrauni 7 • 220 Haf • S. 588 3355 www.4h.is Eigum til reimar í miklu úrvali í flestar gerðir snjósleða og fjórhjóla. 12 ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar Þrír Frakkar Café & Restaurant Ferskur léttsteiktur bláugga- túnfiskur m/soya-smjörsósu og wasabi-kartöflumús GLEÐILEGT NÝTT ÁR Jón Bjarnason tekur ekki þátt í forvali VG Átta manns taka þátt í forvali flokksins Jón Bjarnason, oddviti Vinstrihreyf-ingarinnar grænt framboð í Norð-vesturkjördæmi tekur ekki þátt í forvali VG sem fram fer 27. janúar nk. Jón Bjarnason segir að við Alþing- iskosningar 2009 hafi Vinstrihreyf- ingin grænt framboð fengið yfirburða kosningu í Norðvesturkjördæmi og 3 þingmenn. ,,Enginn vafi er á að einörð stefna og áherslur flokksins og okkar sem skipuðum þá forystusveit, átti hljóm- grunn og stuðning meðal íbúa kjör- dæmisins og raunar langt út fyrir mörk þess. Kjörorðin -vegur til framtíðar- vörðuð trausti og trúnaði voru aðals- merki VG í þeirri kosningabaráttu og eftir þeim gildum hef ég starfað. Ég hef setið á Alþingi sem fulltrúi VG frá því flokkurinn fékk fyrst kjörna menn á þing 1999 og átt virkan hlut í að móta grunnstefnu flokksins og áherslur ásamt mörgu öðru góðu fólki. Það hafa orðið mér vonbrigði hvernig haldið hefur verið á mörgum stefnumálum VG síðustu misseri og vikið frá þeim gildum sem hann var stofnaður um. Afstaða mín og skoð- anir í þeim málum eru öllum kunnar. Ég nefni hér umsóknina um aðild að ESB þvert á grunnstefnu flokksins og gefin kosningaloforð, niðurskurð til velferðarmála, ásamt því hvernig hert hefur verið með margvíslegum hætti að íbúum á landsbyggðinni,” segir Jón Bjarnason. Jón Bjarnason segir að þótt hann hafi hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs fyrir VG við næstu Alþingiskosningar muni hann áfram leggja sitt af mörkum og berjast fyrir þær hugsjónir og grunngildi sem hann hefur verið talsmaður fyrir og starfað eftir. Átta í forvali Í forvali VG 27. janúar nk. taka þátt: • Finnbogi Rögnvaldsson, Borgarnesi, 5.-6. sæti. • Lárus Ástmar Hannesson, Stykkishólmi, 2. sæti. • Lilja Rafney Magnúsdóttir, Súgandafirði, 1. sæti • Matthías Sævar Lýðsson, Húsavík á Ströndum, 3.-4. sæti. • Ragnar Frank Kristjánsson, Hvanneyri, 3.-6. sæti. • Reynir Eyvindarsson, Akranesi, 3.-6. sæti. • Trausti Sveinsson, Bjarnargili í Fljótum, 1.-6. sæti. • Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Kleppjárnsreykjum, 3.-6. sæti. Mestar líkur verða að teljast til þess að Lilja Rafney og Lárus Ástmar muni leiða lista VG í vor, því aðeins einn annar frambjóðandi, Trausti Sveinsson býður sig fram í 1.-2. sætið á móti þeim. Trausti gæti hins vegar náð 3. sætinu til þess að einhver Norðlendingur sé í einhverju af efstu sætunum. Athygli vekur að enginn Húvetningur sækist eftir sæti á framboðslista VG í Norð- vesturkjördæmi. jón Bjarnason þingmaður og fyrrverandi ráðherra. Nýtt deiliskipulag af hafnarsvæðinu á Bíldudal Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í haust að aug-lýsa nýtt deiliskipulag af hafnarsvæðinu í Bíldudal, og var deiliskipulagstillagan til kynningar til 7. desember sl. Þeir sem hags- muni töldu sig eiga að gæta gátu skilað inn athugasemdum til sama tíma, og þurftu þær að vera skrif- legar. Athugasemd barst frá Herði Einarssyni fyrir hönd Rækjuvers ehf. Skipulags- og byggingarnefnd hefur falið byggingarfulltrúa að gera drög að svarbréfi í samræmi við það sem rætt var á fundinum vegna athugasemda forsvarsmanna Rækju- vers ehf. og leggja fyrir nefndina á næsta fundi. Höfnin á Bíldudal.

x

Vestfirðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.